Vikan - 02.04.1992, Blaðsíða 58
og biðja fyrir mér og bisnessin-
um á hverjum sunnudegi. Þær
eru bæði vandvirkar og vinnu-
samar og ef ég hef ekkert til
þess að rétta upp í hendurnar
á þeim og segi þeim að slappa
nú aðeins af eru þær komnar
með kúst í hönd eða farnar að
vaska upp í eldhúsinu."
James, fyrrum eiginmaður
Stellu, er síðan fjórði starfs-
maðurinn hjá Stelladottir, sem
er framleiðslumerkið. Hann
sér um bókhaldið og er úti að
„Það kemur allt upp í hendurnar á mér...
Alit sem er hérna inni fann ég í nágrenninu og
ég þurfti bara að tína það upp.“
rukka meðan við erum að
spjalla.
„Eftir að röddin sagði mér að
flytja til Ameríku, svipað og í
Biblíusögunum, fór ég upp í
sendiráð að sækja um inn-
flutningsleyfi og var sagt að
það væri bara ekki hægt nema
ef ég giftist Ameríkana. Nokkr-
um dögum síðar kom James
labbandi inn í búðina og ég
bauð honum á kaffihús. Hann
var svo hissa því íslenskar
konur vilja ekki láta sjá sig
opinberlega með svörtum
hermönnum af vellinum. Það
er ennþá meira kynþáttahatur
þar en hér. Hann sagði mér að
hann hefði oft þurft að láta sig
hverfa hljóðlega út í Reykjavík-
urnóttina eftir ástarfund því
enginn mátti vita af og enginn
mátti sjá,“ bætir hún við. „Ég
fór með honum i bíó og fleira
og hann var mjög hrifinn af því.
Hann vissi að mig langaði til
aö flytjast yfir Atlantsála svo
við ákváðum að gifta okkur.
Hann þurfti að fá alls konar
leyfi til að giftast útlendingi og
við urðum að ganga fyrir prest
uppi á velli. Ég skildi lítið í
ensku en skildi þó þegar prest-
urinn spurði mig hvort ég vildi
virkilega giftast þessum
manni, hann væri nú svartur
og það gæti veriö erfitt. Ég
horfði á prestinn og spurði
hann hvort hann væri ekki
prestur og hvort allir menn
ættu ekki að vera jafnir en
hann var hvítur sjálfur, að sjálf-
sögðu. James var ekkert hissa
á þessu enda vanur slíkri með-
höndlun I heimalandi sínu.“
Ég spyr Stellu hvort þau hafi
verið elskendur en hún gerir
lítið úr því og segir aö þau séu
tvíburasálir. „Herinn var alveg
furðulegur," heldur hún áfram.
„Yfirmaður James var Suður-
ríkjamaður og giftingin fór svo
fyrir hjartað á honum að hann
lagði James I einelti og laug
upp á hann sökum. Að lokum
var James rekinn úr hernum
en áður hafði hann verið fyrir-
myndarhermaður og fengið
ýmis heiðursmerki fyrir vel
unnin störf.
í fyrstu hafði ég hugsað mér
aö fara til New York og það
komu menn frá hernum og
pökkuðu niður dótinu mínu og
sendu það þangað. Það ætlaði
aldrei að ganga að selja íbúð-
ina mína, það kom alltaf eitt-
hvað upp á. Það var ekki fyrr
en ég fann á mér að ég ætti að
flytja til Los Angeles að hún
seldist ásamt bílnum sem ekk-
ert hafði gengið að losna við
heldur. Allt gekk upp á þremur
dögum og ég var tilbúin að
fara frá íslandi. Ég tók með
mér hundana og hitti James á
heimili móður hans í Chicago
en við höfðum ákveðið að
keyra þaðan til vesturstrandar-
innar. Hún fékk algjört áfall því
hún hafði aldrei haft hvíta
manneskju inni á heimilinu
áður og hún er einu ári yngri
en ég,“ segir Stella og skellir
upp úr.
„Farareyrir minn var tak-
markaður og mamma James
hafði stolið sparifénu hans svo
að við ákváðum að ferja bíl til
L.A., gista í tjaldi á leiðinni og
elda á prímus til að spara. Tíu
dögum síðar komum við inn í
borgina klukkan þrjú að nóttu,
dauðþreytt eftir ferðalagið. Við
höfðum hugsað okkur að vera
hjá vini James til að byrja með
en þá vildi ekki betur til en svo
að við höfðum ekki húsnúmer-
ið, bara götunafnið og göturn-
ar geta verið endalaust langar
hér. James var orðinn þrælfúll
og ég tók við akstrinum og ók
rólega eftir götunni en beygði
síðan inn í bílastæði undir ægi-
stórri íbúðasamsteypu.
Hann býr hér, segi ég við Jam-
es og bið hann að fara upp og
banka á dyrnar á ákveðinni
íbúð. James hélt ég væri orðin
vitlaus en fór samt upp. Hann
kom til baka brosandi út undir
eyru því viö höfðum hitt á réttu
íbúðina," segir Stella, ennþá
rasandi yfir þessari „tilviljun".
„Næst á dagskránni var að
finna bíl og húsnæöi sem ég
átti nú ekki von á að yrði nokk-
urt mál enda virtist nóg fram-
boð af leiguhúsnæöi. Ég varð
að fá mér hús með garði út af
hundunum en leigusalarnir
kröfðust þess að ég sýndi
þeim fram á að ég hefði láns-
traust sem ég hafði náttúrlega
ekki í þessu ókunnuga landi.
James var nú bara eins og sex
ára krakki. Hann var svo ó-
sjálfbjarga eftir veruna í hern-
um svo það var lítil hjálp f
honum. Þeir hætta alveg að
kunna að hugsa, eru einungis
vandir á að taka við skipunum
en hann fór beint í herinn úr
gagnfræðaskóla. Stór hluti af
heimilislausa fólkinu, sem
gengur um götur Los Angeles
með aleiguna í innkaupakörfu,
er úr hernum. Þetta er lokkað
inn með fyrirheit um menntun
sem er síðan ekkert tekið mark
á að lokinni herþjónustu. Jam-
es er sérþjálfaður öryggisvörð-
ur en fær ekkert starf tengt því.
Það vildi enginn leigja
atvinnulausri, útlenskri konu
með tvo hunda og svartan
mann. Það var ekki fyrr en ég
fór ein af stað og veifaði sölu-
samninginum af íbúðinni
heima með öllum háu tölunum