Vikan - 09.02.1993, Side 11
* - ,
með afbrigðum. Og hann veitir gestum sínum
afburða vel þegar þeir valsa með honum um
Norðurland. Hann er líka stundum kallaður
„primus-motor“ eða driffjöður fyrir norðan en
vill sjálfur ekki láta of mikið með þann titil.
Hins vegar á sú lýsing ágætlega við því þeir
feðgar, Gísli og Jón faðir, hans brutust áfram
af eigin rammleik, fyrst Jón náttúrlega og síð-
an Gísli. Og víst er að það getur verið jafn-
auðvelt að glutra niður góðum hlutum eins og
það er auðvelt að koma þeim á laggirnar. Því
var mikilvægt fyrir Gísla að halda rétt á spöð-
unum.
En hvað hefur Gísli á bak við sig, menntun
til dæmis? „Ég hef ekkert háskólapróf eða
slíkt en ég var hér í gagnfræðaskólanum og
fór síðan að vinna í banka. Þar var ég í fjögur
ár en þá fór ég suður til Reykjavíkur til að
vinna í Alþýðubankanum þar sem ég var í níu
ár. Ég hef síðan sótt ýmis námskeið, til dæm-
is í Bretlandi og Danmörku," segir Gísli og
jánkar því að framan af hafi alltaf stefnt í að
framtakssemin yrði leiðarvísir hans f lífinu.
„Mig dreymdi nú ekkert sérstaklega um að
taka við Ferðaskrifstofu Akureyrar því ég sá
að erillinn í kringum þetta var ógurlegur. Ég
sá föður minn vinna mikið en hann var líka
umboðsmaður fyrir breska togara og hafði
mikið að gera við þau slörf. Sérstaklega bar á
þessu um jól þegar alltaf virtist eitthvað þurfa
að bila hjá Bretunum eða þeir þurftu skyndi-
lega að ná í kost eða olíu. Ég áttaði mig ekki
á því þá, smápolli, en auðvitað vildu þeir bara
vera í landi á jólunum eins og við hin.
Pabbi stofnaði líka Strætisvagna Akureyrar
og ég tók þátt í því en sá rekstur var raunar á
minni könnu eftir að ég flutti aftur norður. Á
meðan ég var í Landsbankanum keyrði ég á
kvöldin meðal annars ákveðna leið hér í bæn-
um. Síðan veiktist pabbi í augum og það ýtti
undir að ég kæmi aftur norður,“ segir Gfsli en
á þessum árum var hann skrifstofustjóri í Al-
þýðubankanum.
HEY ÚT - RÚM INN
Framhjá því verður ekki litið að hann sækir
allmikið til föður síns í ferðaþjónustu enda
verður vart á nokkurn hallað þótt Jón sé kall-
aður brautryðjandi í slíku starfi á Akureyri,
nema ef vera skyldi Kristján nokkurn, kennd-
an við Ford, Kristjánsson sem keyrði austur
að Mývatni á sumrin til að byrja með. Jón tók
þá við því og ól son sinn upp svo að segja í _
aftursætinu á rútunni til framtíðar. Gísli hefur
upplifað gífurlegar breytingar frá þvf hann var ^
kornungur að skoða ferðalanga. Þá var
heimagisting um allan bæ, Hótel Akureyri var ö
í gömlu og úrsérgengnu húsnæði, Hótel Varð- 1X5
borg með 32 herbergi og Hótel KEA með 28. o-
„Eiginlega voru þetta engin hótel og ég held ^
að hér í bænum hafi verið fimm herbergi með
baði þegar ég kom hingað að sunnan. En nú g-
sitjum við til dæmis á Hótel KEA, glæsilegu g
hóteli, sautján árum síðar,“ segir Gísli og lítur =
(kringum sig í borðsal hótelsins, samkeppnis-
aðila síns, og það er kannski andans tákn |§
meðal akureyrskra kaupahéðna í ferða-
mannaþjónustu að þeir hafa tekið höndum ^
saman um að gera bæinn að því sem hann CR
er. Komum að því síðar en finnst Gísla ekki o
fullmikið um glæsileika í hótelgistingu á Akur- z
eyri? Þar eru hótelin Óðal, KEA og Harpa á-
samt nýuppgerðu Hótel Norðurlandi sem er
að hluta í eigu Gísla og hann hafði forgöngu
um að gera upp.
REPECHAGEN
HÚÐSNYRTIVÖRURNAR
sem farið hafa sigurför um Bandaríkin.
Frábærar stofumeðferðir ásamt vörum fyrir
allar húðgerðir til heimanotkunar.
ATH! Þessar frábæru húðsnyrtivörur eru
aðeins seldar hjá snyrtifræðingum.
Hringið og fáið nánari
upplýsingar
Borgarkringlunni
Sími 685535
3.TBL. 1993 VIKAN 1 1