Vikan - 20.02.1992, Side 39
bara og hrærist í heimi stjórn-
málanna - en ekki í hinum
raunverulega heimi þar sem
íslenskur almenningur starfar
og talar saman.
Þaö kann aö vera að sjón-
varpið eigi einhvern þátt í
þessari gjá, sem hefur veriö
að breikka, á milli stjórnmála-
manna og almennings. Ein af-
leiðing þessa er allavega sú
að stjórnmálamenn lita æ
meira út eins og kjánar í aug-
um almennings.
- Hvað um samkrull
grundvallarstofnana lýð-
ræðisríkis, en þvf hefur ver-
ið haldið fram að dómsvald-
ið hygli framkvæmdavald-
inu? Hvað um löggjafarvald-
ið í því sambandi?
Ég óttast að tengslin milli
allra þessara stjórnvalda séu
of náin og aö það geti átt sér
stað samtrygging á milli þeirra.
Stundum virðist framkvæmda-
valdið hafa bæði dómsvaldið
og löggjafarvaldið í vasanum.
Ég veit ekki nema það sé ein-
hver djúpstæður brestur í
þeirri réttarvitund og því
réttarfari sem íslensk lögfræði
á að hugsa um og koma til
þroska.
- Af hverju virðast is-
▲ Páll
Skúlason
heimspeki-
prófessor
segir
stjórnmálin
snúast of
mlklð um
valda-
baráttu
sem að
endingu
lendi í vit-
leysu og í
raun sé
oftar en
ekki unnið
gegn þegn-
unum.
fellum en til lengri tíma litið og
sem almenn regla er hann frá-
leitur og hlýtur að spilla sam-
skiptum þjóða.
- Hvað um frumkvæði ís-
lendinga við viðurkenningu
sjálfstæðra lýðvelda? Teng-
ist það vanþróaðri stjórn-
málamenningu og er þar
með af vanefnum gert?
Ég tel að þetta frumkvæði
Alþingis hafi verið jákvætt og
sé liður í því að sigrast á
minnimáttarkennd íslenska
ríkisins á alþjóðavettvangi.
Það er áfangi í því að víkka og
þroska stjórnmálavitund ís-
lendinga, sem að sjálfsögðu er
afar brýnt.
- Alþingi hefur verið líkt
við grunnskólabekk. Má af
því sjá barnaskap í íslensk-
um stjórnmálum sem þá
tengist undarlegum stjórn-
arháttum?
Ég veit ekki hvort rétt er að
tala um barnaskap í þessu
sambandi, þó að þessi ólæti á
Alþingi séu fremur hvimleið.
Ég held að barnaskapurinn i
stjórnmálunum birtist með
miklu alvarlegri hætti í
reynsluleysi valdhafanna og
þekkingarskorti. Það er eins
og margir stjórnmálamenn lifi
lenskir stjórnmálamenn
hafa setið eftir í þróuninni?
Islensk stjórnmál viröast
laða að sér valdaglaða menn
sem telja hlutverk sitt fremur
vera að berjast fyrir tilteknum
mikilvægum sérhagsmunum
en átta sig á því í hverju al-
mannaheill sé fólgin. Svo hafa
stjórnmálaflokkarnir líka
brugðist í því að vera uppeld-
isstöðvar góðrar stjórnmála-
umræðu.
- Hefur stjórnmálamenn-
ing alltaf verið á iágu stigi á
íslandi eða voru gömiu dag-
arnir góðir?
Ég held að hún hafi alltaf
verið fremur bágborin, þó að
vissir þættir til forna hafi verið
stórmerkir, segir Páll Skúlason
að lokum og greinilegt er að
víða liggja mölbrotnir pottar á
því sem kallast mætti leiksvið
íslenskra stjórnmála. □
MMHér virðast stjórnvöld
oft geta hagað sér eins og
almenningur, sem þau
eiga að þjóna, sé höfuð-
andstæðingur þeirra! MM
MMStundum virðist fram-
kvæmdavaldið hafa
bæði dómsvaldið og
löggjafarvaldið í vasan-
um. MM
. I - .' V.' : ’ ■ ■’ÍMm, :■
4. TBL, 1992 VIKAN 39