Vikan - 04.05.1991, Side 60
MEÐ MAKE-UP FOREVER
UMSJÓN OG FÖRÐUN:
LÍNA RUT KARLSDÓTTIR
HÁR: HÁR-EXPO
LJÓSMYNDUN;
SIGURÐUR STEFÁN JÓNSSON
OG MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
TEXTI: HELGA MÖLLER
Anna Toher heitir stúlkan sem Lína Rut farðar og fegrar
að þessu sinni. Anna, sem er 31 árs, átti leið inn í versl-
unina hjá Línu Rut og átti ekki afturkvæmt fyrr en hún
hafði fallist á að sitja fyrir. Raunin hefur verið sú að
bréfin, sem Línu Rut berast, eru flest frá stúlkum á aldrinum
14 til 23 ára. Til að koma víðar við i aldursskalanum hvetjum
við konur, sem eru komnar af unglingsárum, til að vera með
og senda okkur bréf. Eins og áður er margsagt þarf að fylgja
mynd af viðkomandi konu ómálaðri. Og um leið má benda á,
sökum nokkurra fyrirspurna, að Lína Rut gerir ekkert til að láta
fyrirsæturnar líta verr út á myndunum sem birtast af þeim ó-
máluðum. Þær eru hreinlega myndaðar þegar búið er að taka
allan farða af andlitinu, áður en Lína Rut hefst handa við förð-
unina.
Þar sem eingöngu er verið að taka andlitsmyndir skiptir vaxt-
arlag fyrirsætunnar ekki máli en Lína Rut kýs að þær sem taka
þátt í þessu hafi grannt andlit,
En snúum okkur að meðfylgjandi myndum. Á svart-hvítu
myndinni er augnmálningin í svörtum og gráum litum en á
litmyndinni eru hins vegar notaðir bleikir litir og fegurð fyrir-
sætunnar dregin fram, sem Lína Rut kallar „beauty make-up“.
Snyrtivörurnar eru sem áður frá Make-up Forever.