Vikan - 23.07.1998, Blaðsíða 53
pær eru margar sem öfunda
leikkonuna Melanie Griffith af því að
vera gift hjartaknúsaranum Antonio
Banderas. Melanie er dóttir leikkon-
unnar Tippi Hedren, sem vann sér
það mest til frægðar að leika aðal-
hlutverkið í mynd Hitchcock's, The
Birds (Fuglarnir). Hún er alin upp á
dýrabúgarði mömmu sinnar, þaðan
sem hún flutti fjórtán ára að aldri
inn til leikarans Don Johnson, sem þá
var 22 ára og mótleikari móður
hennar. Þau giftu sig þegar Melanie
var 18 ára og skildu ári síðar. Það
bjargaði lífi hennar hversu drukkin
hún var þegar bíll ók á hana, en Mel-
anie var illa farin af völdum áfengis
og lyfja. Hún hefur náð sér út úr
neyslunni og lifir nú hamingjusömu
lífi (eftir því sem best er vitað) með
eiginmanninum Antonio Banderas og
dótturinni Stellu del Carmen. Melanie
verður 41 árs 9. ágúst...
aong- og leiKKonan Whitney Houston á afmæli sama dag og Melanie
Griffith og Gillian Anderson, 9. ágúst. (Hvað er eiginlega með þennan dag! Eru stjörn-
urnar svona hagstæðar fyrir stjörnur?) Whitney á ekki langt að sækja hæfileikana.
Mamma hennar er þekkt gospel söngkona, Cissy Houston og frænka hennar er söng-
konan Dionne Warwick. Þær munu hafa sungið fyrir stúlkubarnið strax þegar hún var
í vöggu og Whitney söng fyrst einsöng opinberlega 11 ára gömul. Hún stofnaði sam-
tök fyrir börn árið 1989 og safnar fé fyrir heimilislaus börn, krabbameinssjúk börn
og börn með ainæmi. Tölur frá 2. júlí 1998 segja að platan hennar frá árinu 1996,
„The Preacher's Wife”, úr samnefndri kvikmynd, hafi selst í 3 milljónum eintaka og
sala á plötum hennar um allan heim nái nú 101 milljónum eintaka...
T T»1
Nöldui
Kona á fimmtugsaldri skrifar:
v rri
„Ég var að koma úr sumarfríi og
lenti á Keflavíkurflugvelli urn mið-
nætti.
Á sama tíma lenti önnur vél, þannip
að flugstöðin var yfirfull af fólki. Á
leiðinni út var ég stöðvuð af ungri
stúlku, sem sagði mér að setja tösk-
urnar mínar á borðið til gegnumlýs-
ingar. Bað mig svo að rétta sér hand-
töskuna og byrjaði að gramsa í henni
og tína upp úr henni. Ég get vel skilið
að gera þurfi reglubundna leit en mér
er spurn: Er eðlilegt að láta milli tvö
og þrjú hundruð manns horfa á þegar
eigur manns eru teknar upp úr tösk-
um? Hvers vegna er hurðum ekki
lokað þegar leit fer fram? Hver veit
hversu viðkvæma hluti fólk getur
geymt í handfarangri!
Vona að þið getið leitað svara við
þessari spurningu, því margir þeirra
sem á horfðu hneyksluðust á fram-
komu ungu stúlkunnar”.
Vaktstjóri hjá Tollgœslunni á
Keflavíkurflugvelli: „Fólk er
ekki tekið afsíðis þegar um
reglubundnar “stikkprufur” er
að rœða, við höfum ekki að-
stöðu til þess. Ef um mjög ná-
kvœma leit er að rœða getum
við farið með fólk afsíðis, inn
í klefa. Þetta er eitt af því sem
ekki virðist hafa verið gert ráð
fyrir þegar flugstöðin var
hönnuð. Fólk er misjafnlega
viðkvæmt fyrir svona leit fyrir
opnum tjöldum en við reynum
að vera tillitssöm og fara eins
varlega í leitina og mögulegt
er.”