Vikan


Vikan - 29.07.1993, Síða 29

Vikan - 29.07.1993, Síða 29
GALDUR sæld og flugnasveimur í lofti - og svo jökullinn óendanlegi, íshellan ógnarslóra sem blés köldum gusti yfir í hlýtt and- rúmsloftið. Næsta dag var siglt út Ei- ríksfjörð og inn á vík á austur- strönd fjarðarins. Þaðan var klukkustundar gangur yfir til Garða, eða Igalíkú, eins og plássið heitir á máli inn- fæddra. Það er fallegt að sjá yfir Garða þegar komið er á háls- inn fyrir ofan Einarsfjörð. Þá loks opnast útsýni til austurs, yfir fjörðinn. Þaðan liggur brött brekka niður að Görðum. Það er eins og tíminn hafi staðið kyrr hér í hundrað ár. Fjörður- inn er íslaus að mestu, hlíð- arnar grasi vaxnar og um- hverfið minnir meira á (sland en Eiríksfjörður. Breiðafjarðar- eyjar koma upp í hugann, húsin í Flatey - eða kannski Reykjavík fyrir svo sem tvö hundruð árum, eins og sjá má af myndum frá þeim tíma. Húsin standa strjált og hvert hús hefur sitt tún. Konunglega Grænlandsverslunin stendur á klettunum við sjóinn, gamalt og virðulegt hús. Hér má fá hinn ómissandi verndargrip, túpilak, í búðinni, hvort heldur maður vill úr hreindýrshorni eða hvaltönn. Traktorinn er þarfaþing og helsta farartækið. Þessi börn ■ Brattahlíö bíöa eftir pabba sínum sem skrapp í búöina. Mannlífið gengur sinn hæga- gang í þessu fjörutíu manna byggðarlagi. Hundarnir græn- lensku, sem eru nauðalíkir ís- Útsýni yfir dalinn inn af Stokkanesi (Narsarsuaq) á leiöinni aö Grænlandsjökli. lenskum hundum, sleikja sól- ina og fylgja húsbónda sínum þegar hann hefur lokið erind- um sínum í versluninni. Hér er traktor á ferð en ekki önnur farartæki. Vegir eru fáir og stuttir á Grænlandi og yfirleitt ekki akfært milli byggða. Menn fara allra sinna ferða með bátum milli fjarða. Við setjumst til borðs í far- fuglaheimilinu í Görðum og fáum smurt brauð og kaffi. Svo röltum við um þorpið, skoðum rústir dómkirkjunnar og biskupssetursins forna en stórir steinar úr þeim voru til skamms tíma notaðir ( hús á staðnum. Sagan heillar okkur upp úr skónum. Hér er leg- steinn Jóns Smyrils Garða- biskups sem lést árið 1209. Bein hans fundust við upp- gröft og bagall, útskorinn úr rostungstönn. í miðju þorpinu er minnisvarði um Anders Ol- sen sem reisti hér bú á 18. öld. Hann nam þetta land að nýju og er ættfaðir þeirra sem nú búa í Görðum. Þriðja daginn er siglt yfir Ei- ríksfjörð, til Brattahlíðar, sem er gegnt Stokkanesi og heitir Qassiarsuk á grænlensku. Þar gefur að líta rústir Þjóð- hildarkirkju, fyrstu kirkju í Vesturheimi. Stórar kirkjur og tómar hafa ekki tíðkast í þann tíð. Innanmál Þjóðhildarkirkju er 2 x 3 metrar og hafa því ekki margir rúmast þar við messu. Einnig eru þarna rústir af bæ Eiríks rauða, útihúsum frá tímum íslensku landnem- anna og torfkofum eskimóa. Brattahlíð er fyrsta byggðin á Grænlandi sem nýtur raf- magns frá vatnsaflstöð. Kon- unglega Grænlandsverslunin er á sínum stað og allt sem fæst ekki þar er hægt að panta og það kemur með næsta báti. Strandferðabát- arnir koma á þriggja vikna fresti í þetta 70 manna byggð- arlag. Minnisvarði er til heiðurs Ei- ríki rauða, reist 1982, á þús- und ára afmæli landnáms hans, og einnig er þarna minnismerki um Otto Frederiksen, fjárbónda sem endurreisti byggð í Brattahlíð árið 1924. Loks sigldum við síðdegis inn í Kórok-fjörð, sem liggur austur úr Eiríksfirði. Hann er fullur af ís af öllum stærðum og gerðum og var siglf eins langt inn fjörðinn og unnt var að komast með góðu móti. Eftirminnilegur endir á ævin- týralegri ferð. Galdur Græn- lands er mikill og hann verður ekki burt rekinn svo glatt. Þessi ferð lifir lengi í minning- unni. □ Út úr elsta húsinu í Göröum kom þessi karl, sem áreiöanlega er allra karla elstur í því plássi, og er hér meö greinarhöfundi á myndinni. 15.TBL. 1993 VIKAN 29

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.