Vikan - 20.04.1995, Qupperneq 31
hver maðun Foreldrarnir
voru orðnir þreyttir á þessum
barnaskap drengsins en leit-
uðu svo loks til miðils. Miðill-
inn sagði þetta rétt hjá
drengnum. Guðrún segir
sögu drengsins ekki vera
einsdæmi og segir hún að
börn séu oft skyggn. For-
eldrarnir taka þó sjaldnast
mark á börnum sínum.
ÖNNUR SJÓNARHORN
Kirkjunnar menn og for-
svarsmenn trúfélaga hafa
líka nóg að starfa.
Gunnar Þorsteinsson, for-
stöðumaður Krossins, er
einn þeirra sem stundum er
leitað til vegna óróleika í
húsum. Hann segir það vera
ill öfl sem valdi reimleikum í
húsum eða ásæki fólk.
Gunnar segir þetta vera
skipulagðan her illra anda,
með Lúsifer við stjórnvölinn,
einnig geti þetta verið sálir
sem gjöri ekki iðrun fyrir lík-
amsdauðan. Þær ná ekki til
Ijóssins og frelsunarinnar og
geta því ásótt menn. Þessir
andar hafa þau áhrif á fólk
að það á erfitt með svefn,
hefur slæmar draumfarir,
börn verða mjög óvær, það
læðist ótti að fólki og það
finnur til vanlíðunar og
þyngsla. Þessir illu andar
geta líka lagst á fólk og þá er
það haldið illum anda.
Gunnar segir að þegar slíkt
gerist verði mikil persónu-
breyting og menn taki
stakkaskiptum. Hann hefur
hreinsað fólk sem hefur orð-
ið fyrir slíku. Hreinsunin get-
ur verið erfið og stundum
engist fólk sundur og sam-
an. Gunnar telur bænina og
trúna á Guð vera verndandi
fyrir fólk. Hann gagnrýnir
miðla og telur þá vera á
rangri braut. í Biblíunni er
lagt blátt bann við að haft sé
samband við andans heima
og því eigi miðlar yfir höfði
sér reiði Guðs.
Kaþólska kirkjan er á
sömu skoðun og bannar allt
samband við miðla og aðra
slíka starfsemi. Þrestar kaþ-
ólsku kirkjunnar eru oft
beðnir um að blessa hús,
sérstaklega ef fjölskyldur eru
að flytja inn í þau ný. Þá er
notað vígt vatn og bænir til
verndar freistingum djöfuls-
ins. Fólk er oft hrætt, sér-
staklega ef sjálfsmorð hefur
verið framið í húsi, og biður
um vernd. Kaþólska kirkjan
kennir að eftir líkamsdauð-
ann fari sumir beint til Guðs.
Aðrir fari í eins konar hreins-
un áður en þeir ná til Guðs
og hægt sé að hjálpa þeim
sálum yfir með bæninni. Svo
eru þeir sem lenda hjá
Kölska. Andsetning er líka
möguleiki og í þeim tilvikum
eru prestar fengnir til að
særa út illa anda.
AUSTRÆN DULSPEKI
Guðspekifélagið er alþjóð-
legur félagsskapur, stofnað-
ur í New York 1875 og starf-
ar í deildum um allan heim.
Deildarforseti þess á íslandi
er Einar Aðalsteinsson.
Hann segir að við stofnun fé-
lagsins hafi verið safnað
saman ýmsum kenningum,
einkum úr austrænni dul-
speki og þær kynntar í hin-
um vestræna heimi. í aust-
rænni dulspeki eru uppi
nokkrar kenningar um yfir-
skilvitleg fyrirbæri.
Það er einkennandi fyrir
þau að birtingarformið er
aldrei annað en það sem
manneskjan trúir á. Ef um
trúarlega reynslu er að ræða
sjá kristnir menn Jesú eða
Maríu mey, indiánar sjá dýr
eða guði og búddhatrúar-
menn og hindúar sjá sínar
hugmyndir opinberast. Þetta
á einnig við um aðra yfirskil-
vitlega skynjun. Manneskja
sér aldrei annað en hug-
myndir sínar, jafnvel þótt hún
sé ekki meðvituð um þær. í
austrænni dulspeki eru yfir-
skilvitleg fyrirbæri skýrð á
marga vegu. Ein tegund
þeirra nefnist Poltergeist á
þýsku. Má þýða það sem
ærsladraugur. Slíkur reim-
leiki lýsir sér í hljóðum og
hlutir geta hreyfst úr stað.
Einar segir sálina tilheyra
mörgum sviðum. Við búum í
hinum efnislega heimi þar
sem rökhyggjan gildir. Þar
fyrir handan er geðsviðið og
þar er sögð mikil Ijósadýrð.
