Vikan - 09.01.1992, Side 46
TEXTI: KARL PÉTUR JÓNSSON
Hljómsveitin Silfurtónar leggur mikið upp úr fágaðri framkomu og snyrtilegum klæðaburði.
Daníel Haraldsson, söngvari Nýdanskrar.
Nýdönsk og Silfurtónar
þjónudu tyrir altari
Margir hafa þá stefnu að
fara ekki út úr húsi föstu-
daginn þrettánda. Reynslan
hefur kennt mönnum að á
þessum degi gengur allt úr-
skeiðis sem mögulegt er.
Föstudaginn 13. desember
glöddust þó hjörtu guma og
sprunda þvi það kvöld hélt
hljómsveitin Silfurtónar (og
Nýdönsk) miðnæturpopp-
messu á Hótel Borg.
Blaðamaður var forvitinn aö
kynnast þessari merku hljóm-
sveit, Silfurtónum, enda hefur
hún, samkvæmt upplýsingum
frá talsmanni hljómsveitarinn-
ar, gefið frá sér fjölmargar
breiðskífur og smáskífur á
síðustu tuttugu árum. Sam-
kvæmt þessum sama tals-
manni var sveitin stofnuð 29.
ágúst 1971 af nokkrum vinum.
Þeir voru þá allir sex ára. Strax
árið eftir kom út fyrsta plata
Silfurtóna. í kjölfaríð hefur
sveitin gengið í gegnum alla
hreinsunarelda sem íslenskar
hljómsveitir geta lent í, hefur
hætt störfum, byrjað aftur, sótt
á Norðurlandamarkað með litl-
um árangri, misst meðlimi og
ýmislegt fléira sem ekki á
heima í fjölskyldutímariti.
Talsmaður sveitarinnar minnti
að lokum á fjölmarga dægur-
gætu notið einhverrar leið-
sagnar um betrumbætur á
þessu sviði. Til dæmis mætti
byrja á að yngja klæðaskápinn
um fimmtán til tuttugu ár. Flest
efni Silfurtóna er frumsamið
en vert er að minnast ógleym-
anlegrar túlkunar sveitarinnar
á ballöðunni How Deep Is
Your Love sem piltarnir f Bee-
Gees gerðu einnig góð skil á
árum áður.
Blaðamaður verður að viö-
urkenna, þrátt fyrir yfirlýsing-
ar talsmanns Silfurtóna, að
hann hafði ekki heyrt minnst á
Silfurtóna fyrr en fyrir mjög
skömmu og hefur grun um að
sveitin sé ekki eins vel kynnt
og talsmaður hennar vildi vera
láta.
Silfurtónar túlkuöu lag Bee Gees, How Deep Is
Your Love, á eftirminnilegan hátt.
Þess vegna fýsti blaðamann
að vita hvers vegna vel þekkt
sveit á borð við Nýdanska var
í upphitunarhlutverki fyrir Silf-
urtóna. Björn Jörundur Frið-
björnsson varð fyrir svörum:
„Silfurtónar eru skemmtileg-
asta hljómsveit sem við höfum
heyrt í, síðan Ingimar Eydal
var upp á sitt besta. Okkur
fannst ekki annað hægt en að
gera eitthvað til að vekja á
þeim athygli landans. Svo
erum við líka að kynna nýju
plötuna okkar í bland."
Það má segja að lokum að
það tókst ágætlega að vekja
athygli borgarbúa á Silfurtón-
um þvi þrátt fyrir að dagurinn
væri föstudagurinn þrettándi
var húsfyllir á Borginni. □
\ '
lagatitla sem sveitin hefur gerl
ódauðlega; Tungumál tveggja
elda, í dyragættinni, Töfrar og
ýmislegt fleira.
Sveitin viröist leggja upp úr
fágaðri framkomu og snyrtileg-
um klæðaburði, þrátt fyrir að
segja megi að sveitarmenn
Silfurtónar.
„Ein
skemmti-
legasta
hljómsveit
síöan
Ingimar
Eydal var
upp á sitt
besta." ►
cr 1
U
Á J
42 VIKAN 1. TBL. 1992