Vikan - 09.02.1993, Page 30
JÓNA RÚNA KVARAN MIÐILL SKRIFAR
SLÆMUR HUGUR
ÓHEPPILEGUR
ÓRÉTTI BEITT
Þaö vill þannig til aö mér hafa borist mörg
svipuð bréf á liðnum mánuðum frá fólki sem
allt spyr hvort slæmur hugur til annarrar
manneskju geti reynst þeim sem fyrir verður
fjötur um fót eða jafnvel skaðlegur. Af þessum
ástæðum leggjum við að þessu sinni út af
þessum aragrúa fyrirspurna og grípum niður í
einu bréfanna sem I sjálfu sér er mjög tákn-
rænt fyrir flesta hinna.
Rúmlega tvítug kona, sem kallar sig Rós,
segist hafa verið beitt órétti. Hún var svipt
vinnu fyrirvaralítið og fylltist mikilli heift út í
þann sem það gerði, það er að segja fyrrver-
andi vinnuveitanda sinn. „Sannleikur upp-
sagnarinnar, séö frá mér,” segir Rós, „liggur í
því aö hann vildi nota mig sem konu og ég
hafnaöi því náttúrlega þar sem hann hvorki
höföaöi til mín né hentaöi minni persónu á
nokkurn máta. Eins og ég segi þá fylltist ég
heift út í hann og hugsaöi jafnvel hvernig ég
gæti hefnt mín á honum svo hann fengi að
finna jafnmikiö til og ég gerði þegar ég stóö
uppi atvinnulaus og beygð af hans völdum.
Skömmu síðar - hvort sem það er tilviljun eöa
ekki - gerist það aö viðkomandi lendir f
bílslysi og skaðast þannig aö hann er í hjóla-
stól núna. ”
HEIFT OG NEIKVÆÐAR HUGSANIR
Rós segist hafa veriö gripin mikilli sektar-
kennd í kjölfar þessa atburðar og spyr hvort
geti hugsast aö heift hennar út í viðkomandi
hafi valdiö því aö þessi átakanlegi atburður
átti sér stað í lífi mannsins. Hún veltir líka fyrir
sér hvort hugsanlega geti verið samband á
milli hugsana hennar og þess hvað gerist í lífi
þeirra sem ganga á rétt hennar. „Engu er lík-
ara, ” segir Rós, „en ef mér er gert eitthvaö
neikvætt, sem mér sárnar verulega, veröi sá
sem veldur sárindunum innra með mér fyrir
einhverjum skakkaföllum eða leiðindum. " Eins
spyr Rós og er þungt í henni enda er hún á-
hyggjufull: „Getur verið tilfelliö aö hugsanir
okkar séu einhvers konar óbeisluð orka sem
leysist úr læöingi af ýmsum ástæöum og hef-
ur þá ákveöin áhrif, hvort sem er til góðs eöa
ills?”
Áhyggjur Rósar eru sem sagt samnefnari
fyrir áhyggjur fjölda fólks sem hefur skrifað
mér og borið undir mig svipaðar vangaveltur.
Rós þakkar mér fyrir fyrirfram og óskar bæöi
mér og mínum Guðs blessunar sem ég vil
þakka henni sérstaklega fyrir og vona að hún
verði einhvers vísari eftir að ég hef svarað
henni. Auðvitað nota ég áfram hyggjuvit mitt,
reynsluþekkingu og innsæi til að styrkja svör
mín.
LÖGMÁL ORSAKA OG AFLEIÐINGA
Viö lifum við lögmál sem eru ekkert síður and-
leg en efnisleg. Hver einasta orsök hlýtur
alltaf að hafa afleiðingu, hver svo sem hún
verður á endanum. Þar er átt við að við getum
ekki hegðað okkur hvernig sem við viljum. Allt
sem viö segjum eða hugsum hefur í för meö
sér afleiöingar sem eru ýmist góöar eöa
slæmar, allt eftir því hvað það er sem við
erum að „sá” til hverju sinni. Sé framkvæmd
okkar neikvæð kemur sem afleiðing af henni
neikvæð útkoma fyrir okkur, ekkert síður en
þá sem fyrir verða, jafnvel þó síðar verði. Það
sanna dæmin augljóslega. Þetta gerist vegna
þess að það er eitthvað til í mannlegum
reynsluheimi sem heitir lögmál orsaka og af-
leiðinga. Það lögmál er svo sannarlega virkt
og lifandi í okkar daglega lífi.
