Vikan - 20.02.1992, Qupperneq 48
STIÖRNUSPÁ
HRÚTURINN
21. mars - 19. apríl
Vikan verður heldur dauf-
leg fram yfir 22. febrúar en batnar
síðan. Vertu vakandi fyrir góðum
hugarsveiflum 25. febrúar. Tilfinn-
ingasemi gæti gert vart við sig um
mánaðamótin þegar Plútó fer að
gera vart við sig. Seinna verða
áhrif hans þó mjög til góðs.
nautið
H 20. apríl - 20. maí
í kringum 23. febrúar
skiptast á hindrandir og tækifæri
en innsæi þitt hefur betur þann
26. Um mánaðamótin skaltu
sækja á brattann því að þá mun
Júpiter efla þér hugrekki. I byrjun
mars er sjálfstraust þitt með besta
móti og þú getur sagt hug þinn
hispurslaust. Orð þín munu falla í
góðan jarðveg.
TVÍBURARNIR
21. maí - 21. júní
Nú er tækifæri til að fara
að byggja upp sjálfsöryggi til
langframa enda finnst þér mikil-
vægt að vera ekki öðrum háð(ur).
Þetta leiðir til þess að þú getur
bætt persónuleg sambönd þín til
muna og dagar þínir eru ekki eins
hversdagslegir og undanfarið.
»\ KRABBINN
22. júní - 22. júlf
Tilfinningar þínar eru á
viðkvæmu stigi um þessar
mundir. Því skaltu gæta þín á
svikum og sjálfslygum. Raunsæi
er lykilorðið núna og þaö er mikil-
vægt að þú hafir báða fæturna á
jörðinni. Fram að bolludegi gæti
ýmislegt tekið á taugarnar. Síðan
koma bjartari dagar.
UÓNIÐ
23. júlí - 23. ágúst
Það liggur einhver
spenna i loftinu gagnvart Ljóns-
fólki núna. Á hinn bóginn er þetta
góður tími til ásta ef þú lætur til-
finningarnar ekki hlaupa með þig
í gönur. Vinsældir þínar eru
nægilegar eins og er en þú mættir
rækta með þér meiri þolinmæði til
að ná persónulegum markmiðum.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Þú nýtur góðra áhrifa frá
Júpíter. Fólk laðast að sjálfs-
trausti þínu og heillyndi. Lífið er
þó ekki eintómur dans á rósum.
Því skaltu ekki treysta öllum of
vel. Innan um brosandi andlit gæti
reynst úlfur í sauðargæru. Þvi
skaltu forðast að taka þátt í fjár-
festingum um sinn.
VOGIN
24. september - 23. okt.
Þú virðist svolítið auð-
trúa. Það gæti komið sér illa 21.
febrúar. Annars eru góðir dagar
framundan; stuðningur frá valda-
miklu fólki um mánaðamót og
góður tími til ásta, að minnsta
kosti til 13. mars. Plútó eflir þér
fjármálavit og þú ert að komast
inn í langvarandi tímabil skapandi
hugsunar.
SPORÐDREKINN
24. október - 21. nóv.
Vertu á varðbergi dagana
21. til 25. febrúar og taktu ekki
mikilvægar ákvarðanir þá daga
því að blekkingar gætu legið í
loftinu. Eftir það bæta áhrif Júpí-
ters dómgreind þína. Það er eins
gott þar sem þú þarft að umgang-
ast margt fólk frá marsbyrjun og
næstu mánuði.
BOGMAÐURINN
22. nóvember - 21. des.
Hafirðu verið varkár í fjár-
málum undanfarið fer það nú að
skila árangri smám saman.
Starfsframi gæti verið innan seil-
ingar um mánaðamótin. Þess
vegna eru góð tjáskipti áríðandi í
byrjun mars. Á öskudag ferðu að
sjá ýmislegt í skýrara Ijósi. Það á
eftir að koma sér vel síðar.
