Vikan - 20.02.1992, Síða 40
NÝALDARSAMTÖKIN MEÐ NÁMSKEIÐ:
SJÁLFSRÆKT
Fékk þetta orð ykkur til
að stansa augnablik og
forvitnast um hvað hér
væri á ferð? Einmitt það
kom fyrir okkur hérna á
Vikunni þegar við rákum
augun í auglýsingu í
Morgunblaðinu þar sem
auglýst var námskeið í
sjálfsrækt á vegum
Nýaldarsamtakanna.
Við hringdum í Guðrúnu
G. Bergmann, sem er
leiðbeinandi á námskeið-
inu, og mæltum okkur
mót við hana í verslun
hennar, Betra lífi á
Laugaveginum, til að fá
frekari upplýsingar um
hvað það er sem hún
kallar sjálfsrækt.
Guðrún var við af-
greiðslu þegar okkur
bar að garði svo okk-
ur gafst tækifæri til að líta
aðeins á vöruúrvalið í versl-
uninni. Þegar við skoðuðum
bókaúrvalið og annað það
sem þar er selt fannst okkur
að flest þarna inni væri leið-
beinandi fyrir fólk sem er að
vinna í sjálfu sér eða andleg-
um málum.
„Já, það er rétt,“ segir Guð-
rún brosandi. „Ég hef lagt ríka
áherslu á að vera með gott
úrval af bókum fyrirfólk sem er
að stunda sjálfsrækt og vinna
í andlegum málum. Hvort
tveggja er náskylt en ég legg
þá merkingu f sjálfsrækt að
það sé sú vinna sem hver og
einn vinnur í sér sjálfum, það
er við ræktun á eigin garði. Við
búum í efnisheiminum og til að
ná einhverjum árangri í þroska
þar þá þurfum við að vinna úr
eigin reynslu, læra á persónu-
leikann sem er það starfstæki
sem við höfum, temja okkur
aðferðir til að ná árangri í starfi
og einkalífi, vinna markvisst
að þeim breytingum sem eru
mögulegar og í sumum tilvik-
um að brjóta af okkur viðjar
vanans. Það reynist oftast erf-
iðast."
- Hvernig byggir þú þessi
námskeið þín upp?
„Þau eru bæði í fyrirlestra-
formi og einnig í verkefnum
sem þátttakendur leysa. Hluti
af tímanum fer í umræðuhópa
og þar koma oft fram mörg
mjög athyglisverð atriði sem
viðkomandi einstaklingar eru í
mörgum tilvikum aö horfast í
augu við í fyrsta skipti, jafnvel
þótt þeir séu komnir yfir
fimmtugt. Námskeiðið stendur
yfir f fjögur kvöld, þrjú kvöld
fyrri vikuna og eitt þá síðari, og
á hverju af þessum fjórum
kvöldum er unnið í þrjá klukku-
tíma. Við vinnum fyrst og
fremst að sjálfsþekkingu,
auknu sjálfsmati og því að ein-
staklingurinn læri að bera virð-
ingu og láta sér þykja vænt um
sjálfan sig. Með því er ekki átt
við sjálfselsku, það er að sjá
ekkert annað en sjálfan sig,
heldur að efla sanna væntum-
þykju í eigin garð. Það er
nefnilega ekki hægt að láta sér
þykja virkilega vænt um ein-
hvern annan fyrr en manni
þykir vænt um sjálfan sig. í
mínum huga eru þetta þau
meginatriði sem við þurfum aö
vinna að til að undirstaðan,
það er við sjálf, geri okkur
kleift að auka andlegan þroska
okkar."
- Hvaða reynslu hefur þú
að baki til að geta kennt
þessi fræði?
„Mér finnst ég nú fyrst og
fremst hafa tekið mörg próf í
„Iffsins skóla“ og auðvitað
kemur sú reynsla inn í allt sem
maður gerir. Að auki hef ég
kynnt mér margar stefnur í
gegnum bækur og námskeið
erlendis. Undanfarin tvö ár hef
ég verið í brófaskóla í Eng-
landi, þar sem ég hef lært dá-
hugsun (hypnothink) sem er
aðferð til að beita huganum
við að ná fram breytingum og
árangri í lífi okkar. Ég hef
bæði heimsótt kennarann á
þessu tímaþili og hann einnig
dvalið hér í vikutíma. Ég er
mjög ánægð með árangur
námsins, sem ég sé best í eig-
in lifi.
