Vikan - 20.02.1992, Page 66
ítalski öndvegisleikarinn
Marcello Mastroianni.
SVAR:
Boris Jeltsin. Hann fæddist í bænum Butka í
Sverdlovsk í Rússlandi árið 1931. Hann lagði
stund á nám í byggingartæknifræði og út-
skrifaðist frá Tækniháskólanum í Úralhéraði
áríð 1955. Tilvonandi eiginkonu sinni, Naínu,
kynntist hann í skólanum. Sem stjórnmála-
maður sló
hann fyrst í
gegn á 19.
þingi komm-
únistaflokks-
ins þegar
hann „stal
ræðustóln-
um“ fyrir
nokkrum
árum. Um
þessar
mundir er
hann forseti
lands síns,
Rússlands.
NÝR TRYLLIR MEÐ
CHRISTIAN SLATER
NÝ MYND
UM MANNÁT
Myndin Alive eða Lifandi er
byggð á sannsögulegum at-
burðum. Hún fjallar um flug-
slys eitt árið 1972 þar sem þeir
sem af komust þurftu að
leggja sér mannakjöt til munns
til þess að lifa af. Myndin verð-
ur undir stjórn Franks Marsh-
all sem leikstýrði Arachnopho-
bia sem gerð var árið 1990 og
sló rækilega í gegn.
LOKSINS LíTUR
EDDIE MURPHY
AFTUR AÐ SÉR
KVEÐA
Eddie Murphy, sem þegar er
byrjaður að leika í Beverly
Hills Cop III, leikur líka í gam-
anmynd sem heitir á frummál-
inu Boomerang. Mynd þessi
er byggð á hugmynd Eddie
Murphy sjálfs. Leikur hann
markaðssérfræðing í snyrti-
vörugeiranum, náunga sem
leikur sér að konum. Ekki líður
á löngu þar til hann eignast
kepþinaut af veikara kyninu -
sem þó reynist af sterkara
kyni. Robin Giv-
ens (A Rage in
Harlem) leikur
hörkukvenmann
sem gefur per-
sónu Eddie
Murphy ekkert
eftir. Persónan,
sem Eddie
Murphy túlkar,
verður svo hrifin af keppinaut
sínum að hann verður smám
saman máttvana af ást og er
tilbúinn að gera allt fyrir per-
sónu Robins Givens. Popp-
gyðjan seiðmagnaða Grace
Jones fer líka með hlutverk í
myndinni.
MARCELLO
MASTROIANNI
ítalski leikarinn Marcello Mas-
troianni (i fyrsta sinn í amer-
ískri mynd) leikur í myndinni
Used People). Auk hans leika
í myndinni Shirley MacLaine
(Postcards from the Edge),
Jessica Tandy (Driving Miss
Christian Slater í nýjum spennutrylli, Kuffs.
Ungstirnið Christian Slater
lætur ekki deigan síga. Hann
leikur nú í nýjum löggutrylli
sem heitir Kuffs. Myndin
greinir frá einkaspæjara sem
er myrtur. Þá kemur til kasta
Slaters sem leikur bróður hins
myrta. Tekur hann að sér
einkaspæjarastarfið til að hafa
hendur í hári morðingjans.
Myndin verður sýnd í Laugar-
ásbíói.
Hin
seiömagn-
aöa Grace
Jones.
FRAMHALD AF BLS. 54
FRÉTTIR ÚR
KVIKMYNDA-
BRANSANUM
Daisy) og Kathy Bates (Mis-
ery). Marcello leikur mann
sem hefur elskað persónu
Shirley MacLaine í 23 ár.
Þetta tjáir hann henni þegar
hún fylgir eiginmanni sínum til
grafar. Jessica Tandy leikur
móður hennar.
