Vikan


Vikan - 09.01.1992, Síða 54

Vikan - 09.01.1992, Síða 54
HEIMSINS ÓLÍKUSTU TVÍBURAR GÓMSÆT PERUTERTA 150 g smjör(líki) 200g sykur 3 egg 125 g hveiti, 1 sléttfull tsk lyftiduft 1 lítil tsk engifer 50 g gróft saxaöir hnetukjarnar 5-6 perur (niöursoðnar) Skraut: Sigtaður flórsykur Aðferð: Hrærið smjör(líkið) og sykur vel saman, bætið eggjunum saman við einu í einu og að síðustu hveiti, lyfti- dufti, engifer og hnetum. Hrærið deigið vel saman og setjið f vel smurt form með lausum botni, ca 24 cm í þvermál. Látið safann drjúpa vel af perunum og þrýstið þeim niður í deigið. Bakið neðst í ofni við 200 gráður í 40 mín. Prófið með prjóni hvort kakan er bökuð. Stráið flór- sykri yfir kalda kökuna. Ensk kona og pakistansk- ur maður eru foreldrar þessara ólíku tvíbura. Zahra og Tony eru 15 ára gömul og svo ólík að ætla mætti að þau væru óskyld. Það skrftna er að þau eru tví- burar! Tony er rauðhærður og freknóttur en Zahra er með svart hár og dökka húð. Þegar þau fæddust sagðist starfs- fólkið á fæðingardeildinni aldr- ei hafa sóð svo ólíka tvíbura. Hver getur láð því? Fæðingin olli miklu umtali en tvíburarnir hlæja bara að þessu og segja að sumir haldi þau vera kær- ustupar. Þau fundu lítið fyrir því hversu ólík þau eru fyrr en þau byrjuðu f skólanum. - Ég fékk neikvæð viðbrögð, segir Zahra. Krakkarnir sögðu mér að skammast til baka, heim til mfn. En ég erfædd á Englandi og því ensk þrátt fyrir að ég líti öðruvísi út en aðrir. Tony blandaði sér alltaf í málið mér til hjálpar. Við erum tengd sterkum böndum og við vitum oft hvernig hinu líður þrátt fyrir að kannski séu margir kílómetrar á milli okkar. Við eigum sam- eiginleg áhugamál, svo sem íþróttir, tón- listarsmekkur- inn er eins og falleg föt... Þau eiga fjögur yngri systkin og þau líkjast öll Zöhru. 679333 PIZZAHÚSIÐ Grensásveg! 10 - þjónar þér allan sólarhrlnginn HJONABAND í TVÍRITI Símon er giftur Tínu, litla systir Tínu er gift litla bróður Símonar. Ertu hissa? Lestu áfram. Bæði pör- in eiga tvfbura, strák og stelpu, þau vinna öll á sama vinnustað og svona væri hægt að telja upp endalaust. Eru þetta örlög eða bara til- viljun? spyrja þau sig þegar þau upplifa það sama hvað eftir annað. Fyrst giftu Tína English og Símon sig, stuttu seinna giftist systir Tínu, bróð- ur Símonar. Tína eignaðist tvíbura, strák og stelpu, og Júlía systir Tínu hefur einnig eignast tvfbura, dreng og stúlku, og það á sömu fæðing- ardeild og Tína lá á. - Við skiljum ekkert í þessu og spyrjum hvert annað í sí- fellu hvenær og hvernig þetta muni enda. Það halda allir að ég hafi gaman af að apa eftir stóru systur en þannig er það ekki, segir Júlía. Pörin búa stutt frá hvort öðru í Sheffield á Englandi. Og allt byrjaði þetta þegar Tína og Símon giftu sig 1981. Þá var Júlía í háskóla í öðrum bæ. Þegar skólanum lauk fór hún að heimsækja systur sína og ekki leið á löngu þar til hún varð ástfangin af bróður eigin- manns systur sinnar! Og þau giftu sig nokkrum mánuðum á eftir hinu parinu. Þegar síðan Tína eignaðist tvíburana, Róbert og Elísa- betu, þá gerðum við öll grín að þessu og ég sagðist líka ætla að eignast tvíbura. Það stóðst... og það er ekki vitað um tvíbura í fjölskyldum okkar áður. Þegar Tína eignaðist tvíbur- ana sína fæddist Róbert fyrst og hann vó 2650 grömm. Son- ur Júlíu kom einnig á undan systur sinni og hann vó 2650 grömm. Þau vinna öll f sama stórmarkaði, þau eiga sömu gerð af bíl og nú ætla þau að kaupa hús sem þau geta skipt í tvær íbúðir. - Fyrst ætlum við saman í frí. Það hlýtur að vera gaman því við höfum öll svipuð áhugamál. Og þau brosa út að eyrum, öll í einu að sjálfsögðu. 50 VIKAN l.TBL.1992 ÞÝÐING: LÍNEY LAXDAL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.