Vikan - 04.05.1991, Side 8
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON
Það fer vel um hjónaefnin þegar þau skoða hringa hjá Sigurði G. Steinþórssyni i Gulli & Silfri.
margir gegnum arin og sumir
þeirra koma aftur og aftur.
Sumir koma til aö skipta um
hringana á tíu ára fresti eða
svo og tengja þá endurnýjun-
ina brúðkaupsafmælum og
aðrir koma við önnur tækifæri.
Og þótt það sé kannski ekki
eftirbreytnivert hefur einn
maður keypt giftingarhringa
sex sinnum í Gulli & Silfri og f
hvert skipti fyrir nýja brúði
enda hefur hann gift sig sex
sinnum.
„Það vill annars svo til,“
segir gullsmiðurinn, „að fólk á
erindi við okkur á stærstu
stundum lífsins. Hingað kemur
fólk að kaupa fæðingargjafir,
skírnargjafir, fermingargjafir,
trúlofunar- og giftingarhringa,
gjafir fyrir stórafmæli og skildi
fyrir jarðarfarir. Menn koma
hingað þegar mikið liggur við.“
Gull & Silfur er skemmtileg
verslun og gefur út mjög vand-
aðan og fróðlegan litmynda-
lista sem sendur er ókeypis
hvert á land sem er ásamt
GIFTINGARHRINGARNIR
Það var engin spurning.
Ólöf og Magnús völdu
giftingarhringana í Gulli
& Silfri á Laugaveginum. Þar
var tekið á móti þeim eins og
höfðingjum, eins og reyndar
venja er þegar fólk kemur
þangað til að velja sér svo af-
drifaríka muni. Sigurður G.
Steinþórsson gullsmiður vís-
aði þeim sjálfur inn í sýningar-
herbergið og var þeim til halds
og trausts en við náðum tali af
honum á meðan.
Svo skemmtilega vill til að
Gull & Silfur er tuttugu ára
gamalt fyrirtæki um þessar
mundir og á þeim tíma hafa
gömlu góðu hringarnir verið
hvað vinsælastir. Þetta hefur
þó verið að breytast á allra
síðustu árum. Nú eru til dæm-
is tvílitir hringar nokkuð vin-
sælir en þeir eru úr hvítagulli
og rauðagulli. Margir kaupa
snúrur með og það kemur líka
fyrir að tilvonandi hjón fá sér
demantshringa. Demantur er
tákn um sterka og varanlega
ást enda eru þeir gjarnan
gefnir sem morgungjöf. Þeir
geta kostað frá tíu þúsund
krónum og upp úr. Annars er
úrval hringanna geysimikið;
meira en fjörutíu aðaltegundir
og af hverri tegund geta verið
mörg afbrigði þar sem hring-
arnir eru allir sérsmíðaðir.
„Það er mjög gott ef fólk
pantar hringana meö svona
tveggja daga fyrirvara," segir
Sigurður. „Okkur er samt fátt
ómögulegt. Við höfum lent í
því að þaö hefur hreinlega
gleymst að gera ráð fyrir
hringum. Ég hef þurft að fara
niður í Dómkirkju með hring-
ana og rétt náði fyrir brúðkaup.
Sem betur fer er það undan-
tekningartilfelli."
Viðskiptavinirnir eru orðnir
málmspjaldi sem notað er til
að máta stærð hringanna.
Fólk getur því verslað við Gull
& Silfur hvar sem það býr á
landinu án þess að þurfa að
fara til Reykjavíkur. Þetta er
skemmtilegur listi þar sem,
auk mynda af 47 hringateg-
undum, er ágrip af sögu trúlof-
unarhringa, stutt ágrip um gull,
gullvinnslu og demanta, skrá
yfir heiti á brúðkaupsafmælum
og fleira. Ekki sakar að geta
þess í leiðinni að þarna eru
líka smíðaðir hringar eftir hug-
myndum og teikningum hvers
og eins.
8 VIKAN 9. TBL. 1991
\