Vikan - 04.05.1991, Side 31
Þú losnar aldrei við barnið í
þér. Það sprettur fram líkt og
skrattinn úrsauðarleggnum og
við fáum við ekkert ráðið. Án
þess að vita það hefur þú oft
beðið um það sjálf! Þessi var
góður-eða hvað? Ég heyri nú
þegar ótal mótmaeli.
Augustus (Gus) Napier hef-
ur gefið út þykka bók um ein-
mitt þetta efni. Ásamt Margar-
et konu sinni hefur hann rann-
sakað þetta árum saman. Ótal
fjölskyldur hafa leitað til hans
vegna þessa. I flestum tilfell-
um er ástæða ósættis milli
hjóna vegna hluta sem gerð-
ust eða gerðust ekki þegar
þau voru lítil og það var ann-
aðhvort hjá öðru þeirra eða
báðum!
Gus notar gjarnan sitt eigið
hjónaband sem viðmiðun. Til
dæmis segir hann frá frídegi
sinum, þegar hann spilaði
matador við konu sína og
börnin þrjú. Hann spilaði um
stund en brátt fannst honum
hann vera útundan. Hann
heyrði þau tala saman en þau
yrtu ekki á hann. Hann varð
öskureiður, stökk upp og öskr-
aði. Síðan tók hann á sprett út
í skóg. Þar settist hann undir
tré og lét reiðina sjatna. Þetta
er hlægilegt, hugsaði hann, en
tilfinningarótið sagði annað.
Þegar hann kom til baka var
konan hans einnig öskureiö
yfir athæfi hans. Þau settust
niður og ræddu málið. Gus
komst að ástæðunni. Þegar
hann fletti myndaalbúminu
fann hann mynd af sér frá þvf
hann var tólf ára.
Hann mundi hversu ein-
mana hann var þá og fannst
hann útundan. Sonur hans var
nú tólf ára og það kallaði fram
þessa reiði. Konan - af hverju
var hún reið? Jú, þegar hún
var lítil rifust foreldrar hennar
oft. Faðir hennar hvarf oft að
heiman eftir það og í hvert
sinn horfði hún á eftir honum,
hrædd og reið yfir hegöun
hans en af því henni þótti
vænt um hann og var hrædd
um að hann kæmi ekki aftur
sagði hún aldrei neitt. Hún
byrgði óttann og reiðina inni
og síðan braust þetta út af
krafti löngu seinna.
Var hún þá að reyna aö ná
þessu fram með því að kveikja
í mér? Svarið er já, því það
gerum við. Við giftumst -
ómeðvitað - manneskju sem
við getum hefnt okkar á, ef svo
má að orði komast. Af hverju
gerum við það? Jú, til að útkljá
, málið. Það var of erfitt þegar
við vorum lítil og af því mót-
i leikarinn er nýr er hægt að
hafa „handritið" öðruvísi og
lagfæra skaðann sem það olli
okkur.
Þá kemur stóra vandamálið.
Makinn skilur ekki þennan
ofsa út af smámunum. Hvern-
ig á hann að gera það þegar
þú skilur þetta ekki sjálf.
Kannski hefur hann svipuð
vandamál að baki sér og nú
tekur hann það út á okkur!
Hjálp! Er nokkur furða aö
hjónaskilnðir séu tíðir!
( staðinn fyrir að horfa á
galla hins aðilans ættum við
að líta betur á okkur sjálf. Það
er nefnilega alls ekki sjálfgefið
að annað hjónaband verði
öðruvísi, þvert á móti eru lík-
urnar á endurtekningu miklar.
Þetta lítur út fyrir að vera ein-
falt. Ef þú skilur bara sjálfan
þig þá er allt í lagi? Nei, það er
ekki svona einfalt því ef það
væri svona auðvelt hefði ég
ekkert að gera!
í mörgum tilfellum sem
þessum þarf fólk á aðstoð sér-
hæfðra að halda en þiö getið
líka hjálpað ykkur sjálf ef
vandamálið er ekki orðið of
stórt. Við getum reynt að kynn-
ast aðeins barninu innra með
okkur, hugsa aftur á bak,
grannskoða fortíðina og finna
samstæðu þegar illa árar í
hjónabandinu.
Spyrjið ykkur sjálf: Því varð
ég svona reið út af þessu?
Þetta var bara smámál og alls
ekki svona slæmt - er það?
Það er mikilvægt að geta
talað um þetta við maka sinn.
Leggja spilin á borðið og ræða
þetta vel. Finnið ástæður og
orsakir og kannski segir hann:
Aha, þetta kannast ég við...
Jæja, hugsar þú núna og
bölvar mér! Eiga nú foreldrar
mínir að vera blórabögglar út
af skapinu í mér? En kannski
er eitthvert sannleikskorn í
þessu. Það er enginn fullkom-
inn, ekki einu sinni foreldrar,
hversu mjög sem við trúum
þeim samt í blindni.
Hafðu þetta í huga er þú
gengur inn kirkjugólfið og
vertu viðbúin öllu. Það kemur
að því eftir hveitibrauðsdag-
ana að þið hvæsið hvort á
annað. Og báðum finnst ykkur
hinn aðilinn barnalegur. Það er
einmitt rétta orðið! Sá þáttur
leikritsins þegar þið sættist er
nú alltaf besta atriðið. Gangi
ykkur vel og ég óska ykkur
allra heilla í framtíðinni.
Ef þið viljið lesa meira um
þetta heitir bókin The Fragile
Bond. Höfundurinn er August-
us Y. Napier og forlagið, sem
gaf bókina út, heitir Harper &
Row. □
Anægjustundin varír að eilífu.
p jr
Ljósmynd
geymir
og gleður
SIÐUMÚLA 22
TÍMAPANTANIR í SÍMA
680676
í