Vikan - 04.05.1991, Blaðsíða 54
„Það er mildu meira
en að segja það að fara
út í svona og klára það"
- segir Guðmundur Karlsson, sem stundaði nám í Þýskalandi
Guðmundur Karlsson
íþróttafræðingur stund-
aði ném við íþróttahá-
skólann í Köln í Þýska-
landi. Hann er núverandi
handhafi ís-
landsmets í
sleggjukasti
og segist
eiga nóg eftir
enn, en nán-
ar um það síðar. Við
skulum snúa okkur að
námi Guðmundar og
högum hans í Þýska-
landi.
Eg varð stúdent frá Flens-
borgarskólanum í Hafn-
arfirði 1982, um jól, þá
ekki nema 18 ára þar sem ég
var aðeins á undan í skóla. Ég
hafði alltaf verið mikið í íþrótt-
um og vildi komast í nám á því
sviði. Ég hafði ekki áhuga á að
fara í iþróttakennaraskólann
að Laugarvatni og hafði heyrt
um skóla í Bandaríkjunum og
einnig í Noregi en hafði veður
af því að Jón Diðriksson frjáls-
íþróttamaður væri [ Köln og
fékk upplýsingar um skólann
frá honum. Ég sótti síðan um
og fékk inni í skólanum, skellti
mér út 21. mars ’83 og vissi
ekkert hvað ég væri að fara út
í. Gott dæmi um hvað maður
var lítill í þessari miljónaborg
kom þegar upp á brautarstöð-
inni þar sem ég átti von á aö
verða sóttur. En enginn kom.
Ég beið þarna í tvo tíma og þá
var farið að fara um mig því
þarna var alls konar pönklið og
svoleiðis. Ég var með heimilis-
fangið hjá Jóni, ákvað að taka
leigubíl og var 30 mínútur á
leiðinni þangað. Ekki nóg með
það heldur reif ég buxurnar
um leið og ég settist inn í
bílinn, frá mitti og niður úr,
þannig að ég var hálfaum-
ingjalegur strax á fyrsta degi
en það rættist nú úr þessu
öllu.“
Þetta voru sem sagt fyrstu
kynni Guðmundar af Þýska-
landi og við vindum okkur yfir í
námið og daglegt amstur, lífs-
kjör og lífshætti með tilliti til
námslána.
„Konan mín, Björg Gilsdótt-
ir, kom út tíu dögum á eftir mér
og var með mér úti. Nú, ég fór
á þýskunámskeið um sumarið
og síðan í skólann um haust-
ið. Ég fór að æfa frjálsar og
lí 1 N 1 lílh]l álí *- ,1,'' *' ''' íofHj ”*•> .*»l!l SÖKðW- AJUM ZEiÐ FiSKu/C TÍL Hrskö
' ' ' ’ * ■** *** 5T/5F LUfJO H-UCi
1 ....
1 "OL- STofol IbBiAJ skst. (\ULf\ A/EFui HAKK4/{ A/Jbi AMbi Hwa/O S- A/flFA/ FéLACc i
HúÐ IboR&u*) T Z N > . /
EVÖö Turjuft * > > tr
FaGL- 3 —v 1/AR.-B; /FvOf' íRFi&i ' > y / . /
y l/ e —v tr
EK/O EUsKliR. Ku$/< 6" /f> >
/ i 3 y $ io T <f IVlÍlDfr
54 VIKAN 9. TBL. 1991
Lausnarorö í síðasta blaöi 1 -4: ÁRNA