Vikan - 02.04.1992, Blaðsíða 2
EFNI ÞESSARAR VIKU
ANNAR ER BÆJAR-
STJÓRI - HINN ÞING-
Ó MAÐUR OG PRESTUR
Bráðskemmtilegt viðtal við þá bræður
Guðmund Árna og Gunnlaug Stefáns-
syni Alþýðuflokksmenn um handbolt-
ann og stjórnmálin, lífið og tilveruna.
_ NATALIE MEÐ ALF-
10 UM OG TRÖLLUM
Franska kvikmyndaleikkonan Natalie
Roussel var stödd hér á landi fyrir
skömmu. Hún leikur eitt aðalhlutverk-
anna í Kastala móöur minnar, kvik-
mynd sem sýnd er í Regnboganum
um þessar mundir. Hér lýsir hún ýms-
um viöhorfum sínum í Vikuviðtali.
SÖNGKEPPNI
FRAMHALDS-
1 4 SKÓLANNA
Framhaldsskólanemar um allt land
standa fyrir þessari keppni þar sem
besti söngvarinn úr hópi nemenda er
valinn. Vikan fylgdist með úrslitunum
og ræddi við sigurvegarann.
BRAUTRYÐJANDI í
I Ó IÐJUÞJÁLFUN
Guðrún Árnadóttir hefur vakið heims-
athygli á meðal iðjuþjálfa og fleiri sér-
fræðinga fyrir rannsóknir sínar og
ritstörf.
LESENDAGETRAUN
OG SKOÐANA-
I O KÖNNUN
Léttur leikur á vegum Vikunnar og
Flugleiða. Ef þú svarar einni spurningu
og tekur um leið þátt í lesendakönnun
um efni þlaðsins gætirðu lent I lukku-
pottinum og unnið helgarferð fyrir tvo
innanlands.
ÍSLANDSKLUKKAN
20 ÁAKUREYRI
I tilefni stórafmælis Leikfélags Akur-
eyrar og Halldórs Laxness eru nú
hafnar sýningar nyrðra á Islandsklukk-
unni.
26 popp
Fjallað um merkilegt framtak Lou
Reed og að vanda er sagt frá því nýj-
asta í plötubúðunum.
28 BANDARÍKJUNUM
Tvenn samtök, sem hafa milligöngu
um ársdvöl evrópskra ungmenna sem
Au Pair í Bandaríkjunum, hafa um-
boðsmenn á Islandi. Hér er starfsemin
kynnt og spjallað við stúlku sem er
nýkomin heim.
__ HÚN ER ÍSLENSK -
32 HANN ER TYRKI
Þau eru ung og ástfangin og búa sam-
an í Reykjavík þar sem hann rekur
teppaverslun. Innan nokkurra missera
er ætlunin að þau Hekla flytji til heima-
borgar hans, Istanbul, og setjist þar að
til frambúðar. - Veit hún á hverju hún
má eiga von?
36 FULLNÆGING KARLA
Sigtryggur Jónsson svarar lesendum í
Sálarkimanum.
38 MYNDSJÁ
Vikan fylgist með forsýningu á Börnum
náttúrunnar þegar myndin hafði verið
tilnefnd til óskarsverðlauna.
42 SAGA ÓSKARSINS
Tekinn er upp þráðurinn frá þvi í síð-
asta tölublaði og lokið við að greina frá
ýmsu fróðlegu og skemmtilegu sem
tengist sögu þessara eftirsóttu kvik-
myndaverðlauna.
48 andsetni
Að þessu sinni svarar Jóna Rúna 17
ára strák sem heldur að vinur hans sé
setinn öndum. Fróðlegt og skemmti-
legt eins og ævinlega og umfram allt -
dulrænt.
FRÁ HAFNARSTRÆTI
56 TIL HOLLYWOOD
Vikan I heimsókn hjá Stellu Trausta-
dóttur sem lýsir ævintýralegum ferli sln-
um I tískuheiminum í Los Angeles. Þar
framleiðir hún eftirsótta kjóla undir
merkinu STELLA-DOTTIR.
KRAFTAVERKA-
ÓU KONANRÚRÍ
Hún hefur haslað sér völl í hörðu við-
skiptalífinu í Los Angeles og stjórnar nú
óhemju stórri heilsuræktarstöð sem hún
segir vera þá bestu I heimi.
64
KVIKMYNDIR
Fróðleiksmolar um það nýjasta á hvíta
tjaldinu.
AUSTURLENSK
/2 MATARGERÐ
Blaðamaður Vikunnar segir frá nám-
skeiði sem hann sótti í þessari framandi
matargerðarlist og miðlar lesendum af
reynslu sinni.
GRILLIÐ Á HÓTEL
/Ó SÖGU
Að þessu sinni kynnir Vikan Grillið á
Hótel Sögu sem „veitingahús mánaðar-
ins“. Þar hafa húsakynnin verið endur-
nýjuð í tilefni 30 ára afmælis hússins.
GERDURAD FYRIR NÆSTU VIKUIUFI ÞINUi
m m
. Ir/ Xt
0 \
I NÆSTA BLAÐI
KYNNIR VIKAN
ÞÁTTTAKENDUR í
l <v FEGURÐARSAM-
’ ; KEPPNIÍSLANDS