Vikan - 09.01.1992, Page 35
Hin árvissa setning breska þingsins er dæmi um þá viðhafnarsiði sem tengjast breska konungsdæm-
inu. Slíkur áhugi á hefðum og helgisiðum er yfirleitt tengdur Steingeitinni - rísandi merki Elísabetar
II Englandsdrottningar.
þig núna og þannig ferðu í gröfina. Þetta er
eins og ógæfuspá en hún er ekki eins svört og
hún hljómar. Önnur leið til að lýsa eðlislægu
eirðarleysi þínu er að segja að þú viljir þróast,
læra, vaxa og látir þér ekki nægja unnin afrek.
Það stofnar sál þinni í hættu að vinna með
þessa orku. Þú finnur á þér hvað þú gætir
verið, sérð fyrir þér hvernig þú litir út ef þú vær-
ir vísari, hreinni, tærari. Jafnskýrt sérðu sjálfan
þig eins og þú ert, með alla þína galla og ann-
marka. Andstæðurnar ættu að veita þér inn-
blástur. En sé um afbökun að ræða sekkur þú
niður í sjálfsgagnrýni, sektarkennd og lam-
andi, sjálfskapaðar takmarkanir. Hið sjúklega
ástand birtist síðan út á við sem gagnrýninn og
smásmugulegur persónuleiki.
Lexía þín í lífinu er að læra sjálfsviöurkenn-
ingu. Hana ert þú að læra í erfiðasta sálfræði-
lega umhverfi sem um getur: innan heiðarlegs
huga.
LEITAR UPPI VILLUR OG VEIKLEIKA
Fólk með tungl í Meyju er sundurgreinandi að
eðlisfari, stööugt í leit að veikleikum og göllum.
Fólk getur misskilið það og álitið þig „neikvæð-
an“ eða „ofur-gagnrýninn“. Það er vel mögu-
legt aö þú eigir við þau vandamál að stríða en
það á aðeins viö þegar þú ferð illa með þig.
Þegar þú ert heilbrigður er uppbyggjandi þáttur
í skynjunum þínum, eins og þú sért alltaf að
reyna að bæta hlutina. Þetta leiðir af sér að
eina fólkið sem þér líður vel með eru þeir sem
vilja sjá sjálfa sig raunsætt, kalla hlutina réttum
nöfnum og halda áfram að breyta persónuleika
sínum eða aðstæðum á sanngjarnan hátt. Þú
hefur litla þolinmæði með snotrum orðum sem
ekki tengjast einlægum, áþreifanlegum loforð-
um.
Það stuðlar að hamingju þinni að fást við
tómstundastörf eða listsmíðar, eitthvað sem
útheimtir færni, nákvæmni og þekkingu.
Fólk með Meyju rísandi hefur nákvæman og
sundurgreinandi stíl. Greindin geislar af því,
stundum þannig að hún hræðir aðra. Eitthvað
í áru þinni virðist vera að rannsaka allt - og
alla! - leitandi uppi villur og veikleika. Og vitan-
lega finnurðu þá yfirleitt. Það er ágætt en hugs-
anlega þarftu að rækta með þér svolitla hátt-
vísi í því að segja frá uppgötvunum þínum.
Þér þarf að finnast þú góður í einhverju til
þess að þú haldir andlegu jafnvægi. Tækni-
kunnátta ýtir undir sjálfstraust þitt og almenna
vellíðan. Sú leikni getur verið á hvaða sviði
sem er, frá listdansi á skautum til taugaskurð-
lækninga. Á sama hátt líður þér best þegar þú
ert að vinna og þegar starfið, sem þú innir af
höndum, kemur einhverjum að hagnýtu gagni.
UPPLESTUR ÚR HANDBÓK SKÁTA
Steingeitin er einbúinn. Á yfirborðinu er hún
fulltrúi sjálfsaga og meinlætalifnaðar. Á dýpri
hátt táknar hún þróunarþrep er leiða til heilinda
og siðferðisstyrks.
Segi maður sannleikann um Steingeitina
mun hann hljóma eins og upplestur úr hand-
bók skáta. Lykilhugtökin eru: ráðvendni, skap-
festa, siðferði og persónulegur heiður. Þetta
eru þróunarþemu Sjávargeilarinnar. Öll ganga
þau út frá því að viljastyrkur geti ráðið yfir öll-
um öðrum eðlisþáttum okkar, þar með töldum
tilfinningum.
