Vikan - 04.05.1991, Blaðsíða 36
TEXTt: ÞORSTEINN EGGERTSSON
BRUÐKAUPSTERTUR
LINDU WESSMAN
Hún heitir Linda Wess-
man, veit hvað hún vill
og kemur því til skila.
Hún lauk matreiðslunámi árið
1988. Þegar hún vann í Grill-
inu á Hótel Sögu var hún farin
að fást við matarskreytingarn-
ar, til dæmis ábætina. Þá var
hún farin að fylgjast svolítið
með verkum Gert Sörensens
sem er einn frægasti bakari
álfunnar og starfar í Tívolí í
Kaupmannahöfn. Hún skrifaði
honum bréf og sagðist vilja
fullnema sig í fræðum hans.
Það vildi svo vel til að hann
vantaði nema.
Gert Sörensen hefur sér-
hæft sig í brúðkaupstertum,
sykurskreytingum og ólíkleg-
ustu sérpöntunum. Fólk kemur
til hans meö furðulegustu hug-
myndir, svo sem líkön af bygg-
ingum, og biður hann að búa
til nákvæma eftirlíkingu í tertu-
formi, sem hann gerir því að
ekkert vex honum í augum.
Hann hefur aldrei tekið meira
en einn nemanda í einu og
Linda er þriðji neminn sem
hann hefur útskrifað. Við vild-
um vita hvað hún var helst lát-
in gera í náminu.
„Ég var aðallega í tertum,"
segir hún. „Brúðkaupstertum
og öllum sérlöguðum tertum,
desertum. Gert hefur sent mig
á ýmsar kynningar sem hafa
verið í Danmörku á hans veg-
um svo aö ég hef farið víða,
bæði ein og með honum, til
dæmis þegar stórar veislur
hafa verið settar upp.“
Y ^ ■
f t* m ■r
Sykursprautuð brúðkaupsterta með þrem kremtegundum innan í ásamt botnum, hnetum og ávöxtum. LJÓSM.: binni
MEISTARAVERK
í NÝJUM STÍL
Hún er svo til nýkomin heim
en hefur þegar stofnað sitt eig-
ið bökunarfyrirtæki þar sem
hún sérhæfir sig í alls kyns
tertum við hátíðleg tækifæri
enda bakar hún ekki fyrir al-
mennan markað og því er vart
hægt aö tala um „bakarí" þar
sem hún er annars vegar. Hún
hefur lagað tertur fyrir ferming-
ar og veislur á Hótel Holiday
Inn, en hún kom einmitt til
landsins um svipað leyti og
fermingarvertiðin hófst í ár.
Hún segist geta útbúið fyrir-
36 VIKAN 9. TBL. 1991
C
o
œ
jj
>
o
Kransaköku-
horn með
heimalöguðu
konfekti, í
brúðkaups-
veisluna og
fermingar-
veisluna.
taks fermingartertu með
þriggja daga fyrirvara en sé
pöntuð brúðkaupsterta hjá
henni verður þaö að gerast
með aö minnsta kosti tíu daga
fyrirvara, enda eru tertur henn-
ar mjög glæsilegar.
„Terturnar mínar eru allt
öðruvísi byggðar upp en tíðk-
ast hefur fram að þessu hér á
landi," segir hún. „Inni I brúð-
kaupstertunum eru alls konar
krem og ef fólk óskar eftir ein-
hverju sérstöku þá fæst það.
Svo er klætt með marsípan og