STEINGEITIN
22. desember - 19. jan.
Ýmislegt spennandi og
óvænt á eftir að drífa á daga þína
næstu tvær vikur. Andlegt ástand
þitt er lika með besta móti um
þessar mundir og öll tilbreyting
fellur þér vel i geð. Notaðu frítíma
þína vel. Þú getur alltaf hvílt þig
seinna.
VATNSBERINN
20. janúar - 18. febrúar
Nú er tími óvæntrar at-
burðarásar hjá mörgum en það
gæti flækt líf þitt um skeið, sér-
staklega ef þú tekur hlutunum
með fálæti. í mars fer að greiðast
úr flækjunni og þú einbeitir þér að
því að koma málum þínum á
framfæri. Samskipti við marg-
menni mega bíða betri tima.
FISKARNIR
19. febrúar - 20. mars
Þú viröist óviss um stöðu
þína vegna ruglandi áhrifa frá
Satúrnusi en ferð að sjá fram úr
þokinni í byrjun mars. Nú er tími
til að kveðja ýmis langvarandi
áhrif úr fortíðinni og horfa björtum
augum fram á við þótt fyrsta vika
mars verði ef til vill fremur tíðinda-
lítil.
Konan kom heim og var í
góðu skapi. Hún hafði hitt
gamlan kærasta niðri í bæ og
nú sagði hún manni sínum frá
því. Hann var svo almennileg-
ur, sagði hún, og honum fannst
ég halda mér vel. Eiginmaður-
inn varð afbrýðisamur og
sagði: Hann hefur þá ekkert
spurt um þennan stóra bak-
hluta þinn, ha?
- Nei, við töluðum ekkert um
þig. • •
Nýtrúlofaða parið var í bíltúr.
Ungi maðurinn var með aðra
hönd á stýrinu og hina utan um
sína heittelskuðu. Þau voru
stöðvuð af umferðarlögreglunni.
- Væni minn, væri ekki betra
að nota báðar hendur, sagði lög-
reglumaðurinn.
- Jú, ég er sammála þér i því
en mér fannst bara ekki hægt að
sleppa báðum höndum af stýrinu
í einu.
Óli átti gamlan, ryðgaðan bíl
og hann varð alvarlega hrædd-
ur þegar vegalögreglan stöðv-
aði hann. Lögreglan skoðaði
bílinn gaumgæfilega og þegar
gólfmottunni var lyft upp kom í
Ijós stórt gat í bílgólfinu. Hvað
er þetta nú? spurði lögreglu-
maðurinn.
- Ja, ætli þetta sé ekki bara
þjóðvegurinn, stundi Óli.
Maðurinn var drykkfelldur og
konan hans var búin að fá alveg
nóg. Eins og hún hafði séð í
teiknimyndum beið hún eftir hon-
um eina nóttina með kökukefli í
hendinni. Þegar hann kom heim
réðst hún á hann og öskraði: Ég
er hundleið á þessari drykkju
þinni, greyið mitt hættu þessu. Þá
mælti hann drafandi röddu: Ég er
líka hundleiður á þér, þú gerir
ekki annað en að baka.
Mamman var að sýna fimm ára
dóttur sinni myndir af frægum
listaverkum og þar sem sú litla
nagaði neglurnar tók móðirin
fram mynd af styttunni af Ven-
usi frá Míló og sagði: „Sjáðu
þessa konu. Hún varð svona af
því að naga á sér neglurnar."
FINNDU 6 VILLUR
Finniö sex villur eöa fleiri á milli mynda
i jb)uba jjsejq ‘jn))/0jq je su|suublu jndiAS 'qia qæq qusa jn)8q niunAS
‘ujæq jBuunuo>| jn66a|puBq ‘juujuj ja uipuÁuj ‘jbjuba jnuipjeBEsuBH
48 VIKAN 4. TBL. 1992