Vikan - 25.03.1993, Side 58
INGA GUNNARSDÓTTIR í HÁRI OG FÖRÐUN:
Að vita eitthvað upp á
hár er gott og gilt mál-
tæki sem samkvæmt
fræðiritum merkir að vita eitt-
hvað nákvæmlega. Því er gott
að nota þetta orðasamband í
tvíræðri merkingu þess; nefni-
lega að segja að hárgreiðslu-
dömurnar hjá Hári og förðun
viti upp á hár hvað þær eru að
gera. Hvort tveggja sýsla þær
með hár og þær vita hvernig
ber nákvæmlega að sýsla
með hárið. í það minnsta bar
ekki á öðru í forsíðustúlku-
keppni Vikunnar nýafstaðinni
en þar sáu þær Hárs og förð-
unarstöllur um hárið á dísun-
um okkar átta.
STERKIR STRAUMAR
Okkur leikur því dálítil forvitni
á því að vita hver þar stendur
að baki sem stoðin og styttan
í þessari hárleikni. Hún heitir
Ingigerður, kölluð Inga og er
Gunnarsdóttir. Inga er Esk-
firðingur að upplagi og þar
þróuðust hárgreiðsludraum-
arnir hægt og rólega í tímans
rás eða allt þar til hún tók sig
upp og fluttist búferlum til
Reykjavíkur. Fyrst og fremst
var það til þess að mennta sig
í hárfræðum við Iðnskólann í
Reykjavík og sú dvöl leiddi til
þess að hún sneri ekki aftur
austur á bóginn heldur tók sér
bólfestu á mölinni og kann vel
við sig. Hún var á samningi
hjá Pamelu Thordarson fram-
an af námi en kláraði síðan
hjá Guðfinnu Jóhannsdóttur.
Þar var hún í þrettán ár.
„Það stóð aldrei til hjá mér
að fara austur til að vinna þar.
Ég vil vera þar sem eitthvað
er um að vera, námskeiða-
hald, sýningar, keppnir og
fleira af þeim toga. Hér á
höfuðborgarsvæðinu er nóg
af sliku og ég legg mikið upp
úr því að ég og mitt starfsfólk
sækjum námskeið enda eru
straumar í hárgreiðslunni
mjög sterkir og ég vil standa
klár á þeim,“ segir Inga í sam-
tali við Vikuna.
Hún telur íslenskt hár-
greiðslufólk standa mjög
framarlega í hárgreiðslu mið-
að við aðrar þjóðir og byggir
hún það álit á fjölmörgum
ferðum sínum út fyrir land-
steinana, gagngert til þess að
fylgjast með hvað er að ger-
ast á erlendum grundum. „Hér
erum við líka velflest að fylgj-
ast með því sem er að gerast
í hárgreiðsluþróun en erlendis
er þessu oftar en ekki þannig
farið að þar eru smærri hópar
sem eru vel inni I þróuninni.“
ALLT UMHVERFISVÆNT
Það er ef til vill vegna þess
hve hárgreiðsla er framarlega
á íslandi að íslendingar eru á-
kaflega nýjungagjarnir og fljótir
▲ Fagfólk ■ háriónaöi þarf
aó fylgjast vel meó örri
þróun að mati Ingu
Gunnarsdóttur, eiganda
Hárs og föróunar. Hún er
hér að greiða Brynju
Hjörleifsdóttur.
T Þær stöllur, Inga og
Erla ásamt Gunni
Magnúsdóttur, þátttak-
anda í forsíóustúlkukepp-
ni Vikunnar. Oftar en ekki
er glatt á hjalla meóan
undirbúningur aö
sýningum stendur yfir.
58 VIKAN 6.TBL.1993