Vikan - 20.02.1992, Page 59
var mjög gott í Columbia og
þannig er því farið í flestum
bandarfskum skólum. Skól-
arnir sem við Sif erum í eru
báðir á miðri Manhattan og þvf
er ekki mikið húsnæði fyrir
félagsstarfsemi. Þó eru starf-
ræktir í skólu'num ýmsir
klúbbar."
Sif hefur ekki eins góða
reynslu af að búa á stúdenta-
garði.
„I Connecticut bjó ég meö
þrem öðrum stelpum á stúd-
entagarði. Þær eins og flestar
stelpurnar ( skólanum töluöu
ekki um annað en stráka og að
raka á sér leggina. Þær mættu
alltaf uppstrílaðar í skólann og
fannst ég vera hálfhippaleg og
furðuleg. Ég féll ekki alveg inn
í munstrið hjá þeim og það var
eins og þær væru hálfhræddar
við mig vegna þess að ég kom
frá Evrópu."
„Ef ég nefni Central Park
sjá flestir fyrir sér nauðgara
og glæpamenn. Fólk heldur
að þetta sé einhver dauða-
garður. Við sem búum
þarna rétt hjá förum aftur á
móti oft þangað og þykir
þetta vera æðislegur
staður. Þarna eru íþrótta-
vellir, sundlaug og dýra-
garður svo dæmi séu tekin. “
Hvernig er fyrir unga íslend-
inga að búa í New York?
„Ástæðan fyrir því að ég fór
fyrst til Connecticut var að ég
vildi alls ekki búa á Manhattan.
Mér fannst borgin alltof stór og
hættuleg. Þegar ferðamenn
koma til New York eru þeir yfir-
leitt aðeins á þvi svæði sem
kallað er „downtown". Þar eru
eintóm háhýsi og fullt af
skuggalegu fólki. Þessu er allt
öðruvísi farið ( hverfinu sem
við búum í. Við íslendingarnir
sem eru við nám í New York
búum flest á sama svæði og
höfum mikið samband. Það er
mjög gott að vita af hinum ís-
lensku krökkunum og við get-
um alltaf leitað hvert' til
annars.“
Heiða tekur undir þetta og
segir að hún geti varla hugsað
sér vinalegri stað til að búa á.
„Annaðhvort er fólk mjög
hrifið af New York eða þá að
það getur ekki hugsað sér að
vera þar. Það er mjög mikið
um heimilislaust fólk í borginni
og við heyrum stanslaust um
alls kyns glæpi. Flestir alvar-
legir glæpir eins og morð og
þess háttar eru milli eiturlyfja-
sala eða glæpahópa. Ef sak-
laus borgari eða ferðamaður
er myrtur úti á götu er alltaf
gert mikið mál úr því.
Ef ég nefni Central Park sjá
flestir fyrir sér nauðgara og
glæpamenn. Fólk heldur að
þetta sé einhver dauðagarður.
Við sem búum þarna rétt hjá
förum aftur á móti oft þangað
og þykir þetta vera æðislegur
staður. Þarna eru íþróttavellir,
sundlaug og dýragarður svo
að dæmi séu tekin. Það er
mjög gaman að setjast út f
Central Park á vorin og læra
eða liggja bara í sólbaði."
Þær segjast stundum mæta
frægu fólki á götu og eitt sinn
tók Sif fræga leikkonu fyrir fá-
tæka heimilislausa konu.
„Þetta var snemma um
morgun og ég var að bíða eftir
strætó. Þá tók ég eftir svert-
ingjakonu með svart sítt hár.
Hún hélt á mörgum plastpok-
um og ég hélt að þetta væri
bara ein af þessum pokakerl-
ingum sem mikið er um f New
York og eiga hvergi heima.
Þegar hún kemur nær sé ég
svo að þetta er Whoppie
Goldberg. Einu sinni sá ég líka
Milli Vanilli inni á skemmti-
stað. Stuttu sfðar fréttist
að þeir sungu ekki lögin sfn
sjálfir. Eftir það hef ég ekki haft
mjög hátt um þetta atvik.“
Sif játar að hún fari frekar
mikið út að skemmta sér og að
skemmtanalffið í New York sé
mjög gott.
„Við íslendingarnir hittumst
líka oft f heimahúsum eða för-
um saman út að borða. Það er
mjög mikiö af góðum matstöð-
um í New York. Við hliðina á
íbúðinni minni er til dæmis
mjög sérstakur og góður eþí-
ópískur veitingastaður, þar
sem ætlast er til að gestirnir
borði matinn með höndunum."
Heiða samsinnir þvf að þau
fari oft út að borða og að í New
York séu margir allsérstaðir
veitingastaðir.
„Sumir veitingastaðir selja
ekki vfn heldur er ætlast til að
maður komi sjálfur með vín-
flösku með sér. Á mörgum
veitingastöðum eru hljóm-
sveitir að spila eða ýmis önnur
skemmtiatriði og fjölbreytnin
er mikil. Þú finnur allt f New
York, bæöi gott og slæmt.
New York er mikil heimsborg
og mjög óamerísk borg. Það
sama má segja um San
Francisco sem er eins konar
blanda af Los Angeles og New
York. San Francisco er í raun
eina bandaríska borgin sem
ég gæti hugsað mér aö læra i
fyrir utan New York.“
Heiða segir að fyrir utan að
vera mjög ánægð með námið
sé gott að hafa kynnst ein-
hverju nýju.
„Það er mjög gaman fyrir
ungt fólk að búa í New York en
ég vildi ekki vera þar með
börn. Það þýddi til dæmis ekk-
ert að setja lítið barn út í vagn.
Það væri ekkert í vagninum
þegar þú kæmir aftur að sækja
barnið. Flestir íslensku krakk-
arnir ætla að koma heim að
námi loknu. Ég væri alveg til í
að búa þar í nokkur ár eftir að
ég hef lokið námi en mig lang-
ar ekki til aö vera f New York til
frambúðar."