NÝ MYND MEÐ
RICHARD GERE
Richard Gere leikur í myndinni
Mr. Jones. Þetta er ástar-
mynd og fjallar um mann sem
fær ranga sjúkdómsgreiningu
og er sendur á hæli. Sænska
Sænska leikkonan Lena Olin er
búin að hasla sér völl í
Bandaríkjunum.
leikkonan Lena Olin (The Un-
bearable Lightness of Being,
Havana) leikur lækni sem gerir
sér grein fyrir þessu og lætur
flytja sjúklinginn á almennan
spítala þar sem hann fær við-
eigandi meöul sem lækna
hann. Lena Olin veitir honum
líka líkamlega aðstoö. Ástar-
leikir hefjast á spítalanum og
rómantíkin á sér engin
takmörk.
HIN VILLTA NIKITA
Franska blómarósin Anne
Parillaud leikur í blóðsugu-
grínmyndinni Innocent
Blood. Þetta er fyrsta banda-
ríska bíómyndin hennar en við
sáum hana síðast á hvíta
tjaldinu í Háskólabíói fyrir einu
ári. Þar lék hún villtan og
óstýrilátan leigumorðingja
sem vann skuggaverk fyrir
franska ríkið. Robert Loggia
og Anthony LaPaglia leika
með henni í Innocent Blood.
Leikur Anne Parillaud fallega
blóðsugu sem dýrkar ítalskan
mat - eða réttara sagt ítalskt
mafíublóð. Söguþráðurinn lof-
ar góðu.
NÝJA MYNDIN
HANS WOODY
Woody Allen hefur enn og
aftur látið að sér kveða enda
líður ekki langur tími milli
mynda hjá honum, yfirleitt ekki
nema eitt ár. Það þykir ótrúleg-
ur árangur hjá leikstjóra. Til að
mynda líða sjö ár eða meira
hjá Stanley Kubrick. Nýja kvik-
myndin hans Woody Allen
heitir Shadows and Fog. Úr-
valslið leikara er [ myndinni.
Má nefna Miu Farrow (auðvit-
að), John Malkovich (Shelt-
ering Sky, Object of Beauty),
Lili Tomlin (Big Business),
John Cusack (True Colors,
The Grifters), Jodie Foster og
Madonnu. Með þessari mynd
hefur Woody Allen sagt skilið
við Orion kvikmyndafyrirtækið
sem hefur framleitt flestar
kvikmyndir hans. Sögusagnir
segja að Orion sé í miklum
fjárhagskröggum. Næsta
mynd Woody Allen verður því
framleidd af Tri Star kvik-
myndafyrirtækinu. Shadows
and Fog verður sýnd í Há-
skólabíói áður en langt um
líður.
LETHAL WEAPON III
Danny Clover og Mel Gibson
eru að klára að leika í mynd-
inni Lethal Weapon 3 þar
sem þeir berjast við spilltan
lögreglumann sem selur mafí-
unni vopn. Ekki nýstárlegur
söguþráður það en áhættu-
atriðin þykja víst glæfraleg og
vel útfærð. Myndin verður
sýnd í kvikmyndahúsum Árna
Samúelssonar seinna á árinu.
ÆVINTÝRI
MARKS TWAIN í
NÝJUM BÚNINGI
Leikarar House Party mynd-
anna leika í nútímauppfærslu
af ævintýrinu The Prince and
the Pauper (Prinsinn og betl-
arinn) sem byggt er á sögu eft-
ir Mark Twain. Nýja útgáfan
greinir frá ungum snillingi sem
skiptir um gervi við þjóf sem er
mjög sviplíkur honum.
Larry Fishburne í nýrri mynd,
Deep Cover.
LARRY FISHBURNE
í DULARGERVI
Leikarinn Larry Fishburne
(School Daze, The Boys in the
Hood) fer með hlutverk í Deep
Cover. Þar leikur hann vand-
ræðalöggu sem berst gegn
mögnuðu eiturlyfjagengi frá
Kolumbíu.
66 VIKAN 4. TBl. 1992