Vikan


Vikan - 20.02.1992, Page 24

Vikan - 20.02.1992, Page 24
MMAuðvitað ætti dómsmáiaráðu- neytið að taka þátt í því og reyndar gegna þar forystuhlutverki í staðinn fyrir að vera oftar en ekki eins og andstæðingur okkar ff það er þreytandi að láta Ijúga f sig árum saman því sá sem brýtur eitthvaö af sér ætlar auðvitað ekki að láta góma sig,“ segir rannsóknar- lögreglumaðurinn fyrrverandi um það starf sitt. „Til dæmis ætluöu menn aldrei að koma auga á tengslin mili auögunar- og fíkniefna- brota. Það er fyrst núna sem einhver glóra er komin í þetta. Fyrir tíu árum var til dæmis borðliggjandi dæmi um slíkt þegar stolið var borðbúnaði og alls kyns verðmætum silfur- munum sem höfðu aðallega tilfinningagildi fyrir eigend- urna. Þjófarnir náðust rétt áður en þeir ætluðu úr landi með góssið og þeir sögðu það bara slétt og fellt að þetta hefðu þeir gert til að fjármagna fíkniefna- kaup. Dæmið var augljóst en samt sem áður vantaði stór- lega tengsl milli fíkniefnadeild- arinnar í Reykjavík og rann- sóknarlögreglunnar. Það var síðan virkilega gaman þegar málið var upplýst að geta skil- að fólkinu silfurmununum því það var svo þakklátt.“ ÞRAUTAGANGA AÐ PALLBORÐI Þegar staða aðstoðaryfirlög- regluþjóns var auglýst ákvað Guðmundur að slá til. Hann segir tilfinninguna, þegar hann klæddist búningnum með öll- um þessum strípum og stjörnum, hafa verið nánast enn skelfilegri en þegar hann klæddist lögreglubúningi í fyrsta sinn. Það gekk þó ekki þrautalaust fyrir sig að eiga upp á pallborðið því honum var fundið flest til foráttu. „Þvi var til dæmis skellt fram að ég hefði enga reynslu sem stjórn- andi og jafnvel var sagt að ég hefði enga reynslu af lög- gæslustörfum þrátt fyrir aö ég hefði verið sjö ár í Reykjavík- urlögreglunni og ellefu hjá RLR. Svo kemur maður inn á vinnustað í óþökk flestra sem þar vinna og ég óska engum svo ills að þurfa að ganga í gegnum slíkt. En það hefur nú ræst úr því sem betur fer, að mestu leyti allavega." Guð- mundur vill ekki fara nánar út f þessa sálma, búinn að fá nóg. Hann segir að sér finnist leiðigjarnt að heyra sífellt væl um að þetta eða hitt sé ekki hægt að gera í ýmsum málum, frá yfirmönnum lögreglunnar, þegar störf hennar eru gagnrýnd. „Ég held nefnilega að oft sé málið það að keppst er við að gera hlutina rétt en ekki að gera réttu hlutina, að ekki sé haft skipulag á því sem unnið er að.“ Hann segir lög- regluna allt of viðkvæma fyrir gagnrýni. „Við hljótum að ein- hvern tímann að gera mistök og ef það gerist þá á aö kann- ast við þau og læra af þeim. Hins vegar getur oft verið erfitt að útskýra eða svara gagnrýni því þá þyrfti að draga inn í málin fólk sem síst má við því, fólk sem lent hefur í einhverri ógæfu og lögreglan þurft að hafa afskiþti af. Guðmundur hefur einnig komið auga á ýmsa hnökra á starfi lögreglunnar eftir að hann klæddist einkennisbún- ingi á ný. „Það kom mér til dæmis á óvart að tækjum og tækni hefur ekki fleygt fram í takt við timann. Við í Kópavogi 24 VIKAN 4. TBL.1992

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.