Vikan


Vikan - 23.07.1998, Blaðsíða 46

Vikan - 23.07.1998, Blaðsíða 46
Það hringdi í mig strákur í vikunni og bar sig illa, hann sagðist ekki vilja koma og ræða vanda sinn, þetta væri svo vandræðalegt. Ég þóttist vita hvað klukkan sló, hafði smátíma aflögu og spurði hann hvort hann gæti þá talað núna. Viti menn, þetta var kynlífsvandamál. Það sem var enn dæmigerð- ara var að hann átti í vand- ræðum með bráð sáðlát, svo mikið, að honum fannst til vandræða og gerði honum erfitt fyrir í samskiptum við stelpurnar. Hann fékk það jafnvel áður en nokkrar sam- farir byrjuðu. Hann var nú á föstu og vildi gera eitthvað í málinu. Honum fannst að eitthvað yrði að gera. í raun er ótrúlega sjaldan sem menn leita sér ráða við þessu máli miðað við það hve algengt það er. Líkast til ræða karlar þetta oftar sín á milli en við sinn lækni. En vitið þið hvað strákar. Það er heilmikið hægt að gera og mikið til af hjálpar- bókum um þetta málefni. Þið áttið ykkur á að þið eruð alls ekki einir og flestum tekst að ná tökum á þessu og það fyrr eða síðar. Ég ætla að fara yfir eina aðferð með ykkur hér á eftir, sem er rosalega einföld og þið getið náð tökum á vandanum með henni á u.þ.b. þremur vikum. Það sem þið þurfið að gera er að stoppa sáðlátið áður en það verður. Þegar þið hafið náð tökum á því getið þið jafnvel fengið fullnægingu án sáðláts og haldið áfram samt. Það sem þið þurfið að gera er að æfa einn ákveðinn vöðva. Við skulum ekki flækja málið með einhverj- um lýsingum á líffærafræði eða myndum. Við skulum heldur finna vöðvann. Þetta er vöðvinn sem þið notið til að stoppa þvagbununa, þ.e. þegar þið pissið. Prófið næst þegar þið pissið að stoppa bununa og byrja nokkrum sinnum. Þá hafið þið fundið vöðvann. Það sem þið gerið nú er að spenna og slaka á þessum vöðva eins og þið séuð að æfa lyftingar. Gerið þetta tuttugu sinnum í einu, þrisvar á dag. Þið getið gert þetta hvar sem er því enginn sér ykkur spenna vöðvann. Síðan farið þið að prófa að stoppa sáðlátin þegar ykkur finnst þau vera að koma, stoppið náttúrulega alla ert- ingu á meðan og spennið vöðvann. Þið náið tökunum á þessu og sumir fara að fá fullnægingu oftar en einu sinni. Þetta er ein aðferð, einföld og á að geta gagnast mörgum. Gangi ykkur vel. Þorsteinn 46
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.