Vikan - 09.01.1992, Blaðsíða 28
VIKAN R/ÍÐIR VIÐ ARNRÓR HELGASON,
„Hverjum einstaklingi
fylgir ákveðin útgeislun"
ð undanförnu hefur mikil umræöa
Æ\ veriö í gangi um sambýli fatlaðra í
\ Fteykjavík. Ástæöan er sú aö íbúar
f“^\ í grennd við sambýli geðfatlaöra í
# m Seljahverfi og meðferðarheirnili
fyrir einhverf börn á Seltjarnarnesi hafa mót-
mælt staðsetningunni harölega. Sem formaður
Öryrkjabandalags íslands hefur Arnþór Helga-
son látið þessi mál til sín taka. Okkur langaði
að fræðast lítið eitt um baráttumál samtakanna
um þessar mundir - og kynnast persónunni á
bak við formanninn, sem hefur ekki setið auð-
um höndum um dagana. Því fór tíðindamaður
Vikunnar á fund Arnþórs einn dimman dag
seint á aðventu. Þegar knúið var dyra var hann
að keppast við jólaundirbúninginn ásamt Elínu
Árnadóttur, eiginkonu sinni.
„Þegar um jafnstór samtök og Öryrkja-
bandalag íslands er að ræða eru baráttumálin
mörg og misjöfn. Þau mótast mjög af ástand-
inu í þjóðfélaginu á hverjum tíma, meðal ann-
ars þeirri ríkisstjórn sem er við völd hverju sinni
því að til dæmis hafa fjárlögin auðvitað mikið
aö segja fyrir samtök af þessu tagi. Segja má
að Öryrkjabandalagið hafi orðið eins konar
hagsmunagæslusamtök í æ meira mæli á
sama hátt og verkalýðshreyfingin - þó með
þeim hætti að við höfum ekki verkfallsrétt.
Styrkur okkar er fólginn í þvi að hafa sem best
samskipti við stjórnvöld. í stað verkfalla og að-
gerða af því tagi beitum við mætti auglýsinga
og samtakamáttar í æ ríkari mæli. Þannig hef-
ur tekist að skapa samtökunum sess sem virkri
fjöldahreyfingu sem tekið er mark á.
JAFNRÉTTI OG JAFNRÆÐI
Helstu baráttumál Öryrkjabandalagsins snúast
meðal annars um að tryggja áframhaldandi fé
til uppbyggingar á sviði málefna fatlaðra í land-
inu. Það má til dæmis benda á að þegar Ör-
yrkjabandalagið komst á snoðir um að í bígerð
væri að færa þessi verkefni til sveitarfélag-
anna, án þess að þau fengju til þess aukna
tekjustofna, brást bandalagið mjög hart við og
hefur vonandi tekist að hrinda þessari atlögu.
Við berjumst jafnframt fyrir aukinni atvinnuþátt-
töku fatlaðra á almennum vinnumarkaði og
höfum haft afskipti af menntunar- og þjálfunar-
málum fatlaðra. Síðan má geta þess að
bandalagið hefur tekið þátt í endurskoðun laga
um málefni fatlaðra og stóð meðal anparra að
gerð þess frumvarps sem nú liggur fyrir stjórn-
arflokkunum og verður væntanlega lagt fram á
Alþingi innan skamms. Þar eru ýmis nýmæli og
má þar nefna að gert verður ráð fyrir að heimilt
verði að veita fötluðu fólki liðveislu á almenn-
um vinnumarkaði. Þá er jafnframt kveðiö á um
að heimaþjónusta við fatlaða verði aukin og er
það reyndar í samræmi við frumvarp um fé-
lagslega þjónustu sveitarfélaga, sem lagt var
fram á síðasta vetri.
Arnþór Helgason er alvarlega þenkjandi og ákveðlnn en gamansamur þegar svo ber undir. „Nú hefur
það gerst að tónlistaráhugi minn hefur farið fram yfir það sem kunnátta mín leyfir í tónsmiðum."
24 VIKAN l.TBL. 1992