Vikan - 09.01.1992, Blaðsíða 51
væri mismunandi þjónusta f þessum löndum
var fullyrt að svo væri ekki. Sama fyrirtækis-
stefna væri rekin í öllum löndum. Bíllinn, sem
blaðamaðurinn leigði, var nýr Citroén XM V6.
Þegar búið var að finna út hvernig öryggiskerf-
ið virkaði fór bílinn í gang og af stað var haldið.
Ef íslenskar umferðarreglur giltu í Lúxemborg
hefði ökuskírteinið væntanlega fokið strax á
bílaplaninu. Um leið og komið var út á hrað-
braut var stigið létt á bensíngjöfina og þegar
litið var á hraðamælinn lá hann í 200 km/klst.
Það verður að segjast eins og er að það fór
hrollur um blaðamanninn þar sem hann leið
áfram í sófasettinu eftir hraðbrautinni.
Einn galli var þó á gjöf Njarðar. Það var
sama hvað hamast var f rafmagninu við að
stilla sætin, áfram, aftur, upp og niður, fæturnir
rákust alltaf í mælaborðið. Þegar svo hafði
gengið í tvo daga var ákveðið að herða upp
hugann og kanna þjónustu Hertz með því að
kvarta yfir bílnum. Eftir að ég hafði rakið raunir
mfnar brosti viðkomandi og spurði hvort ég
vildi Ford Scorpio 4X4. Ég benti manninum á
að alla vega væri meira pláss fyrir bílstjórann í
þeim bfl. Þar sem ég hafði greitt fyrir góðan bíl
vildi ég vita hvort Fordinn væri jafnkraftmikill.
„Bíddu," sagði maðurinn og kom svo að
vörmu spori með sportútgáfu af Scorpio. Ekki
er laust við að brosið hafi breikkað þegar ég
settist upp í og ók af stað.
ALLT í LAGI
Hver kannast ekki við að taka bíl á leigu og
þegar á að setja útvarpið í gang heyrist
ekkert? Hjá Hertz eru nítján atriði yfirfarin og
sá sem það gerir staðfestir með undirskrift
sinni að allt sé í lagi. Þannig er athugað hvort
öryggisbelti, bremsur, stýri, hjólbarðar,
þurrkur, rúðupiss, Ijós, speglar, flauta, læsing-
ar, hurðir, vélarhlíf, gírstöng, miðstöð,
sígarettukveikjari, sæti og farangursgeymsla
séu í lagi. Gengið er úr skugga um að næg
olía sé á bílnum, bensíntankurinn fullur, tjakk-
ur og felgulykill á sínum stað, að allir nauðsyn-
legir pappírar séu í bílnum og útvarpið stillt á
stöðvar. Þegar miðinn, sem hangir í bílnum, er
undirritaður er í lagi að leigja hann út, fyrr ekki.
Citroén XM V6: Sófasett á hjólum en of þröngur fyrir blaðamanninn.
BÍLL Á TVEGGJA SEKÚNDNA FRESTI
Hér á íslandi eiga menn oft erfitt með að gera
sér í hugarlund hversu stór alþjóðafyrirtæki
eru. Til að gefa smáhugmynd um stærð bíla-
leigu Hertz má geta þess að hún leigir út bíl á
tveggja sekúndna fresti allt árið um kring.
Fjörutíu og fimm þúsund pantanir berast á
hverjum degi og tekið er á móti um sextán
milljónum símtala á hverju ári.
Leiðakerfi er nýjung sem Hertz hefur komið
með fram á sjónarsviðið. Á nokkrum helstu af-
greiðslustöðunum eru tölvuskjáir og getur sá
sem vill notfæra sér þetta kerfi stimplað inn
staðinn sem hann er á og hvert hann ætlar. Þá
prentast út úr tölvunni þægilegasta og stysta
leiðin á áfangastað. Þetta getur verið afar
þægilegt fyrir þá sem eru óvanir að keyra inn í
borgir frá flugvelli, til dæmis í London.
STÓRU LEIGURNAR ÞÆGILEGRI
Þegar blaðamaðurinn ákvað að prófa Hertz
var það vegna þess að hann hafði nokkrum
sinnum lent í vandræðum hjá smærri bílaleig-
um. Eitt sinn var hann staddur í Munchen um
vetur og það var svo kalt að bíllinn varð raf-
magnslaus. Með mikilli fyrirhöfn var hægt að fá
viðgerðarþjónustu og kostaði hún sitt. í annað
skipti þurfti blaðamaðurinn að skilja bflinn eftir
á flugvellinum í Frankfurt. Starfsmaður
leigunnar sannfærði hann um að það væri lítið
mál, nóg væri að tala við starfsmenn ákveðinn-
ar bílaleigu og skilja lyklana eftir. Blaðamaður-
inn ákvað að koma tímanlega á flugvöllinn í
Frankfurt. Þegar komið var á bílaleiguna, sem
upp var gefin, kannaðist starfsfólkið ekki við
neitt. Þá hófust símhringingar til Lúxemborgar
og fimmtán mínútum áður en vélin, sem blaða-
maðurinn átti pantað með, fór fékk hann
umslag, setti lyklana að bílnum í það og sendi
þá til Lúxemborgar með upplýsingum um hvar
bílinn væri að finna.
Þá var ákveðið að næst þegar farið yrði út
fyrir landsteinana skyldi bíllinn leigður hjá al-
þjóðafyrirtæki. „Það er miklu dýrara að versla
við stóru leigurnar," er algeng fullyrðing. Þegar
upp er staðið er það ekki dýrara. Verðið er
sambærilegt við aðrar leigur en jafnframt er
verið að kaupa sér þjónustu um allan heim. Ef
maður er til dæmis á ferðalagi um Evrópu og
bfllinn bilar í Austurríki er nóg að hafa sam-
band við næstu afgreiðslu og fá nýjan bíl án
nokkurs aukakostnaðar. Það sparar ekki bara
peninga heldur einnig dýrmætan tíma.
Amma? Nei....
Ég meina mamma?
Gettu hvað?
Nýr og enn betri
Prcdictor gefur
rétta svarið strax.
EfPredictor þungunarprófíð segir það, þá er það öruggt.
FÆST í APÓTEKUM
l.TBL. 1992 VIKAN 47