UÓTUR GRIKKUR OG
KYNFERÐISLEG ÁREITNI
Ef við íhugum einmitt þetta sjónarmiö þá var
vinnuveitandi Rósar vegna tillitsleysis við
hana að skapa henni ómælt erfiði meö því að
gera henni þann Ijóta grikk að undirbúa ekki
fyrirfram og útskýra með aðdraganda ástæðu
þess að hann kaus að segja Rós upp störfum.
Jafnframt því var hann að skapa sjálfum sér
vanda því hann kemst ekki hjá því að þurfa
sjálfur fyrr eða síöar að horfast á einhvern
máta í augu við þessa óréttmætu ráöstöfun
sína á persónu Rósar. Það er mikið mál aö
missa atvinnu sína fyrirvaralaust og aö á-
stæðulausu að því er virðist í fljótu bragði
séö. Mér finnst aftur á móti eins og af því aö
Rós vildi ekki þýðast þennan einstakling kyn-
ferðislega á sínum tíma hafi viökomandi
brugðist við þeirri augljósu höfnun með þess-
ari ósmekklegu og óvönduðu framkvæmd.
Kynllfslöngunum yfirmanna á ekki að full-
nægja á vinnustað, jafnvel þó það þýði að
maður missi starf sitt eins og Rós ef maður
neitar að taka þátt í slíku atferli yfirmanns
síns.
BREYTT GILDISMAT
Ég lít ekki svo á að neitt samband sé á milli
þess slyss sem hann lenti svo í síðar og fram-
komu hans við Rós. Aftur á móti stendur hann
í mjög erfiðum sporum eins og er, hefur vissu-
lega bæði verið sviptur vinnunni og frekari
möguleikum til að ráðskast ósæmilega með
annað fólk. Slysið, sem hann fór í gegnum og
afleiðingar þess, er ekkert sem Rós hefur vís-
vitandi kallað yfir hann. Slys bara koma og
fara eftir atvikum og eina ráð okkar við þannig
vanda er að reyna að láta breyttar aðstæður
og hvers kyns takmarkanir verða til þess að
breyta gildismati okkar og viðhorfum, bæði til
heilbrigði og svo til þeirra efnislegu gilda sem
alltof víða verða til þess að við verðum eins
og tillitslausari í samskiptum okkar hvert við
annað.
SLYS EN EKKI ÁSETNINGUR
Aftur á móti má segja að í hverri þraut felist
möguleikar á auknum þroska og þess vegna
þurfa þannig aðstæður í sjálfu sér alls ekki að
gera okkur að ófullkomnara fólki, þrátt fyrir að
vera erfiðar í eðli sínu. Auðvitað er alls ekki
hægt að gera Rós ábyrga fyrir því slysi sem
fyrrverandi vinnuveitandi hennar lenti í og þá
náttúrlega alls ekki þeim afleiðingum sem
fylgdu í kjölfarið. Slys verða venjulega að
veruleika eins og fyrir röð af tilviljunum en
sjaldnast vegna ásetnings annarra. Við getum
reynt að fyrirbyggja þau en alls ekki alltaf
komið í veg fyrir þau, því miður. Þau bara
veröa á vegi okkar sumra og þá koma þau
okkur venjulega á óvart.
GETGÁTUR OG ORSAKALÖGMÁL
Ótrúlegt er að við dauðlegir menn og ófull-
komnir séum þess megnugir að segja ná-
kvæmlega til um hvaða afleiðingar megi bein-
línis rekja til fyrri framkvæmda okkar. Það eru
ekkert nema getgátur þegar við erum að
reyna að telja okkur trú um að einmitt tiltekin
atburðarás i lífi okkar eða annarra sé afleiðing
af nákvæmlega einu afmörkuðu atferli, þó það
hafi í eðli sínu verið neikvæð framkvæmd
sem mun sem slík fela i sér einhverja afleið-
ingu samkvæmt lögmáli orsaka og afleiðnga.
Þrátt fyrir að svo só er algjörlega ómögulegt
Vinsamlegast handskrifiö
bréf til Jónu Rúnu og
látið fylgja fullt nafn og
kennitölu, ásamt dul-
nefni. Svörin byggjast á
innsæi Jónu Rúnu og
rithandarlestri og því
miöur er alls ekki hægt
að fá þau i einkabréfi.
Utanáskrift er:
Jóna Rúna Kvaran,
Kambsvegi 25,
104 Reykjavík
<
30 VIKAN 3.TBL. 1993