Vikan - 23.07.1998, Blaðsíða 55
ekki missa af
útvarpsþœttinum „Glataðir snillingar
á dagskrá Rásar 2, milli klukkan þrjú og fimm, á
laugardögum. Félagarnir Þórhallur Gunnarsson leikari og
Fjalar Sigurðarson, Þjóðarsálarstjórnandi og tölvugúru,
spila á karlrembuháttinn eins og vanir menn. Þeim tekst að
láta konur halda að þeir séu allir á þeirra bandi; gera lítið úr
karlmönnum sem hafa ekki vit á hvernig þeir eiga að klæða
sig (hvað þá heldur annað), gagnrýna opinskátt ungar
fyrirsætur og spila ágæt lög. Oftar en ekki fá þeir
bráðskemmtilegt fólk í heimsókn og í þessum þætti fá
hlustendur nýja sýn á lífið og tilveruna...
Tvíhöfða, Jóni Gnarr og Sigurjóni Kjartanssyni
á X-inu, FM 97,7 á morgnana. Þeir gera sér lítið fyrir og
hringja í CIA, FBI og Hvíta húsið, eins og ekkert sé. Aðal
brandarinn hjá þeim er sá að þeir segjast vinna hjá „íslensk-
Ameríska" eftir að Bandaríkjamaður keypti hlut í stöðinni!
Tildurrófunum á Stöð 2
á miðvikudagskvöldum. Þær gefa lífinu lit og
kenna manni að nota setningar eins og: „Ég
nota ekki föt í minni stærð"! Merkjavörur eru
í hávegum hafðar hjá Tildurrófunum og það
skiptir ekki máli hversu ljót fötin eru eða
hversu illa þau r>otto ar trA t
breytir ÖLLU!. Amtsbókasafnið á Akureyri
d Í ítW íirT.l
03 591 128