Vikan - 20.02.1992, Qupperneq 16
TEXTI: ÞÓRDÍS BACHMANN
HRÚTUR, UÓN OG BOGMAÐUR
tjttete? 'tnftrr mtfil-
&v&en 'm>«í? fWtan
tJj« 0cSjfel '
Þtan yfltt&eti Pex orfí
A-J ■ fWrF Tnftn -mtflr'Crtj
T)<9> 0Pcfe»f ^an> —
Jti l«3n £/?%_trificlbíSíi
’, &n
eftrcöfanftfl:
ef’mfin jArf5»
;' £*c&í
'ltttf'jttmi>
■S'“í*4 eum
, ítitGon i
!<fln mfln
tjtr&rn £Vn
W;.: TT7 fci«n
^iUli
^iin ftflaf-
'Twmn
9n flam
4 VÍj^YÍs-
•~U
*l'tAn &íxn ^
C/jUnóXfO*
j 4« £u»i S>i
^Sl.
_ j„ £Van taxtfo*
£>«.- fjtnfinn ifV'Hflfíf''
j»r íi’Btiwn 'Tiacfl-
‘fluf- <?<3» ftvtrutO-
Stjörnuspekin á sér flókið kerfi og er
hluti þess skipting í frumþættina eld,
jörð, loft og vatn. Innan hvers frum-
þáttar eru þrjú stjörnumerki, eitt
frumkvætt, eitt stöðugt og eitt breyti-
legt. Hér á eftir verður fjallað um
höfuðskepnuna eld en hér er verið að
fjalla um orku náttúrunnar því stjörnu-
merkin mótast af náttúrunni og endur-
spegla þá krafta sem maðurinn sér
þar. Að vera Hrútur þýðir í raun ekki
annað en það að vera fæddur snemma
vors. Stjörnuspekingurinn skoðar síð-
an eðli þess árstíma og yfirfærir það
sem hann sér á persónuleika Hrútsins
enda liggur að baki sú kenning að
maður og náttúra séu eitt.
Með því að skipta stjörnumerkjun-
um niður eftir frumþáttum er um leið
mannfólkinu skipt niður í fjóra höfuð-
flokka. Eldur er táknrænn fyrir hug-
sjónir og skapandi athafnaorku, jörð
fyrir efnisorku, toft fyrir hugmynda-
orku og vatn fyrir sálar- og tilfinninga-
orku. Eldur og loft eru létt og svolítið
ójarðnesk. Jörð og vatn eru staðfast-
ari og jarðbundnari.
NÝJUNGAR, FRAMFARIR
OG ÞRÓUN
Eldmerkin eru Hrútur, Ljón og Bogmaöur.
Eldurinn er úthverfastur allra frumþáttanna.
Hann er fyrst og fremst sjálfur lífskrafturinn
enda er oft sagt um fólk í eldmerkjum að það
sé „lifandi" og kraftmikið. Meðal einkenna eld-
fólks er opin og björt tjáning, ákafi og einlægni
og oft á tíðum sterk hugsjónahyggja. í eldinum
er lítið um kyrrstöðu en þeim mun meiri þörf
fyrir að breyta til. Það einkennir því fólk í þess-
um merkjum að vilja stöðugt breyta umhverfi
sínu og bæta það. Skapandi nýjungar, fram-
farir og þróun eru allt orð sem tengjast eldin-
um.
Dæmigerðu eldfólki er oft lýst með orðum á
við eldhugi eða baráttukona. Eldfólkið er at-
hafnasamt, vill ekki fara troðnar slóðir eða láta
umhverfi sitt segja sér fyrir verkum.
Veikleikar eldfólksins eru þeir að því hættir
til að gleyma öðrum í ákafa sínum og verða til-
litslaust og eigingjarnt, oft án þess að gera sér
grein fyrir því sjálft. Eldfólk vill vera jákvætt og
sýnir þvf iðulega tilfinningar sínar með kátínu,
gleði og ákafa en á erfiðara með að takast á
við neikvæðar tilfinningar eins og daþurleika,
vanlíðan og sorg. Sé um of mikla eldsorku að
ræða hjá einstaklingi er hætta á aö hann verði
óbilgjarn og eigingjarn. Viðkomandi getur einn-
ig átt til að fljúga of hátt, vera of stórtækur og
tapa jarðsambandinu.
Skortur á orku eldsins lýsir sér hins vegar oft
í deyfð, áhugaleysi og lífsleiða. Þeir sem eng-
ar persónulegar plánetur hafa í Hrút, Ljóni eða
Bogmanni eru oftast rólegir í framkomu, stund-
um yfirvegaðir en oft blátt áfram leiðinlegir og
óspennandi og kveikja því sjaldan í með-
bræðrum sínum.
ÁN ELDSINS VÆRU ENGIR NEISTAR
Hrútur er frumkvæða eldmerkið. Hrúturinn tek-
ur frumkvæði en miðar við hugsjónir sínar,
nýjungagirni og þörf fyrir að vera fyrstur. Frum-
kvæðu merkin búa einnig yfir forystuhæfileik-
um og þess má geta að forseti lýðveldisins, frú
Vigdís Finnbogadóttir, er fædd í Hrútsmerkinu
miðju. Dæmigerður Hrútur er sterkur, hæfur og
kraftmikill. Hann tekur heiminn með áhlaupi og
Frh. á næstu opnu
T 6 VIKAN 4. TBL. 1992