Ég á mér einnig kennara
meöal Seneca-indíána í
Bandaríkjunum. Það er
„Grandmother" Twylah
Nitsch. Hún er mjög þekkt í
Bandaríkjunum og hefur
stundað sína kennslu síðan
hún var ung kona en hún er 78
ára gömul. ( upphafi sótti ég
hjá henni námskeið, var síðan
send heim með heimaverkefni
og fór síðan til hennar aftur.
Eftir að hún hafði yfirfarið
heimavinnuna mína var ég
vígð inn í leiðbeinandahópinn
hennar en hann kallast Wolf
Clan Teaching Lodge. f hon-
um eru mörg hundruð manns
um víða veröld og má þar
meðal annars nefna heims-
þekkta rithöfunda eins og
Lynn Andrews (Medicine
Woman, Jaguar Woman o.fl.)
og Jamie Sams (Midnight
Song, Medicine Cards, Sacr-
ed Path Cards) sem báðar
halda reglulega námskeið
víðs vegar um Bandaríkin.
Undirstaðan í fræðum „Grand-
mother" Twylah er sjálfsþekk-
ing, það að við skynjum eigin
orku og hvernig við getum not-
að hana. Hún leggur ríka
áherslu á að einstaklingurinn
öðlist aukna sjálfsvirðingu og
sjálfsmat til að hann eigi auð-
veldara meö að takast á við líf-
ið í efnisheiminum.
Á táknmáli indíána er úlfur-
inn talinn brautryðjandi og
leiðbeinandi og flest okkar
sem tilheyrum Wolf Clan
Teaching Lodge erum leið-
beinendur á einn eða annan
hátt. Þótt fræði Twylah séu
ekki kennd staf fyrir staf eru
þau alltaf með sem ívaf. Þegar
ég var vígð inn í Wolf Clan
Teaching Lodge var mér gef-
ið nafnið „Hún sem kemur
með visku sannleikans" og ég
vona sannarlega að ég geti
staðið undir nafni. Eftir að ég
skildi við „Grandmother" Twyl-
ah í maí á síðasta ári hef ég
reglulega samband við hana
sfmleiðis og hún sendir mér
stöðugt ný námsgögn til að ég
geti bætt við þekkingu mína.“
- Er þá námskeiðið þitt
byggt upp samkvæmt ann-
arri hvorri aðferðinni sem
þú hefur verið að læra eða
hefur þú þróað þína eigin
aðferð?
„Ég hélt nokkur námskeið á
síðasta ári og mín eigin aðferð
hefur smám saman verið að
mótast. Að sjálfsögðu byggi
ég á þeirri þekkingu sem ég
hef fyrir en ég vil gjarnan
blanda saman því sem ég tel
vera það besta af því sem ég
hef lært. Ég tel mig því koma
út með námskeið sem er ein-
stakt. Þo er eitt á námskeiðinu
mínu sem kemur óbreytt frá
„Grandmother" Twylah. Það
er persónuleikalitakort sem við
vinnum. Litirnir tengjast þá
eiginleikum okkar og þegar ég
ber litakortin saman við til
dæmis stjörnukort eða grein-
ingu samkvæmt Mikael-
fræðunum er útkoman mjög
lík þannig að persónuleikinn
skilar sér í gegnum litina."
- Hvernig gengur að fá
fólk til að stunda sjálfsrækt?
„Það er mjög misjafnt og á
svona námskeiði er auðvitað
einungis hægt að kenna að-
ferðir sem hver og einn verður
síðan að „nota“ til að þær skili
árangri. Við vinnum verklegar
æfingar meðan á námskeiðinu
stendur en hin eiginlega verk-
lega vinna tekur fyrst við þegar
því lýkuir. Fólk er stundum
hrætt við breytingarnar, jafnvel
þó það dauðlangi til að breyta
lífi sínu. Það er líka töluvert
mál að taka allt í einu full-
komna ábyrgö á eigin Iffi. Ekki
má gleyma því að öryggi van-
ans hefur gífurleg ítök og þó
ég sjálf hafi stundað meðvit-
aða sjálfsrækt í þrjú til fjögur
ár finnst mér ég enn falla til
baka í vanann af og til. Munur-
inn í dag er bara sá að nú er
ég meðvituð um það þegar
þaö gerist og get breytt því ef
ég vil.“ □
40 VIKAN 4. TBL. 1992