Vikan


Vikan - 10.01.1991, Qupperneq 30

Vikan - 10.01.1991, Qupperneq 30
UPPINN Á AKUREYRI: Hinum megin við Himnaríki — þrískipt krá en jafnframt ein heild krabba! Aö undanförnu hefur lítiö verið um matseld fyrir utan pítsur og smárétti en á döfinni eru ákveðnar nýjungar í matargerö. Bíóbarinn er opinn sem pöbb öll kvöld svo og Stjánabar. Eftir kl. 22 um helgar breytist matsölu- staðurinn á efri hæö í krá og Upp- inn verður ein heild, troðfullur af fólki sem komlð er til að skemmta sér. Á efri hæðinni er leikin lifandi tónlist, helstu kráarskemmtikraft- ar landslns troða þar upp og jafn- vel erlendir tónlistarmenn á borð við Michael Kiely og þegar Sam- úel kom í heimsókn var þekktur píanóleikari þar á ferð, K.C. Jones að nafni. Bíóbarinn breytist í diskópöbb kl. 23 um helgar. Búið er að setja upp öflug hljómflutningstæki og Ijósabúnaður er væntalegur. Öll nýjustu lögin eru leikin og þeir sem vilja stuð halda sig við þenn- an bar. Á Stjánabar er hins vegar athvarf fyrir þá sem vilja hafa það notalegt og spjalla saman. Sann- arlega fjölbreytt krá og sérstæð hér á landi. Á gamla Uppanum eru hefð- bundnar innréttingar, borð og stólar, myndir og bjórauglýsingar á veggjum. Gott útsýni er yfir Ráðhústorgið og mannlífið í mið- bænum. Á Bíóbarnum eru einnig látlausar innréttingar en meira í diskóstíl. Á Stjánabar er hins veg- ar óvenjulegt andrúmsloft. Gamlir stólar úr bíóinu hafa verið klæddir að nýju og settir þar niður. Á veggjum eru gamlar tilkynningar frá dögum Nýja bíós. Uppinn er alltaf troðfullur um helgar og eru gestirnir á nánast öllum aldri. Meðalaldurinn er 25- 30 ár á föstudögum en lægri á laugardögum. Fólk kemur til að spjalla saman, skemmta sér og drekka. Úr krönunum rennur Löwenbrau og mun Uppinn vera einn umsvifamesti söluaðili bjórs frá Sanitas og er haft fyrir satt að eitt sinn hafi selst fjögur tonn af þessum miði á tíu dögum. Stór Löwenbrau kostar 490 krónur og lítill 350. Vinsælasti flöskubjórinn er Becks en einnig drella ,emm táæivert af Michelot Dry, Budweiser og Pilz Urquell. Aðrar tegundir hreyfast minna. Allur flöskubjór kostar 400 krónur. Eftir heimsókn á Uppann eina helgi verður manni Ijóst að Akur- eyringar eru engir eftirbátar höf- uðborgarbúa í skemmtanalífinu, að minnsta kosti ekki um helgar. Á hinn bóginn segja menn að Akureyringar séu feimnir við að láta sjá sig á kránni á virkum dögum. □ Uppinn er alltaf troðfullur um helgar þrátt fyrir að hann sé einhver stærsta bjórkrá landsins. Ein stærsta krá landsins er til húsa við Ráðhústorgið á Akur- eyri. Þetta er Uppinn, staður sem hefur leyfi fyrir 300 gesti. Uppinn hefur margar og mis- munandi vistarverur og er ekki allur þar sem hann er séður enda hefur hann tekið miklum breytingum frá því staðurinn var stofnaður fyrir þremur árum. Og enn eru breytingar á döfinni. stemmningunni á kránni við Ráð- hústorgið. Gamli Uppinn er frá kl. 12-22 fyrst og fremst veitinga- staður með vínveitingaleyfi. Þar er pítsuofn og eldhús og hefur matseðillinn verið æði frumlegur gegnum árin, til dæmis hefur mátt sjá þar bæði kanínur og kol- Þráinn Lárusson veitingamaður hóf rekstur Uppans 5. nóvember 1987 í kaffihúsi á annarri hæð húss sem er áfast Nýja bíói. Bíóið hefur ekki verið starfrækt mörg undanfarin ár og stendur enn tómt. Þráinn opnaði Bíóbarinn á neðri hæð Uppans, þar sem áður var anddyri Nýja bíós, 16. febrúar 1989 og var þar með tilbúinn í bjórsiaginn. Og enn hefur hann þokað sér inn í kvikmyndahúsið gamla því 6. september 1990 var Stjánabar, fyrir innan Bíóbarinn, formlega vígður. Barinn er kenndur við Kristján Guðmunds- son sem var dyravörður í Nýja bíói til fjölda ára. Uppinn er nú kominn alveg að kvikmyndasalnum sjálfum en rammlæstar dyr skilja á milli. Dyrnar kallar Þráinn „Gullna hliðið1' og salinn fyrir innan „Himnaríki" þannig að lotningin er greinilega mikil. Við skulum kynnast aðeins Eitt sinn eiga að hafa selst um fjögur tonn af Löwenbrau í Uppanum á aðeins tíu dögum ... TEXTI: STEFAN SÆMUNDSSON LJOSMYNDIR: KRISTJAN L0GAS0N 30 VIKAN l.TBL.1991

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.