Vikan - 02.04.1992, Blaðsíða 15
náð langt á listabrautinni, allir
þekkja Pál Óskar Hjálmtýsson
og Móeiði Júníusdóttur sem
hafa heillaö landsins guma og
snótir með þokkafullum söng og
Margréti Eir, sem sigraði í fyrra
og söng eitt lagið í Eurovision
'92 með miklum ágætum. □
15
► Endurvinnslan og
Umferðarráö voru
ekkl meðal þeirra sem
styrktyu keppnina en
það voru hins vegar
Landsbanki íslands,
Einar J. Skúlason og
Flugleiðir.
- Þú söngst lagið Leitina að
látúnsbarkanum, sem Stuð-
menn sömdu og gerðu vinsælt
hér um árið. Hvað réð valinu?
„Pabbi benti mér á þetta lag
af tilviljun og mér leist vel á þaö.
Það hentar raddsviði mínu vel.“
VIKAN
◄
Nemend-
ur fram-
halds-
skólanna
troðfylltu
Hótel ís-
land og
studdu
dyggilega
við bakið
á sínum
keppend-
um.
Hluti keppenda bíður eftir úrslitunum. A bak við
sjást kynnar kvöldsins, þau Bergsveinn og Ágústa
Auk þeirra standa uppi á senunni Jónatan Garðars
son, formaður dómnefndarinnar, og Margrét Eir
sem vann keppnina i fyrra og krýndi arftaka sinn.
Þegar myndin er tekin er hún að segja langa sögu
af pabba sínum til að reyna á taugar keppenda.
- Ég þori aö veðja að þú hef-
ur sungið opinberlega áður.
Hvar og hvenær?
„Það er rétt, ég er bæði í
hljómsveit og söngsveit, hljóm-
sveitin heitir Burkni en söng-
sveitin heitir ekki neitt. Söng-
sveitina skipa auk mín stelpurn-
ar sem sungu fyrir mig bakradd-
irnar. Við fáumst við raddaðan
söng án undirleiks (acapella),
líkt því og Raddbandiö er að
gera. Ennþá höfum við ekki
sungið á neinum skemmtunum
nema í skólanum, en þetta er
ofsalega gaman. Fyrir utan það
leik ég Sínu vinnukonu í upp-
færslu Herranætur á Sölku
Völku."
- Er það rétt ályktað að lítið
hafi verið um nám hjá þér upp á
síðkastið?
„Já, en þaö stendur til bóta.“
- Skórnir þínir vöktu mikla
lukku. Hvað eru hælarnir háir?
„Eitthvaö í kringum tuttugu
sentímetrar, held ég.“
- Að lokum fyrir karlkyns les-
endur Vikunnar, er Margrét Sig-
urðardóttir á lausu?
„Já, þaö er hún.“
Það voru góðar fréttir fyrir
karlpening landsins og Vikan
óskar þessari hæfileikaríku
stúlku enn og aftur til hamingju
með sigurinn. Við minnum á að
fyrrum þátttakendur og sigur-
►
Sigurvegarinn er
fundinn og hún
veit ekki hvort
hún á að hlæja
eða gráta. Meðal
verðlauna, sem
Margrét fékk,
voru peningar
frá Landsbank-
anum, stúdíó-
timar og glæsi-
legur farand-
skjöldur.