Vikan - 09.02.1993, Page 44
SALARKIMINN
SIGTRYGGUR JÓNSSON SÁLFRÆÐINGUR
SVARAR LESENDUM
Bréf til Sigtryggs geta snúist um samskipti kynjanna, sam-
skipti barna og foreldra, samskipti milli hjóna, kynlíf og
annaö þaö sem lýtur aö sólfræöi og sálfræðilegum vanda-
málum. Bréfin mega vera nafnlaus eöa undir dulnefni.
Utanáskriftin er:
Sigtryggur Jónsson sálfræöingur, Álftamýri 3,108 Reykjavík
ÞVERRANDI
KYNLÍFSLÖNGUN
44 VIKAN
Kæri sálfræöingur.
Ég skrifa þér því ég veit ekki
hvert annaö ég get leitað.
Þannig er mál með vexti að
ég er gift og hef verið það í
nokkur ár og við vorum einnig
búin að vera saman I nokkur
ár áður en við giftum okkur.
Við eigum eitt barn sem er
þriggja ára.
Fyrst eftir að við byrjuðum
að vera saman gekk allt vel
hjá okkur. Við vorum ástfang-
in og kynlífið gekk mjög vel.
Að vísu átti ég í erfiðleikum
með að fá fullnægingu. Þegar
ég varð ófrísk gerðist það
hins vegar að ég hætti að
hafa löngun til kynlífs og má
segja að ég hafi fengið óbeit á
því. Þetta varð til þess að
mjög dró úr kynlífi okkar og
smám saman vöndumst við
því að lifa nánast engu kynlífi.
Þetta stóð alveg þangað til
síðasta vor. Ég veit ekki hvað
gerðist þá en allt I einu var
eins og ég fengi löngunina
aftur og fór þá að hafa frum-
kvæði að því að við reyndum
að koma kynlífinu í gott form
aftur. Að vísu eigum við í erf-
iöleikum með að ræða um
kynlíf en þegar ég fór að leita
á manninn minn kom hann til
móts við mig og kyniífið fór að
minna á gamla daga. í sumar
var kynlífið gott og allt þar til
nú nýverið að ég fann sömu
andúðartilfinninguna aftur. Og
það sem meira er, ég er aftur
ófrísk nú.
Mér finnst greinilegt að
þetta fylgir þvi að ég er ófrísk.
Samt skil ég ekkert í þessu.
Ég haf aldrei lent í neinu nei-
kvæðu varðandi kynlíf, ekki
verið nauðgað eða neitt svo-
leiðis og ekki farið í fóstureyð-
ingu. Samt er eins og ég þoli
ekki kynlíf á meðan ég er ó-
frísk.
Ég hef verið mjög hraust á
meðgöngutímanum svo ekki
er því um að kenna en þó
verð ég að viðurkenna að mér
finnst ég ekki beint aðlaðandi
eða sexí svona framstæö.
Það sést strax á mér og mér
finnst ég vera ófrísk I níu
mánuði. Kannski er ég ekki
nógu ánægö með mig. Yfirleitt
legg ég mikið upp úr því að
halda mér til og verð að viður-
kenna að ég er svolítið kvíðin
gagnvart því að eldast.
Ég vil ekki að kynlíf okkar
falli aftur í sama farið og áður
og hef reynt að vera heiðarleg
í þessu bréfi en ég veit ekki
hvað ég á að gera. Getur þú
gefið mér einhver ráð? Mér
skilst að þetta sé ekki alveg
eðlilegt og vil því reyna að
breyta þessu.
Með kærri kveðju,
Magga.
Kæra Magga.
Þakka þér fyrir
bréfið. Ég er
sammála þér
um að eitthvað
er að og skal
reyna að gefa þér
einhver ráð. Það er þó erfitt
fyrir mig að átta mig á því
hvað er að, svo ef til vill væri
best fyrir þig að leita þér að-
stoðar hjá sálfræðingi eða
öðrum sem hefur sérhæft sig í
meðferð kynlifsvandamála.
Það er í raun alltaf erfitt að
gefa ráð við kynlífsvandamál-
um svona bréflega.
KYNLÍF OG ÞUNGUN
Það er alls ekki svo óalgengt
að þungun geri það að verk-
um að konur verði fráhverfar
kynlífi. Það er ýmislegt sem
þar kemur til. Bæði er algengt
að ógleði og aðrir fylgikvillar
þungunarinnar á fyrstu mán-
uöum meðgöngu hefti kyn-
lífslöngun og svo er líkaminn
að laga sig að breyttri horm-
ónastarfsemi og konan upplifir
því líkama sinn á annan hátt
en undir venjulegum kringum-
stæðum. Það er mjög misjafnt
hvort konur upplifa þessar
breytingar sem jákvæðar eða
sem neikvæðar. Jafnvel þó
konan óski eftir barninu er
ekki þar með sagt að hún sé
endilega sátt við þær breyt-
ingar sem hún þarf að ganga í
gegnum við meðgönguna.
Flestar konur aðlaga sig þó
þessum breytingum og fara
smám saman að líta framhjá
þeim og beina hugsuninni í átt
að tilhlökkun vegna þess að
nýtt barn er að koma í heim-
inn. Ýmiss konar kvíði getur
þó haft áhrif þar á - kvíði
gagnvart því að bæta á sig of
mikilli þyngd sem ekki hverfi
eftir fæðingu, kvíði gagnvart
sliti á húð, kvíði gagnvart fæð-
ingunni sjálfri, kvíði gagnvart
heilbrigði barnsins, kvíði
gagnvart breyttu lífi eftir fæð-
ingu þess og svo mætti lengi
telja.