Vikan - 04.05.1991, Qupperneq 70
TEXTI: KRISTJAN LOGASON — | ff LJÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
urssonar veröa í bili teknir upp
nýir stjórnarhættir á Aðalstöö-
inni og enginn nýr útvarpsstjóri
ráöinn. Til að fá svar við því
hvort þá yröi ekki allsherjar
ringulreið á stöðinni kvaddi ég
til spjalls þá Pétur Valgeirs-
son og Ólaf Þórðarson. Um-
ræðuefnið er framtíðarstefna
og stjórnun Aðalstöðvarinnar.
Tónlistarstefnu Aðalstöðv-
arinnar hefur ekki verið breytt
en það kom þó í hlut Ásgeirs
Tómassonar að fríska aðeins
upp á tónlistina. Áðalstöðin
70 VIKAN 9. TBL.1991
Ihuga margra eru páskarnir
tákn um vorið og breytt
veðurfar. Brúnin léttist eftir
síðasta hretið sem kemur um
páskana og menn hugsa með
gleði til sumarsins. Síðasta
hret vetrarins gekk yfir Aðal-
stöðina þegar Helgi Pétursson
hætti sem útvarpsstjóri og
sneri sér að störfum í
forsætisráðherra. Af því tilefni
lögðust Aðalstöðvarmenn
undir feld yfir páskana og hug-
uðu að framtíðinni. Mánudag-
inn 8. apríl skriðu svo undan
feldinum menn með nýja
dagskrá handa Aðalstöðinni
og felur hún í sér nokkrar
breytingar. Þó eru menn ekki
fyllilega komnir undan feldin-
um því við og við er skotist þar
undir aftur til að huga
sumardagskrá stöðvarinnar.
Með brotthvarfi Helga Pét-
hefur frá upphafi verið þekkt
fyrir að spila mjög rólega og
notalega tónlist og því verður
ekki hætt. Meginuppistaða
tónlistarinnar hefur verið lög
frá 1950 og fram til dagsins í
dag.
„Viö kappkostum náttúrlega
að spila góða tónlist og lög
sem fólk vill heyra því við
erum að spila fyrir fólkið en
ekki fyrir okkur. Það sem við
vorum að spila af þessum lög-
um. voru rólegri lögin en núna
erum við að spila hraðari lög
frá þessum tíma. Yfirbragðið
er orðið frísklegra og við erum
að reyna að passa okkur á því
að fara ekki yfir markið. Spila
ekki of brjálað. Halda okkur við
góðu tónlistina."
Pétur: „Ég fæ mikla og góða
svörun frá þeim aldurshóp
sem hefur mjög gaman af
þessari tónlist - sem við
myndum kannski kalla eldri
tónlist. Það eru hlustendur
sem við viljum ekki missa,
hlustendur sem hafa verið
dyggir stuðningsmenn stöðv-
arinnar."
Aðalstöðin er í stanslausri
endurskoðun eins og allar út-
varpsstöðvar eiga að vera.
Reynt er af fremsta megni að
lagfæra, breyta og bæta svo
dagskráin verði sem best úr
garði gerð.
Ólafur: „Við leggjum mikla
áherslu á að dagskrárgerðar-
menn, sem hér vinna, séu vel
máii farnir. Þaö eru ekki allir
sem hafa þá kosti en fólki er
ekki hent út heldur er það að-
stoðað við að bæta sig. Annað
sem skortir hjá fólki er einnig
reynt að laga. Ekki hefur verið
fylgt þeirri stefnu, sem verið
hefur hjá öðrum, hvort sem er
hjá Ríkisútvarpinu eða þess-
um svokölluðu frjálsu stöðv-
um, að ef einhver er ekki góð-
ur þá er honum hent út. Við
viljum ekki vinna svoleiðis."
Þrátt fyrir vinsældir Rásar
tvö telja Aðalstöðvarmenn að
þeir hafi einna mesta hlustun á
kvöldin og kemur það vafa-
laust til af öllum þeim talmáls-
þáttum sem þá eru á dag-
skránni.
Til þess að bæta morgunút-
varpið og gefa Ólafi Þórðar
meira svigrúm, þar sem fyrir-
liggjandi var að hann yrði eins
konar verkstjóri á staðnum,
stakk hann upp á því við Ólaf
Laufdal að ráðin yrði til stöðv-
arinnar Hrafnhildur Halldórs-
dóttir sem nýkomin er heim úr
fjölmiðlanámi. Þetta var gert
gagngert til þess að létta á
Ólafi svo hann hefði meiri tíma
í daglegt amstur stöðvarinnar.
Frh. á næstu opnu