Vikan - 09.01.1992, Síða 60
SMÁSAGA EFTIR ODD SIGURÐSSON
Uiii-úaaa! Skorri gamli stóö í fallega
garðinum sínum og kallaöi út í him-
inblámann. Úiii-úaaa! Hann kallaði
svo hátt sem hann gat og skimaði
út í loftið. Eftir skamma stund sást
örlítill depill hnita hringi yfir litla húsinu. Depill-
inn stækkaði ört uns greina mátti stóran og
fremur þunglamalegan fugl gera sig líklegan til
lendingar í garðinum. Hann gaf frá sér hátt
garg þegar fætur hans námu við mjúkt grasið.
Skorri gamli Ijómaði þegar hann beygði sig
niður og strauk yfir bak veiðibjöllunnar. Fuglinn
teygði hálsinn fram og aftur í leit að ætinu sem
hann átti von á frá Skorra.
- Já, já, þú færð að éta, blessaöur. Hafðu
engar áhyggjur af því. Hefur Skorri gamli nokk-
urn tíma svikið þig um bitann þinn?
Svona höfðu samskipti þessara ólíku ein-
staklinga gengið í rúmt ár og aldrei orðið brest-
ur á. Skorri kallaði fuglinn Hafsauga. Það var
hans eigin uppfinning til sjós að kalla alla máva
hafsaugu. Það gerði hann vegna þess að
löngu áður en illviðri skall á vissi hann af hljóði
fuglanna að vont veður var í aðsigi.
Skorri hafði frá því hann var ungur maður
helgað líf sitt sjómennskunni og lifað fyrir það
eitt að bjóða viðsjárverðum hættum Norður-
Atlantshafsins birginn. í raun hataði hann
sjóinn. Sjórinn var sá vættur sem tekið hafði
frá honum gleðina og markað eilífa sorg í
hjarta hans. Guð gaf og Guð tók .. .
Nei, Skorri vildi ekki hafa þetta svona. Hafið
tók og gaf ekkert til baka. Sama hvert litið var
til sjós, alltaf var dauðinn á næsta leiti. Skip
sem náðu ekki landi, iðralausir spriklandi fiskar
um allt dekk, blóð manna og annarra lífvera lit-
aði hafflötinn þegar minnst varði. Hafið lét
heldur ekki þar við sitja að sorgbíta sjómenn-
ina sem ekki áttu annarra kosta völ en að velkj-
ast um við misgóðan aöbúnað, víðs fjarri
heimilum sínum. Konurnar og börnin í landi
voru oftar en ekki verr komin en dauð þegar
hafið lét til skarar skríða og hreif burtu fyrir-
vinnuna.
- Sjórinn er dulbúinn djöfull, var Skorri van-
ur að segja, og sá djöfull skal aldrei ná mér.
Biturleiki hans til hafsins átti djúpar rætur. Ung-
ur hafði hann farið til sjós á togara og lent í
hildarleik sem ekkert á jarðríki gat nokkurn
tíma þurrkað úr minni hans. Skip nýsköpunar
þóttu traust miðað við það sem sjómenn á ís-
landi áttu að venjast. Allt gat þó gerst væri
óvarlega farið.
Togarinn hafði strandað í aftakaveðri á
Reykjanesfjöru, menn uggðu ekki aö sér fyrr
en allt var um seinan. Skipið, sem þeir töldu
jafnvel öruggari íverustaö en húskofann heima
hjá sér, var í raun og veru manndrápsbolli. Er
mönnum var Ijóst hvernig komið var ruku þeir
upp til handa og fóta en þreytan eftir hvíldar-
lausa þrældómsvinnu um borð setti mark sitt á
viðbrögðin. Hræðsla og örvænting gagntók þá
er ógnandi hvítfextar öldur, sem skullu af reg-
inafli yfir skipið, brutu allt og brömluðu við að
sýna mátt sinn og megin.
Skorri hafði séð föður sem hafði tekiö með
sér ungan son sinn, varla eldri en fjórtán ára, í
fyrstu sjóferðina. Þegar ósköpin dundu yfir batt
hann sig og soninn við mastur skipsins í veikri
von um miskunn Guðs. Menn hrópuðu og
ákölluðu drottin. Jafnvel þeir hörðustu, sem á
ekkert sér æðra sögðust trúa, báðu sér nú
griða skaparans. Skorri var skelfingu lostinn
eins og aðrir um borð. Hann skreið eftir þilfar-
inu í leit að skjóli fyrir þeim andskota sem nú
vann ákveðiö að því að má þá af yfirborðinu.
Skyndilega var hann hrifinn af ógnarafli hátt
í loft. Það var eins og tíminn hefði stöðvast.
Hann heyrði ekki lengur hróp og hræðslubænir
skipsfélaganna, allt varð ótrúlega hljótt. Þessar
fáeinu sekúndur í lífi Skorra áttu eftir að móta
aðrar tilfinningar og aðra trú um lífið og dauð-
ann. Brotið, sem hafði hrifið hann, hélt honum
stundarkorn yfir skipinu eins og til að sýna
honum aö dauðastríðið um borð væri með öllu
tapað. Það síðasta sem hann sá, áöur en hol-
skeflan grýtti honum lengst upp í fjöru, var
drengurinn og faöir hans, bundnir við siglutréð.
Menn áttu ekki von á að finna nokkurn mann
lifandi þegar þeir loks komust á strandstað.
Þeir unnu hörðum höndum við að safna saman
líflausum líkömum sem lágu um alla fjöru.
Sum líkanna voru svo illa farin eftir að hafa
56 VIKAN l.TBL. 1992