Vikan - 04.05.1991, Page 10
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON
Guðrún Magnúsdóttir leggur
síðustu hönd á skreytinguna í
Hallgrímskirkju en áður hefur
hún t.d. sett látlausar en fallega
blómakörfur á kirkjugólfið
meðfram bekkjunum.
SKREYTINGIN
Rómantíkin hefur lengi
fylgt mannkyninu og
hefur alltaf verið því
meiri sem siðmenningin hefur
orðið þróaðri. Fyrir nokkrum
öldum virtist hún mest áber-
andi meðal hefðarfólks en hef-
ur alltaf stungið sér niður með-
al allra stétta þjóðfélagsins
þegar aðstæður hafa leyft
það. Á vissum tímum menn-
ingarsögunnar virðist róm-
antíkin dragast saman og á
öðrum tímum á hún það til að
flæða yfir allt. Svona hefur það
alltaf verið. Stundum hefur
hún þótt púkó en í annan tíma
hefur þótt púkalegt að vera ó-
rómantískur. Nú er rómantíkin
aftur komin í hámark eftir
nokkurra áratuga lægð eins og
sennilega sést best á tískunni,
viðfangsefnum kvikmynda og
dægurlagatexta auk vaxandi
tíðni viðhafnarbrúðkaupa.
Guðrún Magnúsdóttir
skreytihönnuður hjá Bergís
hefur sérhæft sig í skreyting-
um fyrir brúðkaup; kirkjur,
veislusali, háborð eða bílinn.
Svona skreytingar hafa ekki
tíðkast mikið hér á landi þótt
þær þyki sjálfsagðar víða er-
lendis. Á Bretlandseyjum eru
viðhafnarbrúðkaup svo glæsi-
leg að þar klæðast háborðs-
gestir fatnaði sem eingöngu er
notaður við slík tækifæri.
Guðrún hefur lagt stund á
svona skreytingar síðastliðin
tvö ár og er því brautryðjandi á
þessu sviði hér á landi og
þetta hefur mælst vel fyrir.
Hún hefur aldrei auglýst starf-
semi sína en þetta hefur
spurst út og er orðið vinsælt.
Það er töluvert stúss í kring-
um þetta. Hún þarf að vita
hvernig brúðurin verður
klædd, hvort hún veröur til
dæmis meö brúðarmær og
hvernig vönd hún er með, til
að geta samræmt skreyting-
una við brúðhjónin og kirkjuna
og/eða veisluna. Hún notar
silkiblóm, borða og annað til-
heyrandi og það hefur jafnvel
komið fyrir að hún hefur sér-
staklega skreytt kampavíns-
glös fyrir veislur. Svona
skreyting má samt ekki vera
yfirþyrmandi enda er hlutverk
hennar fyrst og fremst að
skapa þægilega stemmningu.
„Frumraun mín i þessu,“
segir Guðrún, „var þegar ég
skreytti allt frá upphafi til enda
í brúðkaupi bróður míns. Fólk
talaði um að andrúmsloftið
væri rómantískt og þannig á
það einmitt að vera. Auðvitað
var þetta hefðbundin kirkjuat-
höfn með söng og öðru en
þetta var eins konar undirspil
út af fyrir sig.“
Kirkjur eru auðvitað misjafn-
ar að stærð og útliti, að ekki sé
nú talað um margbreytileika
brúðhjónanna. Það þarf því að
panta svona skreytingu með
viku fyrirvara. Guðrún þekkir
sumar kirkjur betur en aðrar
og finnst Dómkirkjan til dæmis
eins og sniðin fyrir rómantisk
brúðkaup. Þar eru lokaðir
bekkir og skemmtilegar svalir.
En Ólöf og Magnús ákváðu að
gifta sig í Hallgrímskirkju og
þar hafði Guðrún ekki unnið
áður. Hún varð því að fara
þangað, ásamt brúðhjónun-
um, og leggja höfuðið í bleyti.
Kirkjan er stór. Hvað kæmu
margir gestir? Yrðu fleiri brúð-
kaup í kirkjunni sama dag?
Það kemur fyrir að svo mörg
brúðkaup eru í sömu kirkjunni
að hún hefur þurft að byrja að
fjarlægja skreytingu um leið og
síðasti gestur er farinn út og
um leið hefur aðstoðarmann-
eskja hennar byrjað að undir-
búa næstu skreytingu. Það
hafa kannski liðið 10-15 mín-
útur á milli brúðkaupa og þá er
áríðandi að hafa allt þaul-
skipulagt. En brúðhjónin eiga
ekki að hafa áhyggjur af því.
Þegar stóra stundin rennur
upp ganga þau inn kirkjugólfiö
og allt er eins og best verður á
kosið.
I flestum tilvikum eru sömu
litasamsetningar notaðar í
bíla- og veisluskreytingunni og
notaðar eru í kirkjunni. Guðrún
minnist brúðhjóna sem vildu
hafa allt í hvitum og bláum
tónum og þá var auðvitað farið
eftir þvi þótt það væri fremur
óvenjulegt. Fram að þessu
hefur hún aðeins starfað við
þetta á Reykjavíkursvæðinu
en hún segir að ekkert sé því
til fyrirstöðu að hún skreyti úti
á landi - annað en kostnaður-
inn við ferðina og farangurinn;
silkiblómin, vendina, körfurn-
ar, slaufurnar og borðana.
Hvað kosta svo að leigja
svona skreytingar? Það fer
meðal annars eftir stærð kirkj-
unnar og umfangi veislunnar.
Kirkjuskreyting getur kostað
frá 4500 kr., veisluskreyting
frá 2000 kr. Auðvitað getur sá
kostnaður aukist ef mikið er
haft við og kirkjan er stór, svo
að þeir sem hafa áhuga ættu
að snúa sér beint til Guðrúnar
í Bergís. Símanúmerið hjá
henni er 62 18 07.
10 VIKAN 9.TBL.1991