Á geðsviðinu eru langanir,
þrár og tilfinningar og þar býr
einnig hið ómeðvitaða,
Þegar manneskja deyr
losar hún sig við þéttasta
sviðið, sem er líkaminn. En
hún þarf líka að deyja frá
löngunum sínum og tilfinn-
ingum sem tilheyra svoköll-
uðum geðlíkama. í geðlík-
amanum geta sálir gert vart
við sig með sjón, heyrn, lykt
og annarri skynjun. Næst á
eftir geðlíkamanum losar
sálin sig við huglíkamann.
Einar segir að sálin dvelji að
lokum á svokölluðu inn-
sæissviði á milli jarðvista.
Svokölluð mystisk reynsla,
eða guðleg opinberun, á sér
stað á þessu sviði. Sálin
sameinast ekki almættinu til
fulls fyrr en hún hefur náð
fullum þroska. Þessi hug-
mynd er samkvæmt hinni
svokölluðu endurholdgunar-
eða karmakenningu.
Einar segir að fyrirbrigði á
geðsviðinu geti birst fólki á
allan hugsanlegan hátt. Þau
geta verið af illum toga,
samansöfnuð orka, menguð
af slæmum hugsunum. And-
stæðan er svo hinir svoköll-
uðu Tívar sem eru háþrosk-
aðar vitundarverur. Þessi vit-
undaröfl hafa mörg hver
þann eiginleika að geta birst
í efnisheiminum og sum
hver geta jafnvel breytt fram-
gangi hans. Þá hugmynd að
neikvæðar tilfinningar geti
orðið að orku er að finna í
austrænni speki. Þær geta
orðið að óvættum í skynjun
fólks og geta birst í hvaða
líki sem er. Einar segir að
þetta megi einnig tengja
göldrum. Galdur er fólginn í
því að nota þessi öfl og orku
til að hafa áhrif á efnisheim-
inn. Sumt fólk getur virkjað
þessi öfl, annaðhvort í sína
þágu eða í þágu þess góða.
Munurinn á svarta- og hvita-
galdri byggist á því til hvers
öflin eru notuð. Einar segir
svartagaldur aðeins geta
fengið til liðs við sig öfl af
lágu sviði. Jógar og aðrir
langt komnir einstaklingar
geti hinsvegar verið f sam-
vinnu við æðri vitundarverur
og jafnvel gert það sem við
köllum kraftaverk. Einar seg-
ir að svartigaldur geti verið
mjög öflugur og er hann
gerður úr tilfinningum.
Það sem aðskilur galdur
og skyggni er að fólk getur
orðið galdursins vart án
þess að hafa næmi fyrir yfir-
skilvitlegum fyrirbærum.
Gaidur getur því skaðað ein-
staklinga sem ekki trúa á
■ Einar segir að
fyrirbrigði á
geðsviðinu geti
birst fólki á allan
hugsanlegan hátt.
Þau geta verið af
illum toga, sam-
ansöfnuð orka,
menguð af slæm-
um hugsunum.
slíkt að sögn Einars. Nei-
kvæða orkan er af allt öðrum
toga. Hún er er í eðli sínu
hlutlaus en birtingarmyndir
hennar eru í samræmi við þá
jákvæðni eða neikvæðni
sem hún er sprottin upp úr.
VÍSINDAHYGGJAN
Vísindamenn hafa ekki
viðurkennt andans heima og
telja að ekkert sé til nema
hægt sé sýna fram á það
með vísindalegum aðferð-
um. Nú er öld vísindahyggj-
unnar og önnur fræði eru
ekki viðurkennd. Læknavís-
indin eru til dæmis dugleg að
skýra yfirskilvitleg fyrirbæri
sem ranga skynjun af líkam-
legum ástæðum. Bent er á
fjölda sjúkdóma þar sem fólk
finnur fyrir óraunveruleikatil-
finningu og fer að sjá ýmsa
hluti. Margir geðsjúkdómar
lýsa sér í undarlegum sýn-
um eins og geðklofi
(schizophrenia) og einnig
tegund oflætis (mania-par-
anoia). Jafnframt geta röng
efnaskipti í skjaldkirtlinum og
hormónatruflanir valdið of-
skynjunum. Viss tegund
flogaveiki getur einnig lýst
sér eins og transástand hjá
miðli. Flogaveiki getur sumt
fólk einnig kallað fram sjálft
■ Gunnar Þorsteinsson, forstöðu-
maður Krossins, segir það vera ill öfl
sem valdi reimleikum í húsum eða
ásæki fólk. Gunnar segir þetta vera
skipulagðan her illra anda, með Lúsi-
fer við stjórnvölinn, einnig geti þetta
verið sálir sem gjöri ekki iðrun fyrir
líkamsdauðan.
4. TBL 1995 VIKAN 31
DULRÆN MÁLEFNI