Vikan


Vikan - 20.02.1992, Qupperneq 6

Vikan - 20.02.1992, Qupperneq 6
TEXTI: ÞORGEIR ÁSTVALDSSON KK SPILAR BLUS I BORGARLEIKHUSINU ÞETTAERMUSIK - ÞAÐ ER MÁLIÐ Blús hefur í seinni tíð átt vaxandi vinsæld- um að fagna hér á landi og margir orðnir fimir f faginu, einkum gítarleikarar. Segja má að blúsarar og blússveitir hafi komist í sviðsljósin eða fengið tækifærin þegar bjórinn og krárnar komu til sögunnar. Minni staðir og látlausir hæfa blúsnum vel og bjór og blús eru heldur ekki óskyldar fæðutegundir eins og dæmin sanna. KK eða Kristján Kristjánsson er einn þeirra gftarleikara sem skotið hafa upp kollinum f blúsbylgjunni og vakið athygli. Hljómplata hans, Lucky one, sem gefin var út á síðasta ári, féll í góðan jarðveg og dá- góð sala hennar sannar að blús eða blús- ættuð tónlist er ekki einkaáhugamál fárra heldur fjöldans ef vel er að verki staðið. Að- sókn að hljómleikum blússveita á kránum hefur líka verið góð sé á heildina litið þótt auðvitað fari það eftir því hverjir eiga í hlut á sviðinu. Kristján hefur um langan aldur leikið á gítar svo hér er enginn nýgræðing- ur á ferðinni. Hann lætur Iftið yfir sér, segir allt að því feimnislega af sjálfum sér og gerir ekki mikið úr hlutunum. Hann meira að segja vill ekki vera kallaður blúsari. BLÚS OG EKKI BLÚS „Sjáðu til, það er með mismunandi hætti sem fólk skilur eða hefur hugmyndir um blús. Það er heldur ekkert skrítið við það. Blúsinn er til í ýmsum myndum og mín tónlist er ekki endi- lega blús. Ég vil heldur ekki vera eins og hvert annað tískufyrirbrigði þótt auðvitað ráði ég ekki framvindunni, það er hvernig eða hvar fólk vill flokka mig sem hljómlistarmann. Lengst af hef ég alið manninn og spilað einn eða með hljómsveitum í Svíþjóð og þvælst víða með gítarinn. Ég fluttist þangað árið 1977 eftir að hafa átt heima á íslandi í ellefu ár en fyrstu tíu ár ævinnar átti ég heima í Kaliforníu í Bandaríkj- unum. Foreldrar mínirfluttust með fjölskylduna til (slands árið 1966. Ætli það hafi ekki bara verið löngun til þess að kanna lífið þarna hand- an við girðinguna sem varð til þess að ég flutt- Frh. á næstu opnu 6 VIKAN 4. TBL 1992
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.