Vikan - 20.02.1992, Blaðsíða 62
breyting hjá almenningi hér í Bretlandi til á-
fengisneyslu síðustu ár. Áður fóru karl-
menn á pöbb eftir vinnu og svo aftur eftir
kvöldmat. Verulega hefur dregið úr þessu
og nú eru pöbbarnir í vaxandi mæli staðir
sem öll fjölskyldan kemur á til að njóta
samvista og hitta aðra.
Annað dæmi um viðhorfsbreytingu til á-
fengisneyslu er að Beefeater er aðal styrkt-
araðili einnar þekktustu íþróttakeppni
heims. Það er kappróður Oxford og
Cambridge háskólanna, sem fram fer í lok
mars eða byrjun apríl á hverju ári,“ segir
Ramsey ennfremur.
Hann segir að auk þess að halda nafni
Beefeater á lofti, sé tilgangurinn ekki síst
að gamalt enskt fyrirtæki á borð við James
Burrough styðji 160 ára gamla hefð sem
nýtur athygli um allan heim. Þetta er sjötta
árið í röö sem Beefeater styrkir keppnina.
Hvor háskóli fær 250 þúsund pund (rúmar
25 milljónir króna) í sinn hlút.
Undanfarin ár hefur Oxford unnið keppn-
ina, en þegar á heildina er litið hafa háskól-
arnir skipst á um að sigra. Kappróðurinn fer
fram á Thames ánni í miðri Lundúnaborg.
Veglengdin er um 6,4 km og yfirleitt er
mjótt á mununum þegar í markið kemur, í
mesta lagi nokkrar bátslengdir. Liðin eru yf-
irleitt um 17 tiM8 mínútur á leiðinni. í nokk-
ur skipti hefur kappið orðið svo mikið að
bátarnir hafa sokkiö. Þá er keppnin endur-
tekin nokkrum dögum síðar.
BEEFEATER ER NÚ AÐALSTYRKTAR-
ADILI FRÆGUSTU HÁSKÓLAKEPPNI
Í HEIMI, SEM ER ÁRLEGUR KAPPRÓÐUR
HÁSKÓLANNA Í OXFORD OG CAMBRIDGE
Á THAMES ÁNNI
Þar er það blandað í styrkleika eftir mörk-
uðum. Til dæmis er Beefeater sem selt er í
fríhöfnum 47% að styrkleika, en 40% víðast
annars staðar. Það er einnig til í 37,5%
styrkleika fyrir ákveðna markaði.
„Mikilvægt er að nota hart vatn til að ginið
verði gott," segir Martin. „Haröa vatnið gef-
ur því sérstakan blæ og því notum við hart
vatn jafnt við gerð spírans og til að þynna
hina sterku blöndu sem fer héðan frá Lund-
únum."
Ekki er hávaða eða látum fyrir að fara í
brugghúsi Beefeater og starfsmenn á vakt
eru aðeins 6 talsins. Afköstin leyna á sér,
því árlega selst Beefeater í 2,2 milljónum
kassa í 160 löndum um allan heim - og
það eru 12 flöskur í kassanum.
BREYTINGAR Á DRYKKJUVENJUM
FÓLKS UM ALLAN HEIM
En hvernig skyldi standa á því að sala á
Beefeater eykst stöðugt, á meðan áfengis-
neysla um allan heim dregst saman. Því
svarar Michael Ramsey, einn af sex mark-
aðsstjórum Beefeater.
„Það er tilhneiging um allan heim að
drekka minna og drekka betur," segir
Ramsey. „Þetta þýðir að fólk eyðir kannski
ekki minni fjármunum [ áfengisneyslu, en
það velur vandaðri tegundir áfengis, eins
og Beefeater. Beefeater er það sem við
köllum „Premium Gin,“ sem þýðir að aðeins
er notast við bestu hráefni og bestu fram-
leiðsluaðferð. Á markaðnum fást alls konar
gintegundir, en fæstar þeirra eru „premi-
um.“ Sem dæmi má nefna að á Spáni hefur
sala Beefeater margfaldast á undanförnum
árum, eftir því sem efnahagsleg afkoma
fólks þar hefur batnað.
Framleiðendur eins og James Burrough
hafa fyrir löngu áttað sig á því að magn og
gæði fara ekki endilega saman. Því styrkir
fyrirtækið herferðir þar sem fólk er hvatt til
að ganga hægt um gleðinnar dyr og fara
vel með vín. Það hefur orðið mikil viðhorfs-
í lok mars næstkomandi keppa róöralið Oxford og Cambridge í sjötta sinn um Beefeater bikarinn í einni þekktustu keppni
heims. 150 milljónir manna um allan heim horfa á beina útsendingu frá keppninni, sem hefur verið haldin í 160 ár samfleytt.
62 VIKAN 4. TBL. 1992