Vikan - 04.05.1991, Qupperneq 73
I
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
JONA RÚNA KVARAN
Frh. af bls. 69
Þegar viö erum aö koma út f
lífið og erum kannski búin að
gera upp viö okkur lífshlut-
verkiö og þaö til dæmis tengist
listum eöa skapandi hlutum
erum viö mjög viökvæm fyrir
allri umfjöllun og gagnrýni. Sú
tegund gagnrýni sem við-
gengst í sumum fjölmiðlum á
verk annarra og þá kannski
unga fólksins, sem er aö stíga
sín fyrstu skref á einhverjum
sviðum, er ekki alltaf höfund-
um sínum til sóma. Það er
mikið vandaverk aö vera
gagnrýnandi á launum vegna
þess aö viðkomandi verður að
hafa mjög næma tilfinningu fyrir
því hvað er ósæmilegt og
hvaö ekki. Eins er óvarkárni í
oröavali, gróft þekkingarleysi,
sleggjudómar, rætni og annar
augljós hálfvitaháttur, sem
sumir gagnrýnendur eru berir
að, nokkuð sem saknaðar- og
sársaukalaust mætti hverfa úr
heimi fjölmiðla.
Lengi hefur tíðkast að fólkið
í landinu ætti aðgang að les-
endadálkum blaðanna og er
þaö vel. Það notar sér þennan
möguleika óspart og gagnrýnir
eitt og annað sem augljóslega
mætti betur fara. Hitt er svo
annað mál að þessir sömu
dálkar dagblaðanna hafa ekki
fyllst á sama hátt með eins
augljósum krafti þegar auð-
veldlega væri hægt að benda
á það sem vel er gert og til
fyrirmyndar verður að teljast f
þessu annars ágæta þjóð-
félagi.
Þetta sama á við um alla
aðra fjölmiðla sem aukið hafa
möguleika landans til að koma
skoðunum sínum á framfæri.
Við nöldrum mikið og erum
fljót að gagnrýna og benda á
það sem miður fer í athöfnum
og verkum annarra en gleym-
um að þakka það sem vel er
gert og verður að teljast ávinn-
ingur fyrir flest okkar.
Stjórnmálamenn eru til-
neyddir, að því er þeirtelja, að
gagnrýna verk hver annars og
fátt virðist um gagnlegar fram-
kvæmdir hjá andstæðingun-
um. Það verður þó að teljast
mjög furðuleg niðurstaða ef
grannt er skoðað. Alþýða
manna myndi aldrei velja sem
fulltrúa sinn á Alþingi Islend-
inga fullkomlega misheppnað-
an einstakling. Til þess er hún
of skynsöm. Varla er því hægt
að ætlast til að við trúum því
að einungis þeir sem telja sinn
flokk þann besta geri það
sem rétt er og merkilegt hverju
sinni en hinir ekki neitt. Þetta
er fullkomlega út í loftið og fár-
ánlegt yfirleitt að reikna meö
að nokkur venjuleg manneskja
sætti sig við svona barnalega
og ósmekklega matreiðslu,
væntanlega til þess ætlaða að
ganga í augu kjósenda.
Hitt er svo annað mál að við
sem ekki erum í stjórnmálum
getum verið mjög leiðinleg og
ósanngjörn í garð stjórnmála-
manna og erfitt fyrir þá að gera
okkur öllum til hæfis svo vel
fari. Við verðum vitanlega að
sjá hvað þessir frammámenn
þjóðfélagsins gera vel en ekki
bara gagnrýna þá. Margt sem
er ávinningur fyrir alla alþýðu-
menn er runnið undan rifjum
einmitt þessara manna og
kvenna sem við treystum á
sínum tíma fyrir þjóðarbúinu
og er ágætt að minnast þess
stundum og gleðjast yfir.
Gagnrýni er nauðsynleg svo
fremi að henni fylgi augljós
velvilji og þroski. Við verðum
örugglega stundum þakklát
fyrir að hafa verið bent á eitt
og annað í fari okkar og verk-
um sem betur mátti fara. Þó
höfum við kannski ekki viljað
kannast við það þegar gagn-
rýnin kom fram af því að hún
gerir okkur kannski viðkvæm í
fyrstu.
Það er vitanlega ekki stór-
mannlegt að geta ekki skilið
að við hljótum að gera hlutina
misvel eftir atvikum og ekkert
við það að athuga annað en
að gera bara betur næst. Það
ætti vissulega að vera til-
hlökkunarefni fyrir þau okkar
sem viljum vera í hópi sigur-
vegaranna og njóta alls þess
sem er jákvætt og lífið hefur
svo sannarlega upp á að
bjóða.
Reynum því, elskurnar, að
taka alla óþarfa gagnrýni til al-
varlegrar endurskoðunar en
lærum jafnframt að sætta okk-
ur við gagnrýni sem er kær-
leiksrík og heiðarleg og miðast
þrátt fyrir allt fyrst og fremst við
að gera veg okkar sem mest-
an og bestan. □
Vinsamlega handskrifið bréf til Jónu Rúnu og látið fylgja fullt nafn
og kennitölu, ásamt dulnefni. Svörin byggjast á innsæi Jónu
Rúnu og rithandarlestri og þvi miður er alls ekki hægt að fá þau
i einkabréfi.
Utanáskriftin er:
Jóna Rúna Kvaran, Kambsvegi 25, 104 Reykjavík.
M
RAKARA- 0G HÁRGREIÐSLUSTOFAN
GREIFIM
HRINGBRAUT 119 S 22077
Hársnyrtistofan
Hár-Tískan
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
SÍMI 50507
Erna Guðmundsdóttir
Porgerður Pálsdóttir
Kristín Kristjánsdóttir
HA RGREIÐSL US TOFA N GRESIKA
Rauöarárstig 27-29, 2. hæö
Sími 22430
BRÚÐARKJÓLAR
BRÚÐARMEYJAKJÓLAR
SKÍRNARKJÓLAR
SMÓKINGAR
KJÓLFÖT
BRUÐARKJOLALEIGA
HULDU ÞÓRÐARDÓTTUR
HJALLABREKKU 37 SÍMI 40993
«Wf 13314
kunsl
X
RA/CARA- & HÁRqRE/ÐSMSTDFA
HVERFISGÖTU 62-101 REYKJAVÍK
9. TBL. 1991 VIKAN 73