Vikan - 02.04.1992, Blaðsíða 44
fyrrnefnda var valin besta myndin
og Michael Cimino besti leikstjór-
inn á meðan John Voight og Jane
Fonda fengu óskar fyrir aðalhlut-
verkin í þeirri síðarnefndu.
Flestir höfðu spáð Kramer vers-
us Kramer góðu gengi við óskars-
verðlaunaafhendinguna 1980 og
raunin varð sú að myndin hreppti
fimm verðlaun. Dustin Hoffman
sagðist vera mjög krítískur á
verðlaunin sem slík og það kæmi
ekki til greina að hann liti á val sitt
sem sigur yfir hinum leikurunum
Púað var á leikkonuna Vanessu
Redgrave þegar hún misnotaði
tækifærið til að skamma
pólitíska andstæðinga sina er
hún veitti óskarnum viðtöku.
Diane Keaton veitir óskarnum viðtöku
úr höndum Janet þeirrar Gaynor sem
varð fyrst kvenna til að hljóta óskar, en
það var árið 1928.
Leikarinn John Lone hlýðir á Bernardo
Bertolucci við töku hinnar sigursælu
kvikmyndar um síðasta keisarann.
Michael Cimon, sem hér sést ásamt leik-
aranum Robert De Niro við tökur kvik-
myndarinnar Deer Hunter, hlaut óskar-
inn fyrir leikstjórn myndarinnar, en hann
skrifaði einnig handritið.
Michael Cimino varð vel til
óskars...
◄ Ben
Kingsley
í hlutverki
kántrísöngkonan Lauretta Lynn í
Coal Miners Daughter. Robert
Redford sigraði fyrir frumraun
sína sem leikstjóri Ordinary Pe-
ople sem var valin mynd ársins en
hann afhenti síðan Henry Fonda
sérstök heiðursverðlaun við ákaf-
an fögnuð samkomugesta. Henry
gerði sér lítið fyrir og var kjörinn
besti karlleikarinn árið eftir í On
John Wayne hlaut óskar fyrir
leik sinn í myndinni True Grit.
sem hlutu tilnefningu. Hann sagði
skoðun sína vera að leiklist
byggðist á samvinnu en ekki sam-
keppni og hann tæki við verð-
laununum fyrir hönd allra þeirra
leikara sem væru ekki jafn gæfu-
samir og hann og þyrftu að sjá fyr-
ir sér á annan hátt en með leik
sínum.
Fimmtugustu og þriðju athöfn-
inni var frestað um einn dag
vegna banatilræðisins við Ronald
Reagan Bandaríkjaforseta. Ro-
bert DeNiro fékk óskar fyrir hlut-
verk hnefaleikakappans Jack La
Motta í mynd Martin Scorcese,
Raging Bull og Sissy Spacek var
verðlaunuð fyrir leik sinn sem
Þ- Klæðnaður leikkonunnar
Cher við óskarsverðlaunaaf-
hendingar hefur ætíð vakið
verulega athygli...
44 VIKAN 7. TBl. 1992
Golden Pond. Katharine Hepburn
vann fjórða óskarinn fyrir hlutverk
sitt á móti honum þar og hefur
enginn leikari fengið verðlaunin
jafnoft og hún. Breska myndin
Chariots of Fire kom flestum á
óvart sem besta myndin en ung-
verska myndin Mephisto hlaut
heiðurinn fyrir myndir á öðrum
tungumálum en ensku. Warren
Beatty, sem er útnefndur í ár fyrir
titilhlutverkið í Bugsy, fékk fjórar
útnefningar fyrir Reds en varð að
láta sér nægja ein verðlaun, fyrir
leikstjórn.
Tvær gjörólíkar myndir, Gandhi
og E.T, voru hlutskarpastar við
verðlaunaafhendinguna 1983,
með ellefu óskarsverðlaun
samtals. E.T., hlaut fern verðlaun
fyrir ýmis tæknileg atriði en
Gandhi var mynd ársins, Sir Ric-
hard Attenborough fékk leikstjóra-
verðlaunin og Ben Kingsley var
kjörinn besti leikarinn í hlutverki
indverska friðarhöfðingjans. Meril
Streep vann annan óskarinn sinn
fyrir leikinn i Sophie's Choice og
Jessica Lange fékk verðlaun fyrir
aukahlutverk í Tootsie. Hún var
einnig tilnefnd fyrir aðalhlutverkið
i Frances.
Shirley MacLaine sagði að þaö
hefði verið kominn tími til að hún
hlyti óskarsverðlaunin við 56. af-
hendinguna þegar hún þakkaði
fyrir hlut sinn í Terms of Endear-
ment sem sigraði fimmfalt. Starfs-
ferill hennar væri nefnilega jafn-
langur sögu verðlaunanna. Hún
bætti við að hún hygðist ekki
þakka öllum þeim sem hún hefði
hitt á lífsleiðinni en ef svo færi
sem horfði hjá henni i leit að svar-
inu við lifsgátunni gætu atvik þró-
ast þannig að hún þyrfti að telja
upp fjölda manna úr fyrri lifum.
Robert Duvall var kjörinn besti
karlleikarinn fyrir hlutverk upp-
gjafa kántrístjörnu í Tender Merc-
ies og Linda Hunt varð fyrst
leikara til að sigra fyrir túlkun á
persónu af gagnstæðu kyni í hlut-
verki karlkyns Ijósmyndara í The
Year of Living Dangerously. Mynd
Ingmars Bergman, Fanny og Al-
exander, var ekki einungis valin
sem besta erlenda myndin heldur
hlaut hún einnig verðlaun fyrir
myndatöku, list- og búninga-
hönnun og er það besti árangur
sem mynd á erlendu máli hefur
náð frá upphafi.
Milos Forman vann annan ósk-
arinn sinn fyrir leikstjórn Amadeus
sem fékk átta verðlaun 1985. F.
Murray Abraham var kosinn besti
leikarinn fyrir hlutverk hins af-
brýðisama Salieri og hann sagði
þegar hann þakkaði fyrir sig, þvert
ofan i karakterinn sem hann lék,
að eina sem skyggði á verðlaunin
væri að Tom Hulce, sem lék titil-
hlutverkið, stæði ekki við hlið
honum. Kambódískur flóttamað-
ur, Haing S. Ngor, var annar
leikarinn af asísku bergi brotinn til
að hljóta verðlaunin fyrir The Kill-
ing Fields og annar áhugamaður-
inn sem hreppti verðlaun en hann
starfar sem tannlæknir. Sidney
Pollack var verðlaunaður fyrir að
framleiða og leikstýra Out of Afr-
ica árið eftir en stjörnur myndar-
innar, Robert Redford og Meril
Streep, lutu í lægra haldi fyrir Will-
iam Hurt í hlutverki hommans í
Kiss of the Spider Woman og
Geraldina Page í myndinni The
Trip to Bountiful sem sumum þyk-