Vikan - 20.04.1995, Blaðsíða 56
13
BERGUND ÓLAFSDÓTTIR
Ungfrú Reykjavík er Berg-
lind Ólafsdóttir. Hún er 17
ára, fædd 4. júní áriö 1977
og er því ( Tvíburamerkinu.
Berglind fæddist í Reykja-
vík en hefur alltaf búiö í
Hafnarfiröi. Hún vinnur sem
módel hjá Model 79 og var
nemandi á félagssviði Fjöl-
brautaskólans í Garðabæ
þar til verkfall kennara hófst.
í haust ætlar hún aö halda
náminu áfram. í framtíðinni
langar hana til aö vinna fé-
lagstengd störf og viö þróun-
arhjálp. [ sumar fer hún til
Mílanó þar sem hún mun
stunda fyrirsætustörf.
Áhugamálin eru jassball-
ett, karate, snjóbretti, feröa-
lög, fyrirsætustörf og aö
kynnast nýju fólki.
Foreldrar Berglindar eru
Ólafur S. Vilhjálmsson og
Sigrún Steingrímsdóttir og
hún á tvö systkini.
Berglind er 179 sm á hæö.
GUÐNÝ SIF JAKOBSDÓTTIR
Guðný Sif Jakobsdóttir er
borinn og barnfæddur Akur-
eyringur. Hún er nítján ára,
fædd 5. febrúar 1976 og er í
Vatnsberamerkinu.
Guöný stundar nám á
myndlista- og handíöabraut
Verkmenntaskólans á Akur-
eyri. Eftir stúdentspróf mun
hún halda áfram aö nema
sig í listinni en hún leggur
áherslu á teikningu og list-
málun. Hana langar að læra
í útlöndum og kemur lista-
og tískuborgin París sterk-
lega til greina. Meö náminu
vinnur Guðný í Selnesti og
hjá Vífilfelli. Hún er í lceland-
ic Models og á Akureyri sýnir
hún föt fyrir verslanir,
saumastofu og fatahönnuði.
Áhugamálin eru myndlist,
skíöi, ferðalög, vera með
vinunum og lifa lífinu.
Foreldrar Guðnýjar eru
Jakob Jónasson og Unnur
Pálsdóttir og hún á tvo
bræöur og eina systur.
Guðný er 176 sm á hæð.
56 VIKAN 4.TBL.1995