Vikan


Vikan - 09.02.1993, Page 55

Vikan - 09.02.1993, Page 55
an morgun svo að rotturnar urðu að bíða betri tíma. Við ákváðum að reyna að rétta hjálparhönd við að losa bíl- inn, í von um að við kæm- umst kannski í burtu. Brátt bættust fleiri í hópinn. Það var eins og einhver hefði bara þurft að taka af skarið því á endanum var komið á fót mennsku færiband sem flutti steina í pyttinn meðan aðrir kepptust við að ausa vatninu burt. Að lokum losnaði vöru- bíllinn og komst upp úr og við flýttum okkur yfir. Á leiðinni taldi ég tólf vörubíla sem biðu þess að komast áfram. Við vorum frelsinu fegin eftir að hafa setið þarna í tuttugu og tvo tíma. Næsti áfangastaður var skammt frá borginni Goma sem er við landamæri Zaire og Rúanda. Um þetta leyti voru einhverjar óeirðir í Rú- anda og við heyrðum jafnvel óminn af sprengingunum. í hlíðum eldfjallsins Mikeno er górillufjölskylda sem við höfðum ákveðið að heim- sækja. Við fórum í sex manna hópum upp í fjallið og höfðum með okkur slóðreka og leið- sögumann. Eftir sex tíma elt- ingaleik um fjallið fundum við loks fjölskylduna en þá fór að rigna og við það drógu górill urnar sig í skjól inn á milli runnanna. Stuttu seinna rák- umst við á þær af algjöri tilvilj- un. Við eyddum stuttri stund með þessum tignarlegu en ró- lyndu skepnum. Þær voru svo spakar að við hefðum nánast getað setið í fanginu á þeim og við skildum við þær með söknuði en við vorum orðin bæði þreytt og köld svo að við urðum að snúa aftur til tjald- stæðisins. □ HUGARORAR HALLGERÐAR FITUN Glætan. Ég skammast mín ekkert eðlilega fyrir þetta lið hérna í Hrafnanesinu. Sénsinn. Ég læt sko ekki hálfpartinn má segja bögga mig til dauða með öllu þessu holdanauta- kjötsáti sem hefur verið hér í gangi síðan hringt var úr skól- anum og tilkynnt að ég hefði lést um 20 grömm frá því í fyrra. Gamla geitin er svo rosalega móðursjúk að það sést svo innilega að ég læt ör- ugglega lífið fyrir helgina ef hún heldur áfram að troða í mig gamla bola frá Grenivík. Ég ákvað því að flýja að heim- an og dreif mig bara til afa á Grandanum í gos og franskar. Glætan. Pabbi, þessi of- dekraði fíll, hótar að koma mér fyrir hjá vandalausum ef ég kem ekki strax heim. Hann sagði að skólastjórinn hefði spurt hvort ég hefði hreyft mig svona rosalega mikið undan- farnar vikur, því þessi breyting á vigtinni væri ekkert eðlilega grunsamleg. Glætan. Þetta lið veit upp á sig skömmina þvf ég hef mátt þola það að búa um rúmið mitt og pressa buxurnar mínar og skyrtur þetta heilu og hálfu vikurnar og auðvitað keyrist af manni mörinn með það sama. Það sjá allir. Rosalega er gott að þurfa ekki að fara í skólann á meðan verið er að fita mig. Ég vissi að það ætti ekki að láta mig hreyfa mig svona mikið. Afi sá svo greinilega strax hvað ég á bágt og keypti náttúrlega bæði slatta af kjúklingum og kokkteilsósu til að prófa betri leið til að ég fyllti betur út í skóna mína sem hreinlega skröltu á mér. Bræður mínir græða ekkert smá á því að það skuli vera meiningin að fita mig. Pælið í því. Þeir eru með allan skól- ann á beit í bola og það rýkur ekkert lítið úr grillinu þessa dagana. Mamma, þessi blöðrutengda bolla, sá sér leik á borði og það sást til hennar þegar hún var að steikja ann- an fótinn á bola og borða ein um hánótt. Hún neitar samt. Peran er ekkert smá lúmsk. Sénsinn. Ég meina, það eru tíu ár síðan hún gat notað sokkabeltabandið sitt. Við afi eigum svo vel sam- an og okkur finnst franskar al- veg meiri háttar góðar. Við erum samt frekar hófsöm í mataræði, borðum bara þetta sex til sjö stóra skammta af frönskum á milli mála. Ég fer ekki að lækna þetta lið af sekt- arkenndinni úr því að ég á kost á þessu skólafríi á með- an verið er að redda þessum 20 grömmum á boddíið á mér. Við skulum bara átta okkur á því að Jóa vinkona hefur ekkert þurft að borða nema prins og gos síðan reynt var grimmdarlega að fita hana. Hún fékk hálsbólgu daglega, svo mikill var ágangurinn við að troða í kokið á henni heilu hestasteikunum. Ég sagði henni bara að vefja Álafossull- arteppi um miðjuna og fara í skó af litla bróður sínum. Hún getur núna verið í friði með sína anarexíu. Mamma hennar hélt að það yrði að dressa hana upp á nýtt ef hún fitnaði svona hratt á báðum ristum og maga. Jóa borðar núna bara þegar henni sýnist og allir eru fegnir að hún er að breytast úr sæmi- lega stóru tröllabami í notalega barbídúkku aftur. Vonandi verð ég uppgötvuð snarlega. □ ▲ Mynd úr fjölskyldu- albúminu af mér og silfurbaki frænda. Eins og sést er mikill svipur með okkur, bæöi erum viö í þaö minnsta feit og pattaraleg. ▼ Það getur veriö þreytandi aö vera api. við settum upp tjöldin. Síðan fylgdumst við með vinnu- brögðunum hjá þeim inn- fæddu sem mændu hver á annan og biðu þess að ein- hver annar gerði eitthvað. Með kvöldinu skall á mikil rigning og við skriðum inn í tjöldin okkar, fegin því að vera ekki lengur á ánni. Morguninn eftir vaknaði ég við lítinn sól- argeisla sem læddist inn um rifu á eldhústjaldinu og gægð- ist á mig. Allir hentust út og enn sat vörubíllinn fastur og enn góndu þeir innfæddu hver á annan. Það var engu líkara en fólk hefði sprottið upp úr jörðinni með alls kyns vörur til að selja, jafnvel sviðnar rottur, vafalaust hið mesta Ijúfmeti en ég var hálflystarlaus þenn- 3.TBL. 1993 VIKAN 55

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.