Vikan - 20.02.1992, Blaðsíða 64
| | TEXTI: CHRISTOF WEHMEIER |
CRONENBERG OG HINN NAKTIMÁLSVERÐUR;
RANDA HAINES OG LÆKNIRINN;
PEDRO ALMODOVAR OG HÁIR HÆLAR
(HVERS KONAR TITILL E R NÚ ÞETTA?)
▲ Peter
Weller sem
rithöfundur
og
eiturlyfja-
ffkill f
myndinni
The Naked
Lunch.
Kanadíski leikstjórinn
David Cronenberg er
langþekktastur fyrir
myndir eins og Scanners
(1981), endurgerðina The Fly
(1986) og Dead Ringers
(1988). Auk þess lék hann
morðóðan náunga í hrollvekju
Clives Barker, Nightbreed
(1989).
David Cronenberg hóf leik-
stjóraferil sinn með því að leik-
um sér en til þess þarf hann
hjálparmeðul og tekur inn mik-
ið magn eiturlyfja. Mikið er því
um ofskynjanir hjá rithöfundin-
um. Persónur kvikmyndarinn-
ar breytast stundum í ýmis
skordýr, svo sem þúsundfætl-
ur og kakkalakka. Þetta reynist
vera minnsta mál fyrir David
Cronenberg. Hvað framkallaði
hann ekki í endurgerðinni The
Fiy þar sem við sáum leikar-
ann Jefl Goldblum breytast i
flugu? David Cronenberg gerir
ekki flugu mein. Hann sér um
að skemmta okkur. Að eðlis-
fari er hann rólyndur og hug-
myndaríkur og það er hans
hjálparmeðal við gerð kvik-
mynda.
Með aðalhlutverk í nýju
myndinni fara Peter Weller
(Robocop 1 og 2, Rainbow
Drive), Judy Davis (Who
Dare Wins, Impromptu), lan
Holm (Henry V), Julian
Sands (Gothic). Myndin verð-
ur sýnd í Bíóborginni.
Veggspjald Naked Lunch, nýj-
asta verks Davids Cronenberg.
Mæðgurnar í Háum hælum.
PEDRO ALMODOVAR
OGHÁIRHÆLAR
stýra ódýrum hrollvekjum í
heimalandi sínu á áttunda ára-
tugnum. Það er liðin tíð og
vandaðri myndir koma nú úr
smiðju hans. Hann hefur gert
allar myndir sínar í Kanada og
nú er hann búinn að leikstýra
nýrri mynd sem heitir The
Naked Lunch.
Myndin er byggð á skáld-
sögu eftir William S. Bur-
oughes sem ber sama titil og
var gefin út árið 1959. Bókin
þótti hin furðulegasta en menn
héldu samt varla vatni. Þetta
þótti kraftmikil saga, fersk og
frumleg með afbrigðum. Mikið
er um furðulegar myndhverf-
ingar í bókinni og því voru
menn ekkert ýkja bjartsýnir á
að hægt væri að kvikmynda
hana. David Cronenberg lét
þó til skarar skríða og færði
bókina í kvikmyndabúning.
The Naked Lunch greinir frá
rithöfundi sem er í leit að sjálf-
64 VIKAN 4. TBL.1992
Ferskur blær fylgir hverri
nýrri mynd Spánverjans
Pedro Almodovar.
Þessi spænski leikstjóri þykir
frakkur og frumlegur. Hver
man ekki eftir meistaraverkun-
um Women on the Verge of a
Nervous Breakdown eða Kon-
ur á barmi taugaáfalls (1988)
og Tie Me Up, Tie Me Down
(1990). Leikstjórinn sýniróhik-
að kynlíf og kaldhæðnislegar
uppákomur í myndum sínum.
Og nú er komið nýtt og ferskt
meistaraverk frá Spáni, High
Heels eða Háir hælar eins og
nýjasta verkið hans heitir.
Myndin greinir frá persón-
unni Becky sem er leikin af
Marisu Paredes sem snýr aft-
ur til Madrid eftir 15 ára fjar-
veru. Hún er söngkona og
skemmtikraftur að atvinnu.
Becky hittir loks dóttur sína
sem hún hefur ekki séð allan
þann tíma sem hún dvaldi er-
lendis. Becky til mikillar furðu
hefur dóttirin Rebekka, sem er
leikin af Victoria Abril sem lék
í myndinni Tie Me Up, Tie Me
Down, gifst fyrrverandi elsk-
huga móður sinnar. Honum
hafði Becky kynnst áður en
hún lagði larid undir fót fyrir
15 árum.
Síðan er þessum fyrrver-
andi elskhuga Becky og eigin-
manni Rebekku komið fyrir
◄ Andrúmsloftiö er rafmagnað
i nýjustu mynd Spánverjans
Pedros Almodovar.