Vikan - 09.02.1993, Blaðsíða 61
frh. af bls.9
BLÆS MEÐ MILES
Nóg um leikara og leiklist. Eggert er farið að
finnast nóg um ræðuhöld í bili, hann vill fara
að komast á æfingu en það verður ekki skilið
við manninn án þess að grennslast aðeins
fyrir um tónsmekk hljómlistarmannsins. „í
meira en ár hafa staðið yfir heima hjá mér
minningartónleikar um Miles Davis. Ég dái
hann mikið og á flest hans verk en fór reynd-
ar ekki að hlusta á hann fyrr en fyrir svona
þremur til fjórum árum. Fram að þvi hafði ég
ekki hlustað mikið á djassmúsík. Mér finnst
Davis vera mesti tónlistarmaður tuttugustu
aldarinnar.11
Hvað um klassík eða blús? „Ekki blús,
ekki lengur. En klassík, já. Ég hef líka verið
að flytja minningartónleika um Maríu Callas
upp á síðkastið en er eiginlega alveg hættur
að hlusta á dægurtónlist og fylgist lítið með
íslenskri tónlist." Grípurðu sjálfur í hljóðfær-
ið? „Já, einstöku sinnum. Þá er ég meira
bara að blása með annaðhvort Miles Davis
eða Billy Holliday. Hún var nú ein gersemin.
En ég er orðinn svo ryðgaður að ég er ekkert
að spila með öðrum. Hver veit þó nema til
þess komi einhvern tímann, hver veit?" segir
Eggert og setur spurningarsvipinn upp.
FER I FRÍIÐ
Nú er hann á leið niður í Tjarnarbíó og
næstu mánuði mun hann staldra þar við á
kvöldin og um helgar. Að því loknu hyggur
hann á frí.
„Ég hef alltaf verið í þessum myndum á
sumrin, aldrei stundlegur friður og ég hef í
rauninni aldrei tekið mér frí. Sumir myndu
kannski segja um það þegar maður lendir í
því að verða atvinnulaus í þessari atvinnu-
grein, sem oft gerist, að maður sé í fríi. En
maginn í mér segir að það sé ekki frí heldur
atvinnu- og öryggisleysi. Maður veit aldrei
hvað eða hvort nokkuð verður næst. Leikar-
ar á íslandi eru hræðilega illa launaðir þó
það sé vissulega betra launalega að leika í
myndum. Þetta er sultarlíf og maður þarf að
vinna sig á kaf til að hafa í sig og á."
Eru menn þá á atvinnuleysisbótum milli
verka? „Bótuml?" spyr Eggert og horfir á
spyrilinn eins og hann noti falskar tennur og
þær hafi orðið eftir í kaffibollanum. „Ég held
að leikarar hafi bara nú nýverið reyndar á-
unnið sér rétt til atvinnuleysisbóta. Hingað til
hefur það ekki verið svo, leikarar hafa bara
mátt éta það sem úti frýs. Nema þeir fast-
ráðnu en þeir ráða náttúrlega engu um það
hvað þeir leika. Og mér finnst ekkert fjarri
lagi að gerast fastráðinn, þó ekki væri nema
til að geta tekið launað sumarfrí," segir Egg-
ert brosandi, er staðinn upp, er að klæða sig
í frakkann og þiggur far niður í Tjarnarbíó. □
Okkur er mikil ágægja að kynna nýjan bíl; MAZDA121,
sem skarar fram úr öðrum smábílum á flestum sviðum:
j Aflmikil 1300 cc vél með 16 ventlum, beinni innspýtingu
og mengunarvörn.
® Meira rými fyrir höfuð og hné en í sambærilegum bílum
- hentar vel nýrri kynslóð hávaxinna íslendinga !
jSlaglöng og þýð gormafjöðrun á öllum hjólum.
j Léttur og lipur í umferðinni - hægt að leggja honum
næstum hvar sem er.
Því ekki að kynnast MAZDA121 af eigin raun? Við bjóðum
ykkur að koma, skoða og reynsluaka þessum frábæra bíl,
ásamt öðrum gerðum af MAZDA.
SKÚLAGÖTU 59. REYKJAVÍK S.61 95 50