Vikan


Vikan - 20.02.1992, Blaðsíða 65

Vikan - 20.02.1992, Blaðsíða 65
Tilvonandi fórnarlamb í myndinni Háir hælar. kattarnef. Mæðgurnar liggja undir grun. Höfðu þær ástæðu til að fremja þetta ódæði eður ei? Það fáum við að vita þegar myndin verður sýnd ef ekki er þegar byrjað að sýna hana í Háskólabíói. Mikið er um hnyttnar uppákomur í mynd- inni og nokkur svæsin ástar- atriði eins og Pedro er einum lagið að sýna og framkalla. Leikstjórinn Randa Haines. KVENLEIK- STJÓRINN RANDA HAINES Kvenleikstjórinn Randa Haines gerði hina hjartahlýju kvikmynd Children of a Lesser God árið 1986. Fimm ár eru slðan og nú hefur hún gert myndina The Doctor eða Læknirinn sem er með William Hurt. Hann lék einmitt í myndinni Children of a Lesser God. í The Doctor leikur hann farsæl- an lækni sem einn daginn verður þó sjúklingur sjálfur. Hvers vegna liðu svo mörg ár milli Children of a Lesser God og The Doctor? Það tók einfaldlega þennan tíma að gera myndina eða vinna að henni. Undirbúningur var mikill og vinnslan erfið. Auk þess fékk leikstjórinn Randa Haines mörg handrit í hendurnar sem henni fannst hvorki vera fugl né fiskur. The Doctor verður sýnd I Sambíóunum. 'he Mambo King. LEIKARINN ARMAND ASSANTE í NÆRMYND Armand Assante er leikari sem ekki fer mikið fyrir. Ekki hefur hann heldur leikið í mörgum kvikmyndum en þykir þó vera í sama stjörnuklassa og leikar- arnir Christopher Walken (King of New York), Scott Glenn (The Challenge, Sil- ence of the Lambs, The Hunt for Red October, Silverado), Ray Liotta (Goodfellas, Some- thing Wild), Rutger Hauer (Wedlock, Blade Runner, The Hitcher), Joe Mantegna (Hom- icide, Godfather III) og Peter Coyote (Slayground, The In- side Man). Armand Assante hefur leikið í myndum eins og Q&A (1990) undir stjórn hins virta og vandláta leikstjóra Sidney Lumet. í myndinni Pri- vate Benjamin (1980) lék hann á móti Goldie Hawn. [ Para- dise Alley (1978) lék hann á móti Sylvester Stallone og í Unfaithfully Yours (1984) lék hann á móti Dudley Moore og Natösju Kinski. Árið 1987 framleiddi Ass- ante myndina Belizaire the Cajun sem aldrei hefur verið sýnd hérlendis. Greindi mynd- in frá töfralækni af Kajún-ætt- um en Kajúnar voru franskir innflytjendur sem settust að í Louisiana í Suðurríkjum Bandaríkjanna á 18. öld og fyrirfinnast þar enn þó í minna mæli sé. Islenskir sjónvarpsáhorf- endur kannast væntanlega við Armand Assante því hann lék Napoleon í sjónvarpsþáttaröð- inni Napoleon and Josephine: A Love Story sem sýnd var á Stöð 2 fyrir nokkrum árum. Nú hefur hann leikið í glæ- nýrri mynd sem heitir The Mambo Kings. Myndin greinir Bræðurnir tveir sem halda í ameríska drauminn. Svipmynd úr The Mambo King. frá tveimur bræðrum sem eru hljómsveitarmenn. Kveðja þeir Kúbu á sjötta áratugnum, setj- ast að í Bandaríkjunum og elt- ast þar við ameríska velferðar- drauminn. Myndin fjallar um drauma þeirra, ástir og sorgir. Svona rétt eins og lífið er. Kvikmynd þessi er byggð á bókinni The Mambo Kings Play Songs of Love sem rit- höfundurinn Oscar Hijuelos fékk Pulitzer bókmenntaverð- launin fyrir. Armand Assante gekk illa að ná fótfestu á leikarabraut- inni. Hann lofaði sjálfum sér eitt sinn að ef hann væri ekki búinn að vinna sér nafn sem leikari á 35. aldursári myndi hann snúa sér að öðru. Allt gekk þó upp en fyrir utan leik- arastarfið rekur hann búgarð. Umboðsmaður Armands Assante segir leikarann hafa ákveðna skapgerð og hann taki leikarastarfiö alvarlegum tökum. The Mambo Kings verður sýnd i kvikmyndahús- um Árna Samúelssonar áður en langt um líður. Armand Assante sem Napoleon. FRÍAR HEIMSENDINGAR ALLAN SÓLARHRINGINN 7 DAGA VIKUNNAR PÓNTUNARSÍMI: 679333 PIZZAHÚSIÐ Grensásvegi10 - þjónar þér allan sólarhringlnn 4.TBL. 1992 VIKAN 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.