Vikan


Vikan - 09.01.1992, Síða 55

Vikan - 09.01.1992, Síða 55
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR: HUGARÓRAR HALLGERÐAR PÆLIÐ í ÞVÍ! Það er alveg rosalegt álag á mér þessa dag- ana. Reyndar er nokk- uð Ijóst að ég er rólega að geðbilast. Málið er að ég var sett í meiri háttar straff þegar ég ropaði skyndilega, reyndar rosalega, í einni af mörgu laxaveislunum sem gengið hérna heima hélt á dögunum. Pælið í því, maður er klæddur upp í föt og fínt til að þóknast þessu ruglaða liði og má ekki einu sinni við matarborðið láta búkinn tala. Mamma er búin að grenja og grenja svo svakalega síðan þetta gerðist og er alveg með það á beru að við séum búin að tapa öllum tengslum við um tíu toppa í þjóðfélaginu vegna þessa atviks. Það eru alla vega tvær vikur síðan nokkur minkapels- gella eða kjólfatapinni hefur hringt og boðið okkur í lax. Maður getur ælt þessum of- dekursveislum sem maður verður að sitja stífur í eins og hrífuskaft og brosa í allar áttir, þó maður hafi nóg að gera með brosið þess á milli. Hvernig á ég til dæmis að redda snarlega eins og fimm geisladiskum í safnið ef ég lamast í kjálka við þetta álag? Hugsið ykkur - og allt bara af því að ég er neydd til að brosa við liði sem er hvort sem er ekkert nema frekjan og tilætl- unarsemin. Það er sko alveg greinilegt að eftir svona áfall brosi ég ekki fimmtán sinnum í röð fyrir afa á Grandanumí von um að sá gamli opni aldamótabudd- una sína til að redda þessu með diskana. Það er ekki hægt að safna sjálfur fyrir öllu. Ég er svo innilega búin. Ég meina það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að leggja á ungling sem er svo greinilega miður sín af þreytu og senni- lega rétt við það að lognast bara út af, eins og sést svo innilega. Ég finn ekki betur en þeim sé svo sama þó ég breytist bara rólega í spegilmynd mína og hreinlega svífi hér um hús- ið eins og vofa. Bara af því að liðinu finnst svo sjálfsagt að nota mig nánast eins og borðskraut hvenær sem þetta sett hefur boð fyrir fólk sem varla getur talað fyrir flottheit- um og fínum andlitskippum. Það sést svo greinilega að þetta gengi er farið að sjúskast. Þoli ég þetta pakk? Nei! Og þá meina ég NO! Glæta að gefa þessum krumpuðu kroppum meiri tíma. Ég hef aldrei séð svona uppáþrengj- andi og ofdekrað laxalið. Glansmyndagengi sem ræður ekki við græðgina í sér og sem betur fer ropaði ég framan í það með það sama. Áttu þau það skilið? Já, og það er á tæru. Við skulum þara athuga það að þegar ég ráðlagði Jóu vin- konu að ropa svona innilega í einni veislunni heima hjá henni, þá gekk allt snarlega upp með það sama. Jóa þurfti þetta sama kvöld að díla smápeysuskipti við ellefu manna lið og varð að losna á innan við tíu mínútum við þetta „big mama borðhald" og það tókst. Hún bara ropaði til hægri og vinstri stanslaust í sirka fimm mínútur. Eða ró- lega má segja þangað til allir fengu sæmilega góða velgju og pabbi hennar sagði mjög smeðjulega: „Jóa þarf að fara, vonandi er öllum sarna." Glæta eða þannig. Vonandi verð ég uppgötvuð fljótlega. LITUN, STRÍPUR, KLIPPING HJALLAHRAUN 13 HAFNARFIRÐI SlMI 53955 Gnoðarvogi 44-46 • 104 Reykjavík sími: 39990 Elín Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari, Ásta K. Árnadóttir, Elva B. Ævarsdóttir, Þórunn A. Gylfadóttir, Halla R. Ólafsdóttir. ANDLITSBÖÐ, HÚÐHREINSUN, LITUN, FÓTSNYRTING, HANDSNYRTING DAG- OG KVÖLDSN YRTIN G VAXMEÐFERÐ Hárgreiðslustofa Bleikjukvísl 8, Sími 673722 HÁItSEIi í MJÓDD Hársnyrtístofa l'arahakki 3-2. h. Sí.ni 79266 Hársnyrting fyrir dömur, herra og börn. Agnas og Ingunn l.TBL.1992 VIKAN 51

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.