Vikan - 29.07.1993, Side 4
VALGERÐUR
VALMUNDSDÓTTIR
ER ®TTI
KEPPANDINN
í FYRIRSÆTUKEPPNI
VIKUNNAR OG WILD
BÝR MEÐ
KINDUR
HUND
06 HESTA
Valgerður Valmunds-
dóttir er tuttugu og
eins árs, fædd 13. jan-
úar 1972. Hún er 1,72 á hæð,
með brún augu, yngst þriggja
systkina. Foreldrar hennar eru
Dóra Jónasdóttir og Óli Sör-
ing Einarsson í Grindavík.
Valgerður býr ásamt manni
sínum, Herði Sigurðssyni, og
tveggja ára dóttur þeirra,
Hrefnu, á lögbýlinu Hrauni
sem er skammt utan við
Grindavík. Þau búa þar reynd-
ar í félagi við foreldra hans og
eru nú að gera upp gamalt í-
búðarhús á staðnum sem
byggt var um aldgmótin. Þar
verður framtíðarheimili þeirra.
Valgerður hefur stundað
nám við Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja en eftir að barnið kom
í heiminn og hún fór að búa
hefur hún ekki haft tóm til að
stunda námið. „Draumur minn
er að halda áfram þegar fram
liða stundir en ekki í fjölbraut
heldur annaðhvort í Bænda-
skólanum á Hólum í Hjaltadal
eða á Hvanneyri, jafnvel í
dýralækningar. En maður
hleypur ekkert í það í bili.“
Búið er ekki stórt, að sögn
Valgerðar, en nógu stórt til
þess að þau teljast tæpast
vera kaffibrúsabændur og er
býlið með svokallaðan fullvirð-
isrétt. Þau eru með um 60 fjár
og nokkra hesta, bæði eigin
gripi og annarra sem fá afnot
af aðstöðunni sem þau bjóða
upp á.
Búskapurinn og uppeldi litlu
dótturinnar hefur tekið allan
tíma Valgerðar síðustu miss-
erin en Hörður vinnur mest
utan heimilis, ýmist sem véla-
maður eða sjómaður á bátum
frá Grindavík. „Við erum í
heyskap núna,“ segir Valgerð-
ur sem hefur greinilega i nógu
að snúast um hábjargræðis-
tímann. Hörður er lika áhuga-
samur um búskapinn en leyfir
sér þegar tími gefst til að
stunda keppni ( torfæruakstri
en eitt vinsælasta keppnis-
svæðið í þeirri íþrótt er einmitt
í landi Hrauns.
ÁHUGAMÁLIN
TENGD BÚSKAP
Valgerður hefur ekki mikla
reynslu af fyrirsætustörfum og
var Fyrirsætukeppni Suður-
nesja frumraun hennar á þeim
vettvangi. „Linda Pétursdóttir
hafði samband við mig nokkru
sfðar og spurði hvort ég hefði
áhuga á að spreyta mig á for-
síðukeppni Vikunnar óg Wild.
Ég sló til því að mér finnst
þetta skemmtilega ólíkt því
sem ég er að fást við frá degi
til dags. Ég hefði ekkert á
móti því að stunda fyrirsætu-
störf í framtíðinni ef mér bjóð-
ast einhver tækifæri til þess.
Annars hef ég alltaf ætlað
mér að halda áfram í búskap,
enda eru aðaláhugamál mín
tengd honum - að geta verið
innan um skepnur á borð við
hross, kindur og kýr. Sem
stelpa var ég í sveit á hverju
sumri hjá ömmu minni austur
á Strandarhöfða í Landeyjum.
Þar kviknaði áhiigi minn fyrir
sveitastörfum. Ég fer á hest-
bak eins oft og ég get. Reynd-
ar er gamli reiQþesturinn minn
fallinn. Nú á óg eitt trippi sem
ég er ekki enn farin að fást
við, tveggja vetra, og annað
fjögurra vetra sem ég byrja að
temja næsta vetur." □