Vikan - 02.04.1992, Blaðsíða 20
TEXTI: HJALTI JÓN SVEINSSON / LJÓSM.: BINNI
Það er sjald-
gæft að þrir úr
sömu fjöl-
skyldunni taki
þátt i einni og
sömu upp-
færslunni. Hér
er Hallmar Sig-
urðsson ásamt
foreldrum sín-
um Herdísi
Birgisdótturog
Sigurði Hall-
marssyni góð-
kunnum leikur-
um á Húsavík.
ÍSLANDSKLUKKAN
Á AKUREYRI
í TILEFNI AF 75 ÁRA AFM/ELI LA
Islandsklukkan eftir Hall-
dór Laxness var frumsýnd
hjá Leikfélagi Akureyrar
þann 27. mars. Sunna Borg
leikstýrir verkinu, Jón Hlööver
Áskelsson semur tónlist, Sig-
urjón Jóhannsson gerði leik-
mynd, búningahönnuður er
Freygerður Magnúsdóttir og
Ijósameistari er Ingvar
Björnsson.
Tvær forsendur liggja að
baki þeirri ákvörðun LA að
taka íslandsklukkuna til sýn-
ingar að þessu sinni. Hún er
afmælisverkefni leikfélagsins
sem verður 75 ára þann 19.
apríl og í annan stað verður
Halldór Laxness níræður í
þeim sama mánuði.
Af þeim fjölda leikara sem
við sögu koma má nefna Elvu
Ósk Ólafsdóttur sem leikur
Snæfríði íslandssól, Hallmar
Sigurðsson sem leikur Arnas
Arnæus og Þráin Karlsson
sem leikur sjálfan Jón Hregg-
viðsson. Foreldrar Hallmars,
góðkunnir leikarar frá Húsa-
vík, koma einnig við sögu en
Sigurður Hallmarsson leikur
Eydalín lögmann og Jón Þeó-
fílusson og Herdís Birgisdóttir,
kona hans, leikur móður Jóns
► Hallmar Sigurðsson og Aðal-
steinn Bergdal í hlutverkum sín-
um I fslandsklukkunni á
Akureyri.
20 VIKAN 7. TBL.1992
Hreggviðssonar. í helstu hlut-
verkum öðrum eru Felix
Bergsson (Magnús í Bræöra-
tungu og böðullinn), Valgeir
Skagfjörð (Sigurður dóm-
kirkjuprestur), Jón Stefán
Kristjánsson (Jón Grinvicensis
og séra Þorsteinn), Gestur
Einar Jónasson (Jón Mar-
teinsson), Sigurveig Jónsdóttir
(Metta, kona Arnæusar), Guð-
laug Hermannsdóttir, Árni Val-
ur Viggósson, Þórdís Arnljóts-
dóttir, Aðalsteinn Bergdal,
Eggert Kaaber, Marinó Þor-
steinsson, Ingrid Jónsdóttir og
Agnes Þorleifsdóttir (átta ára)
auk fjölda annarra.
Skáldsagan íslandsklukkan
styðst að miklum hluta við
sögulega atburði á 17. og 18.
öld og endurspeglar aldarfarið
á íslandi í svartasta miðalda-
myrkrinu eftir siðaskiptin. Efn-
ið er annars vegar píslarsaga
umkomulauss Islendings,
Jóns Hreggviðssonar, sem
leitar réttlætis en verður leitin
bæði löng og erfið. Hins vegar
er þetta ástarsaga þeirra
Snæfríðar lögmannsdóttur ís-
landssólar og Arnas Arnæusar
en fyrirmynd hans er Árni
Magnússon handritasafnari og
prófessor í Kaupmannahöfn.
Leikstjórinn, Sunna Borg,
leggur með uppfærslu sinni
höfuðáherslu á ástarsöguna.
LJÓSM.; PÁLL A.PÁLSSON