Vikan - 23.07.1998, Blaðsíða 54
ekki missaaj'
„Ekki klúðra lífi þínu, kona". Dr. Laura er geðlæknir og mjög fræg í
Bandaríkjunum fyrir útvarpsþætti sína þar sem hún ræðir við hlustendur í
beinni útsendingu.fimm daga í viku. Dr. Laura lætur fólk fá það óþvegið
ef það vælir einhverja vitleysu eða er ekki tibúið til að taka ábyrgð á
eigin lífi. Fólk hringir til að ræða um persónuleg mál og fá ráð t.d. út
af hjónaskilnuðum, lygum, fjölskylduerjum, afbrýðisemi og mörgu
öðru. Bókin er byggð á þessum samtölum og þar af leiðandi
bráðskemmtileg og óvægin. Ekki er síðra að hlusta á Dr. Lauru
sjálfa ráðleggja fólki í beinni útsendingu í Kanaútvarpinu frá
herstöðinni í Keflavík, virka daga frá kl. 17 til 18!
-------------------------
...því að heimsœkja Ó.P. útgáfuna á
Hverfisgötu 32
og kaupa ykkur krossgátubækur og krossgátublöð! !
Omissandi í hvert ferðalag, sérstaklega um
Verslunarmannahelgina. Skemmtilegt og skerpir
hugann og gaman að tala við eigandann. Gefið
ykkur því góðan tíma fyrir þessa heimsókn en
athugið að það er lokað í hádeginu frá 12-13...
S___________________________________________J
nýju bókinni eftir Dr. Lauru Schlessinger
...verslunarleiðangri í
kaupfélögin út á landi.
Það er ekki nauðsynlegt að fara til útlanda til að
hafa gaman af að versla. I Kaupfélaginu ( KB) í gamla
bænum í Borgarnesi er ágætis vöruúrval. K2
tískuverslunin kemur t.d. skemmtilega á óvart.
Verðið er ekki hærra en í Reykjavík og þarna fást
spennandi töskur og fatnaður sem gleður augað. í
þessum verslunum má líka finna gott úrval tímarita,
áfengisverslun er á staðnum og margt fleira.
...Síldarminjasafninu á Siglufirði.
Þetta er lifandi safn urn merkilegan tíma í
íslandssögunni. Þarna er hægt að sjá allt frá
veiðitækjum og tólum til íbúða fólksins sem vann í
síldinni. Síld, nælonsokkar, korselett og margt
fleira er þarna til sýnis. Um helgar eru lifandi
uppákomur með aðstoð leikfélagsins og fleiri
frískra Siglfirðinga.