Vikan - 09.02.1993, Page 66
EIGINMENN OG
EIGINKONUR
Ungstirniö Juliette Lewis og Woody Allen í Husband and Wives.
Husband and Wives er
tultugasta og önnur myndin
sem Woody Allen leikstýrir
enda er hann einn alkasta-
mesti leikstjórinn og handrita-
höfundurinn í Bandaríkjunum
um þessar mundir. Á síðast-
liðnu ári gerði hann þessa
mynd og myndina Shadows
and Fog sem enn hefur ekki
verið sýnd en áætlað er að
sýna í Háskólabíói á næst-
unni.
Husband and Wives fjallar
um mannleg samskipti og
hjónabönd í New York, uppá-
haldsborg Woody Allen.
Myndin vekur spurningar um
vináttu, ástina, lífið og tilver-
una. Samsetningin er lýtalaus
eins og Woody Allen er einum
lagið.
Woody Allen stýrir stjörnu-
liði leikara í myndinni. Þar eru
Blythe Danner (Alice), Judy
Davis (A Passage to India,
High Tide, Naked Lunch,
Barton Fink), Mia Farrow
(hefur leikið í tólf myndum
Woody Allen), Juliette Lewis
(Cape Fear), Liam Neeson
(Darkman, Under Suspicion,
Pottþétt þrenning. Judy Davis, Mia Farrow og meistarinn
sjálfur, Woody Allen.
Mission, The Good Mother,
Shining Through, The Big
Man) og Sidney Pollack (hef-
ur leikstýrt Absence of Malice,
Out of Africa, Havana). Unn-
endur Woody Allen láta þessa
mynd tæplega framhjá sér
fara en hún verður bráðlega
sýnd í Stjörnubíói.
Liam Neeson og Mia Farrow
í Husband and Wives.
SVINDLARINN
Margir muna eftir harðsoðinni
hasarmynd sem heitir The
Last Boy Scout. Þar lék
afríski Ameríkaninn Damon
Wayans á móti Bruce Willis
(Die Hard myndirnar). Nú hef-
ur Damon leikið í nýrri mynd
sem hann hefur skrifað hand-
ritið að og framleitt. Myndin
heitir á frummálinu Mo Mon-
ey og sameinar allt í einum
pakka. Hún er í senn gaman-
mynd, spennumynd og ástar-
mynd. Greint er frá atvinnu-
svindlara sem vill gerast heið-
virður og fær sér vinnu í
greiðslukortafyrirtæki. Starf
hans felst í því að flokka póst-
inn. Dag einn verður á vegi
hans undurfríð stúlkukind sem
hann getur ekki gleymt. Til að
ganga í augun á henni ákveð-
ur hann að gera það sem
hann kann best, svindla á
kerfinu. Hann langar í meiri
peninga og hefur mikið fé af
greiðslukortafyrirtækinu.
Grunsemdir vakna og spenna
færist í leikinn. Myndin er
ærslafull og það úir og grúir af
skemmtilegum uppákomum
en í henni er líka að finna
spennu og hasar. Myndin
verður sýnd í Stjörnubíói.
Damon Wayans að gera hosur sínar grænar í myndinni Mo
Money.
Vopnaöir þrjótar í Mo Money.
Ærslabelgir í Mo Money.
66 VIKAN 3.TBL. 1993