Steingeitin í þér þarf að byrja á því að spyrja
sig gagnrýninnar spurningar: Hver er hæsti
sannleikur sem ég þekki í þeim hluta lífs míns
sem Sjávaigeitin ræður yfir? Eftirleikurinn er
einfaldur - að minnsta kosti er auðvelt að skilja
hann. Lifðu hann bara. Láttu þér hvergi bregða
og gerðu það sem rétt er.
Farðu samt varlega. Það er ekkert að því að
láta tilfinningar í Ijósi ef þær ekki taka ákvarð-
anir fyrir þig. Freististu til að gera eitthvað
syndsamlegt skaltu ekki óttast að minnast á
það. Annars mun hálfur heimurinn álíta þig
dýrling en hinn helmingurinn telja þig
montrass. Og hvorugur helmingurinn kemur i
Ijósársfjarlægð frá hjarta þínu.
TILGANGSLAUS TIL-
FINNINGALEG ÚTLEGÐ
Fólk með sól i Steingeit nærir grunnorku sína
með því sem ávallt er því efst í huga: að ná
langt. Störf þín geta verið opinber - á við að
byggja upp frama sem endurspeglar það besta
í þér - eða þau gætu verið unnin í einrúmi,
eins og að gera það sem rétt er fyrir þig, hljóð-
lega og án tillits til þjóðfélagslegra eða raun-
hæfra þvingana.
Steingeitin er tákn einsetumannsins og í
samræmi við það er einveruþema í lífi þínu.
Það táknar þó ekki einmanaleika. Einvera
Sjávargeitarinnar tengist fremur einkalífi og
því að vera sjálfum sér nógur. Vissulega er þér
hollt að elska; það er þegar þú ert það þurfandi
að þú leiðist út í óþol yfir tilfinningalegri ein-
angrun.
Þú lifir af og endist. Það eru dyggðir og í
erfiðleikum lífsins muntu bera af. Gættu þess
að beita ekki kostum þínum rangt: tjáðu þig
þegar þú ert dapur eða hræddur. Ella kemurðu
þér í tilgangslausa tilfinningalega útlegð.
VIRKI SJÁLFSGETUNNAR
Fólk með tungl í Steingeit hefur sterka lífsþrá
og líflegar tilfinningar - en lendir oft í þeirri
stöðu að það er hættulegt, óviðeigandi eða
siðferðileg spurning hvort eigi að tjá þær. Áhrif-
in minna svolítið á dínamít sem springur í stál-
herbergi. Frá þróunarsjónarmiði ertu í há-
skólanámi í sjálfsaga. Staðreyndin er sú að
andlega ertu kominn á stað á ferðalaginu þar
sem þú þarft að harðna. Til þess að líða vel
þarf þér að finnast þú hafa lagt grunninn að
mikilvægu starfi - langtímafyrirætlunum sem
útheimta einbeitni, ábyrgð og yfirburði. Þó það
sé þverstæðukennt slakar þú á með því að
vinna. Aðgerðaleysi gerir þig taugaveiklaðan
og spenntan, að minnsta kosti ef það stendur í
meira en nokkrar klukkustundir.
Gættu þín á því að byrgja ekki of mikið innra
með þér; stundum er það nauðsynlegt en oft er
ekki svo. Tunglið er tilfinningar og Steingeitin
táknar sjálfsaga: ein túlkun er sú að þú sért að
læra aga viðeigandi tilfinningalegrar sjálfstján-
ingar.
Aðrir bera umsvifalaust virðingu fyrir fólki
með Steingeit rísandi. Af áru þess geislar
hæfni, ábyrgð og ráðvendni. Til þess að vera í
jafnvægi þarftu á stöðugum áskorunum að
halda, ekki glæfrabrögðum - engin þörf á að
vera sá fyrsti sem syndir nakinn yfir Norður-
Atlantshafið. Áskoranir Sjávargeitarinnar eru
allt aðrar: þær tengjast afrekum - á við að ná
langskólagráðu. Eða láta fyrirtæki ganga. Eða
lesa sögu Rómaveldis.
Sleingeitin er einfari. Þú þarfnast tíma út af
fyrir þig. Þú þreytist á of miklum félagslegum
skyldum, þær draga úr rósemi þinni. Um leið
þarftu að gæta þín á því að læsa þig ekki inni
í virki sjálfsgetunnar. Það er leiðin til einmana-
leika. □
l.TBL. 1992 VIKAN 31