Vikan


Vikan - 10.01.1991, Qupperneq 26

Vikan - 10.01.1991, Qupperneq 26
Keppendurnir þrjátiu i keppninni. Hér má sjá fulltrúa frá fleiri Evrópuríkjum en áður hafa tekið þátt í alþjóðlegum fegurðarsamkeppnum. Fulltrúar Noregs og Danmerkur í garði Sjang Hæ Sékks. Fulltrúar Austur-Þýskalands (til vinstri) og Vestur-Þýskalands í síðustu keppninni sem þessi ríki tóku þátt í sitt í hvoru lagi, enda höfðu ríkin þegar verið sameinuð þegar keppnin fór fram. Vestur-þýska stúlkan varð númer tvö en þetta var í fyrsta og síðasta skiptið sem ungfrú Austur-Þýskaland tók þátt í þessari keppni. Tvær Ijóshærðar Norðurlanda- stúlkur í listasafni á Taiwan. - Hver vann? „Ungfrú Sviss. Hún var meö Sigrúnu Jónsdóttur í herbergi í keppninni Queen of the World. Það er stutt síðan þið birtuð mynd af henni í Vikunni.1' - Fékkstu einhver tilboð? „Já, fólk frá Finnlandi, sem sér um keppnina Ungfrú Skandinavía á næsta ári, bauð mér að taka þátt í þeirri keppni og fólkið sem stóð að þessari keppni bauð mér aö taka þátt í þessari sömu keppni í Tyrklandi næsta ár eða þá að fara í keppnina Queen of the World f Þýska- landi næsta ár. Þetta er allt mjög dularfullt." - Ætlarðu að taka öðru hvoru boðinu? „Mig langar nú til þess því að þetta er rosalega gaman, en ég hugsa ekki. Þetta tekur svo mikinn tíma frá skólanum. Ég held ég Ijúki fyrst námi á nýmálabrautinni í MH.“ Eins konar æfing þar sem spígsporað var í fögrum skemmtigarði. Forseti keppninnar, Mr. Leng, ásamt Lísu. Fyrir aftan þau sést merki fyrirtækis hans Double Crane sem vasast í ýmsu s.s. vítamínfram- leiðslu og ferðaskrifstofurekstri. komið heim 4. desember. Mér verður litið á klukkuna og sé að ég er búinn að eyða öllum matartímanum hennar í viðtal- hún segir að þetta sé allt í lagi og brosir aftur einlæga brosinu sínu með kómíkina í augun- um. Skömmu síðar er hún far-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.