Vikan


Vikan - 23.07.1998, Blaðsíða 10

Vikan - 23.07.1998, Blaðsíða 10
eða hátíðleikinn sem kallar fram tárin í augu íslendinga í kirkjunni. Það eru raddir hinna íslensku kvenna. Þeg- ar „Heyr himnasmiður” hljómar um kirkjuna langar mann mest að standa upp og kalla: „Halló! Þetta eru land- armínir!” Þær syngja nánast eingöngu íslenska sálma og Hörður Bragason, organisti í Grafarvogskirkju, leikur undir. „Það var stórkostlegt að spila á orgel í svona stórri kirkju,” segir hann, en áður hefur hann oft spilað undir í kaþólskum messum og þekk- ir því messuformið. Klukkan er farin að ganga tíu um kvöld. Á kirkjutröpp- unum er verið að raða upp stólum og þar fer fremstur í flokki aðalpresturinn, Don Luca. Hann gætir þess að allt sé eftir kúnstarinnar reglum. En hvernig komust kórarnir að í þessari kirkju? „Við fengum símhringingu frá Margréti Pálmadóttur á íslandi. Við vissum ekki hver hún var; samþykktum að kórarnir syngju við messu í lítilli kirkju hér í borginni en eftir eitt símtal til Rómar skiptum við um skoðun. Kona sem hefur stýrt kvennakór í sjálfri Péturs- kirkju syngur auðvitað í Dómkirkjunni í Massa!” Þær slá í gegn. Það er gam- an að horfa á mannfjöldann sem kemur að hlýða á þær: borgarbúar, ferðamenn, prest- ar og nunnur, að ógleymdum Kvennakór Halharíjarðar sem mætir til að sýna stuðning. Gospellögin hljóma og á milli þeirra segir Margrét brandara á ítölsku. Að tón- leikunum loknum þyrpist fólk að kórsystrunum og stjórnandanum; margar eldri konur vilja fá að vita hvort kvennakórar séu algengir á íslandi. Don Luca segist ekki vita um einn einasta kvenna- kór á Ítalíu. „Það var merki- legt að upplifa beinu tengslin sem við náðum að mynda við áheyrendur á tónleikun- umsegir Margrét. „Það eru gífurleg viðbrögð við gospeltónlist. Hún er létt, gefandi, auðsungin og tján- ingarrík. Textarnir eru fengnir úr guðspjöllunum og í negrasálmunum, sem við syngjum líka, eru frásagnir af frelsisvon svertingja. Mín til- finning er sú að það losnar um eitthvað hjá þeim sem syngja þessi lög; allir eiga sér von um einhvers konar frelsi. Ég átti þá ósk að kynna kaþólska messu fyrir íslenskum konum, jafnvel sem hugsanlegan undirbún- ing fyrir komu þeirra í Pét- urskirkjuna í Róm”. Margfaldur m illjónamœringur Þetta hefur verið lærdóms- rík vika. Undir lok ferðar- innar eru margar kvennanna orðnar góðar vinkonur; kon- ur sem hafa hist klukkustund í viku við söngæfingar og lít- ið sem ekkert talað saman áður. Ein þeirra andvarpar og segist vilja óska þess að ekki hefði komist upp um mistökin sem gerð voru í bankanum þar sem hún keypti gjaldeyrinn: „Ég fór með 40 þúsund og bað um milljón lírur,” segir hún. „Gjaldkerinn rétti mér stór- an bunka af seðlum, sem ég átti í erfiðleikum með að láta haldast saman, þrátt fyrir að við settum tvær teygjur utan um bunkann. Ég hugsaði með mér að þetta væri svolít- ið sérstakur gjaldmiðill, að 40 þúsund krónur tækju hálfa ferðatösku. Daginn eft- ir var hringt frá bankanum og mér sagt að það kæmu menn þaðan heim til mín eft- ir vinnu til að telja gjaldeyr- inn. „Ég hef engan tíma til að taka á móti einhverjum bankamönnum!” svaraði ég. „Ég er að vinna til fjögur og fer svo á kóræfingu”. Að beiðni þeirra arkaði ég með bunkann í bankann næsta dag. Þar taldi fólk seðlana og rétti mér smá bunka til baka: „Gjörðu svo vel, hér eru milljón lírurnar þínar”. Ég fékk seðlaveski, merktu bankanum, í skaðabætur. Gjaldkerinn hafði látið mig fá lírur fyrir eina milljón ís- lenskra króna! Ég hefði al- deilis getað haft það gott hér á Ítalíu með 250 milljón lírur í vasanum...!” Ferðamálaráð Marina di Massa sendir beiðni til kór- anna: Er möguleiki að fá þá til að syngja í fallegum garði í bænum? Jú, ekkert vanda- mál og næstum hundrað konur ganga fylktu liði eftir strandgötunni, stilla sér upp og syngja fyrir íbúa bæjarins. Og hver situr þarna á fremsta bekk, með breitt bros og klappar manna mest og lengst? Enginn annar en presturinn sjálfur, Don Luca. Hluti Gospelsystra um borð í skipinu sem bar okkur um Miðjarðarhafið til bæja sem vart er hægt heimsækja nema sjóleiðis. Við Portovenere. Don Luca heillaðist svo af íslensku konun- um að hann gerði allt til að dagurinn og kvöldið yrði eftirminnilegt. Hér raðar hann upp stólum fyrir kvöldtónleikana. Með honum eru nokkrir prestar sem virðast jafn hrifnir og hann. Aðdáunin á andliti Don Luca leynir sér ekki. Skyldi hann skipta um trú og flytja til íslands?! Æfingabúðir árlega Ferðin er á enda. Á flug- vellinum í Mílanó fara þær inn á snyrtinguna, hver á fæt- ur annarri. Ermalausu kjól- unum og opnu sandölunum er pakkað ofan í tösku. Fram koma virðulegar, íslenskar konur, í síðbuxum og jökk- um: „Þá er maður orðinn Is- lendingur aftur,” segja þær, - en það er greinilegt að marg- ar bera þá von í brjósti að þetta hafi alls ekki verið fyrsta og síðasta ferðin til Ítalíu. Margrét Pálmadóttir á fleiri drauma, sem hún ætlar að láta rætast: „Mig langar að þær konur á íslandi sem kunna eitthvað pínulítið fyrir sér í söng, hafi samband við mig í byrjun febrúar á hverju ári. Ég myndi prófa þær, senda þeim svo æfingaskrá og svo yrði farið í æfingabúðir hingað til Ítalíu, árlega. Hver veit hvenær verður kominn stór kór, Gospelsystur Möggu Pálma? Konur eiga að leysa drauma sína úr læðingi og láta þá rætast...”
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.