Vikan - 04.05.1991, Blaðsíða 15
en sumir vilja matarveislur þótt
þær séu mun sjaldgæfari. Þau
brúðhjón sem halda veisluna á
Loftleiðum fá brúðarsvítuna
endurgjaldslaust ásamt freyði-
vínsflösku og ávaxtakörfu sem
bíöur þeirra í svítunni. Kaffi-
hlaðborð kostar annars 995 kr.
á mann svo það er áríðandi að
vita hversu margir koma í
veisluna. Freyðivín er ekki
innifalið í verðinu né hljóð-
færaleikari en að sjálfsögðu er
hvort tveggja útvegað sé þess
óskað.
„Okkur berast pantanir langt
fram í tlmann," segir Lovísa
Steinþórsdóttir veitingastjóri.
„Við höfum fengið pantanir al-
veg fram í ágúst, en fólk giftir
sig líka á fleiri árstímum, til
dæmis um jól og áramót."
Þess má geta í leiðinni að
brúðhjónin ætla í brúðkaups-
ferð til Lúxemborgar og ferð-
ast að sjálfsögðu með Flug-
Ieiðum sem er eigandi Hótel
Loftleiða og Hótel Esju. □
Á vegum Ljósmyndastofu
Reykjavíkur er tekið mikið af
iðnaðarljósmyndum og mynd-
um úr lofti fyrir skipulagsyfir-
völd en þarna er líka gert við
gamlar Ijósmyndir, stækkað
eftir mismunandi vel eða illa
förnum filmum fyrir fólk og allt
gert sem nýtt; handstækkað,
litir lagfærðir og ýmislegt ann-
að gert. En nú snýst málið um
brúðarmyndatöku. Þá er Þór-
dís Ágústsdóttir kölluð til. Hún
tekur andlitsmyndir, svo sem
barnamyndir, fermingarmyndir
eða brúðarmyndir.
Ljósmyndastofur hafa átt í
samkeppni við myndbönd og
hraðframkallanir á síðustu
árum. Fólk vill fá myndir sínar
framkallaðar samdægurs og
getur fengið stækkanir þar að
auki. Það tekur hins vegar
heila viku að fá myndir af Ijós-
myndastofu en þar fylgir aftur
á móti ýmislegt með í kaupun-
um. Myndirnar eru afgreiddar
í heilmiklu albúmi, þær eru
„redúseraðar" ef á þarf að
halda, það er að segja bólur
og ör eru fjarlægð ef fólk óskar
eftir því. Þær eru handstækk-
aðar og litirnir eru greindir sér-
staklega, enda er legið yfir
hverri einustu mynd. Með lit-
greiningartækinu er hægt að
lífga heilmikið upp á myndir
sem hafa komið leiðinlegar út
úr hraðframköllun þar sem öll-
um myndum er gert jafn hátt -
eða lágt - undir höfði.
Um þessar mundir er vin-
sælt að láta taka svart/hvítar
andlitsmyndir, sérstaklega
meðal yngra fólks. Það biður
meira að segja um svart/hvítar
passamyndir.
„Annars er of lítið um að
miðaldra fólk komi í tækifæris-
myndatökur," segir Emil Þór
Sigurðsson, aðaleigandi Ijós-
myndastofunnar, „nema þá að
það sé að sækja um inn í ein-
hvern félagsskap og verði því
að eiga mynd. Passamyndir
eru eingöngu teknar á polar-
oid-filmur núorðið. Fyrir fimm-
tán árum voru þær teknar á
svart/hvíta filmu og fólk náði í
þær daginn eftir. Þá var búið
að númera þær og setja í
spjaldskrá. [ dag eru engar
filmur til af svona myndum. Ef
við tökum brúðarmyndir eru
allar myndirnar afgreiddar í
stærðinni 13x18 cm. Ferm-
ingarmyndir eru 10x13 cm
auk tveggja stækkana sem
eru 13x18 cm.“
Og svo er auðvitað hægt að
láta útbúa til dæmis þakkar-
kort með mynd og texta eftir
brúðkaupið eða önnur tæki-
færi. □
Sjihun iim tiö
skrcvlti kirkjimtL
bíliiin otj imliistilinii
BERGIS hf.
S. 91-621807
9.TBL.1991 VIKAN 15